blaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 21
blaðið LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2006
VIÐTALI 21
Omar Ragnars-
son sendi fyrr
í vikunni opið
boðsbréf til
ellefu einstak-
linga, þar á
meðalforseta fs-
lands, ritstjóra,
ráðherra og fjölmiðlamanna og bauð
þeim í útsýnisflug til Kárahnjúka
en það er svæði sem Ómar þekkir
kannski einna best allra íslendinga.
„Þessi hugmynd hafði lengi verið
að blunda í mér. Ég hef áður orðað
hana við sumt af þessu fólki en ég
ætla ekki að tilgreina hvaða fólk
það er,“ segir Ómar. „ í sumar hef
ég flogið með fleiri einstaklinga
um Kárahnjúkasvæðið en áður og
sumt af því hefur áður farið í hefð-
bundnar boðsferðir Landsvirkjunar
eða annarra fyrirtækja um sama
svæði. Þá varð ég varð við hvað eigin-
augum-heilkennið er sterkt í fólki.
Sumt af þessu fólki hafði kynnt sér
virkjunina býsna vel en það sem það
sá í boðsferðunum vék í burtu því
sem það raunverulega vissi. Ég get
nefnt sem dæmi að einn af elstu og
virtustu mönnum í blaðamannastétt
fór í svona hefðbundna boðsferð og
sagði eftir hana: „Nú er ég búinn að
skoða svæðið með eigin augum og
þarna er bara urð og grjót“.
Það sem mér þótti merkilegast
var að þessi fjölmiðlamaður vissi
að þarna var ekki bara urð og grjót
en hann sagði það samt. Þá^áttaði
ég mig á því að það er hægfáð fara
með fólk í ferð þar sem það sér með
eigin augum mjög rækilega aðra
hlið málsins en nánast ekkert hina
hliðina. Það myndar sér skoðun út
frá því sem það sér en ekki út frá
staðreyndum. Mér þótti athyglis-
vert að þessi reyndi fjölmiðlamaður
skyldi halda því fram að þarna
væri bara urð og grjót þegar það lá
fyrir í skýrslu sem hann hafði lesið
að þarna væru 40 ferkílómetrar af
grónu landi og megnið af því mjög
vel gróið land sem myndi fara undir
vatn. Þá gerði ég mér grein fyrir að
það að sjá með eigin augum víkur oft
öðrum rökum frá.
Ég veit um fólk sem hefur farið
og skoðað allt svæðið, en ekki bara
hluta af því, og er meðmælt virkjun-
inni. Ég virði það. Fjölmiðlamáður
hlýtur alltaf að sækjast eftir því að
fólk myndi sér skoðanir á þann hátt.
En það gera ekki allir. Það var ekki
fyrr en ég fór að ferðast með fólk sem
hafði bara farið hina hefðbundnu
leið sem farin er í boðsferðum að ég
áttaði mig á því að það vissi ekkert
um aðrar leiðir. Þegar menn fara í
svona boðsferðir þá eru þeir leiddir
um og leita ekki af eigin hvötum
eftir öðru en því sem þeim er sýnt.
Það er ástæðan fyrir því að ég er að
bjóða þessu áhrifafólki.“
Takmörkuð fjölmiðlun
Hverju viltu ná fram með því að
bjóða þessu áhrifafólki í útsýnisferð
til Kárahnjúka?
„Ég vil að þetta fólk geti sagt að
það hafi kynnt sér svæðið með eigin
augum, jafnvel frá báðum hliðum.
Ég tel að opinbert fyrirtæki eins og
Landsvirkjun hafi aðrar skyldur en
einkafyrirtæki. Ef einkafyrirtæki
ætti í hlut væri það bara þess mál
hvernig það kynnti starfsemina en
þjóðin á Landsvirkjun. Ég tel að
Landsvirkjun hafi ekki rækt skyldur
sínar sem opinbert fyrirtæki, ann-
aðhvort meðvitað eða ómeðvitað.
Fyrir fjölmiðlamanninn skiptir ekki
nokkru máli hvort hann er persónu-
lega í einrúmi með eða á móti þesari
virkjun. Ég er bara á móti svona tak-
markaðri fjölmiðlun.“
En þú ert á móti virkjununni, er
það ekki?
„Það hefur aldrei legið fyrir.“
Margir telja að svo sé.
. „Fólk getur talið það sem það vill.
