blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 35
blaöið LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006
35
deiglan
deiglan@bladid.net
Singer fær einkaleyfi
Þennan dag árið 1851 fékk bandaríski uppfinninga-
maðurinn Isaac Singer einkaleyfi á saumavélinni.
blNOtR
Orgeltónlist í
Hallgrímskirkju
Siðustu tónleikar Alþjóðlegs org-
elsumars í Hallgrímskirkju verða
á sunnudagskvöld.
Það er Eyþór Ingi Jónsson
sem mun slá botninn í þessa
glæsilegu sumardagskrá. Hann
er einn þeirra ungu efnilegu
íslensku organista sem eru að
Ijúka framhaldsnámi erlendis.
Eyþór Ingi er fæddur og uppal-
inn í Dalasýslu þar sem hann
hóf tónlistarmenntun sína sex
ára gamall. Hann nam siðar
orgelleik hjá Fríðu Lárusdóttur
við Tónlistarskólann á Akranesi.
Síðan lærði hann orgelleik,
kórstjórn og hliðargreinar við
Tónskóla þjóðkirkiunnar undir
leiðsögn Harðar Askelssonar,
Smára Ólasonar o.fl. Eyþór lauk
kantorsprófi frá skólanum vorið
1998. Hann nam siðan kirkju-
tónlist við Tónlistarháskólann
í Piteá í Svíþjóð og er nú við
nám í konsertorganistadeild í
sama skóla. Hann starfar nú
sem kórstjóri og orgelleikari við
Akureyrarkirkju samhliða námi.
Tónleikamir eru sunnudagskvöld-
ið 13. ágúst kl. 20.
Líf og fjör á
Seyðisfirði
Um helgina má búast við miklu
fjöri á Seyðisfirði en í dag hefj-
ast þar Norskir dagar. Þetta er í
tíunda sinn sem Norskir dagar
eru haldnir en nú er hátíðin
sérstaklega vegleg vegna þess
að í ár eru liðin 100 ár síðan
símasambandi var komið á við
útlönd. Seyðfirðingar munu taka
vel á móti gestum sínum að
vanda og er kjörið fyrir fjölskyld-
una að gera sér ferð austur og
njóta lífsins. Meðal annars er
hægt að skoða Tækniminjasafn
Austurlands, kíkja í kaffi í heima-
hús, hlýða á fjölbreytta tónlistar-
dagskrá og upplestur af ýmsu
tagi. Hátíðin verður sett (kvöld
kl 21 en þá verður einnig kerta-
fleyting á Lóninu til minningar
um látna Seyðfirðinga.
Nánari upplýsingar um dag-
skrána má finna á
www.seydisfjordur.is
Hildur Hákonardóttir listamaður
og ræktandi mun fræða fólk um
grasnytjar í Grasagarði Reykjavíkur
í Laugardal í dag. Hildur hefur langa
reynslu afþvi að nýta íslenskar jurtir
til matar Á síðasta ári gaf Hildur
út bókina Ætigarðurinn, sem er
handbók grasnytjungsins. Hildur
mun segja gestum frá því hvernig
hún nýtir kúmen, ætihvönn, kerfil,
túnfífil, njóla og skarfakál en allar
þessar jurtir finnast í safndeildinni
Flóra íslands.
„Villtu jurtirnar á Islandi nýt-
ast okkur mest á vorin en það eru
nokkrar undantekningar á því, t.d.
kúmenið. Kúmen er ein af fáum
plöntum sem fluttar voru til íslands
til ræktunar í görðum. Gísli á Hlíð-
arenda, sem var einn af fyrstu garð-
yrkjumönnum hér á landi flutti það
inn á 17. öld. Hann hafði dvalið lang-
dvölum erlendis og fékk áhuga á garð-
rækt í Hollandi. Hann gerði tilraunir
með margar tegundir jurta hér á
landi sem heppnuðust misjafnlega
en kúmenið stóð sig vel og fór meira
að segja að sá sér sjálft. Á árum áður
gripu húsmæður gjarnan til þess á
hátíðisdögum að bragðbæta kaffið
með kúmeni.
Ég hef alltaf kúmen við höndina
og i Grasagarðinum í dag mun ég
koma með uppástungur að nýtingu
á því.“
Tími og alúð lykilatriði
Hildur segir að um matjurtirnar
gildi annað lögmál en um hinar
villtu. „Við þurfum að bíða fram í
ágúst eftir flestum matjurtunum.
Þetta er sérstaklaga skemmtilegur
tími fyrir þá sem rækta matjurtir
því nú er tími kálsins og við bíðum
spennt eftir rófunum og kartöfl-
unum. Það er auðvitað misjafnt
hversu snemma fólk setur niður
og hversu vel fólk nostrar við græn-
metið sitt. Þeir sem eru sniðugastir
sá til kálsins tvisvar til þess að þeir
séu ekki allir tilbúnir á nákvæm-
lega sama tíma.“
Flestir eru farnir að hugsa betur
um heilsuna þessa dagana og þá
kemur sér vel að eiga ferskt og brak-
andi grænmeti í garðinum. Hildur
segir þessa ræktun alltaf hafa
gengið í bylgjum á íslandi. „Það er
margt sem spilar þarna inn í, t.d.
íslensk veðurfar. Svo er aðgengi að
grænmeti orðið mun betra en það
var áður og þægilegt að fara út í búð
og versla þar grænmeti. Það er þá
kannski viss freisting að vera ekkert
að rækta sjálfur. Svo þarf ákveðna
þekkingu til þess að stunda ræktun-
ina sem ekki allir búa yfir. íslenskt
grænmeti er nokkuð erfitt viður-
eignar og það þarf heilmikla þolin-
mæði ef vel á að takast til. Maður
þarf að gefa sér tíma og sinna því af
alúð líkt og ungabarni.“
Snigiar í skjóli nætur
Margir sem hafa reynt að rækta
grænmeti hafa orðið illilega fyrir
barðinu á alls kyns óværu á borð við
snigla og pöddur. Hildur hefur sjálf
ekki farið varhluta að því en allar
gulræturnar hennar urðu sniglum
að bráð. „Ég get reyndar ekki alveg
sannað að sniglarnir hafi verið að
verki en mér þykir það líklegast. Þeir
gera aðallega vart við sig á nóttunni
svo það er erfitt að fylgjast með þeim.
Að öðru leyti hef ég ekki orðið fyrir
barðinu á skordýrum í ár og snigl-
arnir hafa ekki sótt neitt í kálið.“
Áhugafólk um ræktun ætti ekki að
láta leiðsögn Hildar um Grasagarð-
inn fram hjá sér fara en hún lumar á
miklum fróðleik og skemmtilegum
sögum sem hún mun deila með
gestum í dag.
Fræðslan hefst hjá lystihúsinu í
dag kl. 11 og að henni lokinni verður
boðið upp á íslenskt jurtate.
EKKERT ER HÆTTULEGRA
EN MAÐUR SEM HEFUR ÖLLU AÐ TAPA.
FIREWALL 4
m ▼ # v
KDMIN I VERSLANIR
□ G Á LEIGUR DVD