blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR LAUGARDAGUR 12.ÁGÚST2006 blaAÍ6 Útblástur gróðurhúsalofttegunda á íslandi: Verða að draga úr mengun ■ Árni Finnsson segir álfyrirtæki verða að fara að notast við óvirk rafskaut ■ Heildarlosun Alcan á íslandi helmingi minni nú en fyrir átta árum Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Stóriðja veldur mestum útblæstri gróðurhúsalofttegunda á íslandi samkvæmt tölum frá Orkusetri. Eftir gangsetningu álversins í Reyð- arfirði og hugsanlega stækkun ann- arra álvera er áætlað að stóriðjan valdi útblæstri um 2.300 þúsund tonnum af gróðurhúsaloftteg- undum á ári hverju. „Þegar til lengri tíma er litið hljóta og verða álfyrirtæki að finna leiðir til að draga enn frekar úr losun sinni á gróðurhúsalofttegundum,“ segirÁrni Finnsson, formaðurNátt- úruverndarsamtaka íslands. „Það er spurning hvort að það taki fimm eða tíu ár, en þau verða að gera það. Tryggja verður að álfyrirtækin geri fullnægjandi ráðstafanir til að halda útstreymi flúorefna frá fram- leiðslunni í algeru lágmarki, en þau eru miög öflug gróðurhúsaloftteg- und. Alverinu í Straumsvík hefur tekist að minnka útblásturinn tölu- vert, en alltaf má gera betur.“ Árni segir að stjórnvöld geti ekki leyft mikið fleiri álver en komið er vegna Kyoto-bókunarinnar. „Það er í mesta lagi eitt lítið í viðbót, en síðan er það stopp. Næsta skref fyrir álfyrirtæki hlýtur að vera að fara að notast við óvirk rafskaut, en með kolarafskautin verður ekki komist hjá því að ákveðið magn af koltvísýringi og öðrum gróð- urhúsalofttegundum myndist í brunanum." Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Alcan, segir losun Álcan í Straumsvík hafa verið um 300 þús- und tonn á síðasta ári. „Það er um þriðjungur af útblæstri bílaflotans og fjórðungur minna en hjá land- búnaðinum. Heildarlosunin hefur dregist saman hjá okkur á undan- förnum árum en ekki aukist, þrátt fyrir aukna framleiðslu og raunar hefur stórkostleg minnkun orðið á losun gróðurhúsalofttegunda á hvert framleitt tonn. Losunin er því helmingi minni en hún var árið 1988 þótt framleiðslan hafi meira en tvöfaldast síðan þá.“ Að sögn Hrannars er Alcan stolt af þeim árangri sem náðst hefur og að starfsemi fyrirtækis- ins skipti miklu máli fyrir þjóð- félagið. „Raunar erum við fyrir- mynd margra annarra álvera í heiminum í því hvernig draga megi úr losun þessara lofttegunda í andrúmsloftið." Ingimundur Birnir, forstjóri Is- lenska járnblendifélagsins, segir að hugsa verði um útblástur gróð- urhúsalofttegunda í alþjóðlegu samhengi. „Landamæri hafa lítið að segja þegar kemur að útblæstri Íiessara lofttegunda. Stóriðja á slandi er mun skilvirkari og við skilum mun minna af koltvísýr- ingi út í andrúmsloftið á hverja framleidda einingu borið saman við annars staðar í heiminum," segir Ingimundur og bætir við að útblástur gróðurhúsalofttegunda sé óhjákvæmilegur fylgifiskur þessa iðnaðar. Að sögn Ingimundar er stöðugt verið að vinna að því að bæta tækn- ina. „Betri tækni þýðir minni út- blástur, auk þess að hagkvæmnin eykst. Forsendaþess að járnblendi er framleitt á Islandi er að við verðum að vera miklu skilvirkari, með hærra tæknistig og þróaðri framleiðslu en til dæmis verk- smiðja í Kína eða Rússlandi." Ef stóriðjuframleiðslan fengi orku úr kolaorkuverum er talið að útblásturinn myndi aukast um fimmtán milljón tonn og má segja að það sé hinn alþjóðlegi um- hverfisgróði við að keyra stóriðju á endurnýjanlegum orkugjöfum. Samkvæmt upplýsingum frá Orku- setri yrði útblásturinn frá Fjarða- áli 4,5 milljón tonn á ári fengi það orku frá kolaorkuveri, en til sam- anburðar var heildarlosun gróð- urhúsalofttegunda þrjár milljónir tonna á íslandi árið 2003. Tyax Comp B6' Alvöru fjallahjól á frábæru verði! 30% afsláttur Mannbjörg Björgunarmenn bjarga manm ur husi sem hrundi í Wenzhou. fimmta tug létust þará meöal átta börn. Veðurofsi í Kína: Mannskæður hvirfilbylur Fleiri en hundrað hafa farist í grlð- arlega miklum hvirfilbyli sem gekk yfir strönd Kína í gær og á fimmtu- dag. Á annað hundrað er saknað. Stormurinn er sá mesti sem veð- urfræðingar hafa mælt í fimmtíu ár. Vindhraði var 216 kílómetrar á klukkustund þegar hvirfilbylurinn tók land á fimmtudag og á sumum stöðum féllu um 50 sentímetrar af regni á fimmtán klukkustundum. Hátt í tvær milljónir manna þurftu að yfirgefa heimili sín vegna veðursins. Á fimmta tug manna létust þegar hús hrundi í vindhviðu í borginni Wenzhou sem er staðsett í austur- hluta Kína, rétt þar sem hvirfilbylur- inn tók land. Stjórnvöld segja að tæp sextíu þúsund hús hafi eyðilagst í veðurhaminum. Veður tók að lægja í gær en óttast er að fleiri hvirfilbylir taki land á næstunni. Níu hvirfilbyljir hafa gengið yfir Kína á þessu ári. Um sjö hundruð og fimmtíu manns hafa látist í storm- unum þrem og hátt í þrjú hundruð eru taldir afvegna aurskriða og flóða sem þeir hafa valdið. Samkvæmt hjálparstofnunum hafa tæplega tvö þúsund manns týnt lífi vegna veðu- rofsa í Kína á þessu ári.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.