Fram að þessu hefur starfsferill
minn verið f fjölmiðlum. Á sínum
tíma þegar Blöndulón var gert
hafði ég ákveðna skoðun á þeirri
framkvæmd. Ég ætla ekki að segja
frá því hver hún var. En þegar Blön-
dulón var gert hvarf sá staður sem
einna frægastur er úr íslenskum
skáldskap: „Greiddi ég þér lokka við
Galtará...“ Það er ekki til nein mynd
af Galtará, staðnum þar sem Jónas
Hallgrímsson greiddi elskunni sinni.
Ég spyr: Var það góð fjölmiðlun að
taka ekki mynd af þeim stað og varð-
veita hann þannig, þótt honum væri
sökkt? Lærdómurinn sem ég dró af
Blönduvirkjun var sá að fjölmiðlunin
yrði að vera betri næst. Ég sagði við
sjálfan mig: „Bíddu við, þú gerðir of
lítið. Þú fórst aldrei að Galtará til að
mynda landslagið áður en það hvarf.
Þú sýndir þjóðinni ekki nægilega
hvernig landið var fyrir virkjun og
hvernig það varð á eftir. Ég hefði líka
viljað sýna þjóðinni betur hvernig
mannvirkin voru. Nú langar mig til
að sýna þetta frá báðum hliðum varð-
andi Kárahnjúkavirkjun."
Þjóðin og iandið
Erþetta starfþittþáttur í ástþinni
á íslenskri náttúru?
„Þetta er ekki rétt nálgun. Rétta
hugsunin á mína nálgun er: Ég er
fjölmiðlamaður sem fjallar fýrst og
fremst um fólk. Það vill bara svo til
að fólkið í þessu landi er afar mikið
tengt landinu. Landið er aukaatriði
fýrir mér. Fólkið er aðalatriðið fýrir
mér. Það er líðan fólksins í samþúð-
inni við landið sem skiptir mig öllu
máli. Það hvernig upp umgöngumst
landið sem fólk, hvernig við upp-
lifum landið sem fólk og hvernig við
nýtum það sem fólk. Það er okkar
.í-ff?Í' i
fffií
Optiflex
Rafstillanleg
80x200
nú kr. 84.510-
90x200 áður 48.300.- / nú 37.315.-
120x200 áður bö.320.- I nú 47.770.-
140x200 áður 60.000.- / nú 51.000,-
160x200 áður 72.300,- / nú 61.965.-
,Fyrir fjölmiðlamanninn
skiptir ekki nokkru máli
hvort hann er persónu-
lega i einrúmi með eða
á móti þesari virkjun. Ég
er bara á móti svona tak-
markaðri fjölmiðlun."
eigin samviska og okkar eigin líðan
sem er aðalatriðið. Ég minni á að
dýraverndun er talin mannúðarmál
en það er ekki bara líðan dýranna
sem skiptir máli heldur okkar líka.
Ég hef oft rekið mig á það að fólk
metur landgæði eftir því hvort það
þekkir viðkomandi svæði eða ekki.
Þess vegna létu þúsundir manna
sig það varða hvort Landssíminn
fengi græna lóð við Glæsibæ og
skrifuðu undir mótmælaskjal. Svo
koma helstu ráðamenn þjóðarinnar
og segja að Eyjabakkar og Dimmu-
gljúfur skipti litlu máli vegna þess
að það enginn þekki þá staði nema
Ómar Ragnarsson og nokkrir aðrir
sérvitringar. Einn ráðamaður sagð-
ist hafa haldið að Eyjabakkar væru
bara gata í Breiðholtinu. Fjölmiðla-
maður hlýtur alltaf að taka því með
fyrirvara að meta eigi hluti út frá því
hvort allir gangi daglega fram hjá
þeim.
Ef það hefði átt að sökkva Land-
mannalaugum og Jökulgili fyrir sex-
tíu árum hefði ég unnið að þvf máli
nákvæmlega eins og ég hef verið að
Framhald á næstu síðu
Tilboðsdaga
Caleido
Stærð 205x270 cm
TILBOÐ kr.145.000
O______
Eikarllna
Korfu
2+H+2 / 196x196 verð 99.000,-
3+H+2 / 196x242 verð 109.000,-
Mikið úrval af stökum dýnu\
í
/
/
HÚSGAGNAVERSL
TOSCAN
SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 l
HÚSGÖQNIN FAST EINNIG IHÚSGAGNAVAL, HÖFN 8; ‘