blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 18
18 I SAKAMÁL
LAUGARDAGUR 12.ÁGÖST2006 blaAÍÖ
Verslunin Brynja Árið 1938
hurfu þaðan fimmtán rúllur af
veggfóðri.
É 4 ■ WWm'
V\ m.
1
AGIRNTIST FURÐULEGU
fi// ii .//
Sifullur smapjofur
Sigurjón fónsson var greinilega
drykkfelldur maður. Á sex ára
tímabili komst hann nærri þrjátíu
sinnum í kast við lögin, oftast fyrir
að vera öivaður á almannafæri.
Dómur var kveðinn upp yfir Sig-
urjóni í aukarétti Reykjavíkur 22.
október 1936.
Ágimtist desertskálar
Tólf dögum áður hafði hann
reikað drukkinn inn á Hótel Skjal-
breið þar sem hann hitti forstöðu-
k»nu hótelsins. Sigurjón taldi for-
stöðukonunni trú um að hann ætti
rykfrakka og húfu sem voru í fata-
hiengi hótelsins. Forstöðukonan
trúði Sigurjóni og aðstoðaði hann
við að klæðast frakkanum og setja
á sig húfuna. Hann komst óséður í
eldhús hótelsins og tók þaðan með
sér þrjár desertskálar.
Eftir að hafa yfirgefið hótelið var
hann fljótlega handtekinn sökum
þess hversu ölvaður hann
var á almannafæri. Sig-
urjón var þá í rykfrakk-
anum, með húfúna og
desertskálarnar þrjár.
Rúllupylsustuldur
Rétt rúmri viku síðar
var Sigurjón aftur hand-
tekinn sökum ölvunar á
almannafæri. Lögregla
sá að Sigurjón hafði á
sér þrjár rúllupylsur.
Lögregla spurði Sigurjón
hvar hann hefði fengið
rúllupylsurnar. Hann sagði
að eiginkona Tómasar Jónssonar
kjötkaupmanns hefði annaðhvort
gefið sér þær eða hann stolið þeim.
Hvort heldur var treysti hann sér
ekki til að fara með, sökum þess
hversu drukkinn hann var.
Kona Tómasar var spurð hvort
hún hefði gefið Sigurjoni rúllu-
pylsur en hún kvað svo ekki
vera. Hitt upplýstist að pyls-
urnar voru úr verslun Tóm-
asar. Við eftirgrennslan
kom í ljós að farið hafði
verið inn í verslunina þá
sömu nótt og Sigurjón var
handtekinn.
■JþX&S"
'ÆT
Fimmtán rúllur af veggfóðri
Eftir þetta var Sigurjón yfir-
heyrður um fleira og þá upplýstist
einn þjófnaður til. Nokkru áður
hafði Sigurjón komið með fimm-
tán rúllur af veggfóðri til vinkonu
sinnar og gefið henni. Þegar hún
vildi vita hvar Sigurjón hafði fengið
veggfóðrið sagðist hann hafa fengið
það í versluninni Brynju.
Afgreiðslumaður f Brynju upp-
lýsti að veggfóður eins og það sem
Sigurjón hafði fært vinkonunni
hefði ekki verið selt um nokkurn
tíma í versluninni en það hefði
hins vegar verið til á lager. Auðvelt
var að komast inn á lagerinn þar
sem gengið var inn á hann úr porti,
og þegar verslunin var opin var
ávallt opið inn á lagerinn.
Þegar Sigurjón var spurður
hvort hann hefði keypt veggfóðrið
sagðist hann hafa verið það drukk-
inn daginn sem hann gaf vegg-
„Lögregla sá að Sigur-
jón hafði á sér þrjár
rúllupylsur. Lögregla
spurði Sigurjón hvar
hann hefði fengið
rúllupylsurnar. Hann
sagði að eiginkona
Tómasar Jónssonar
kjötkaupmanns hefði
annaðhvort gefið sér
þær eða hann stolið
þeim."
fóðrið að hann myndi ekki hvort
hann hefði keypt það eða stolið
því. Sannað þótti að Sigurjón hefði
stolið veggfóðrinu.
Aukaréttur Reykjavíkur dæmdi
Sigurjón í hálfs árs fangelsi og
Hæsliréttur staðfesti dóminn.
FIMM VERSlUNUM OG HJA UMBOÐSMONNUM
SAMSUNG
LE32M51BX
32" háskerpu
LCD s|ónvarp
E? SAMSUNG
DVD-125
DVD upptðkutækl
og spllsrl
Verð áður: 264.900 kr.
TILBOÐSVERÐ: 219.900 kr.
Þú sparar: 45.000 kr
ÞVOTTAVELAR
ÞURRKARAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
KÆLISKÁPAR
OFNAR - VIFTUR
HELLUBORÐ
Pottar
og pörtnur
25-40%
afsláttur
ORMSSON
1 LÁGMÚLA 8 • Sími 530 2800 2. SÍÐUMÚLA 9 ■ Simi 530 2800 3. SMÁRALIND Sími 530 2900 4. AKUREYRI • Sími 461 5000 5. KEFLAVÍK ■ Sími 421 1535 WWW.ORMSSON.IS