blaðið - 12.08.2006, Síða 16

blaðið - 12.08.2006, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 12.ÁGÚST2006 blaðiö Hver er Ég á mér draum sagði Martin Luther King þegar hann barðist fyrir réttindum þeldökkra Bandaríkja manna. Flestir eiga sér draum, persónulegan eða fyrir umhverfi sitt. Blaðið leitaði til nokkurra val- inkunnra íslendinga ogfékk þá til að segja sérfrá draumum sínum. Draumar geta raest Já hver er hann? Draumar eru í senn einfaíd- ir og margslungnir. Ég hef átt marga drauma í gegnum tíðina og sumir hafa ræst og aðrir eldci eins og gengur. Allar konur þekkja draum- inn um að eignast barn, hann rættist og þá fara draumarnir að snúast um þeirra gæfu og gjörvuleika, þeirra vellíðan og aðstæður, þeirra takmark og þeirra drauma. Stuðla að því að þeirra draumar rætist. Draumurinn um að þau lifi sátt við sjálfan sig og sína drauma. Stóru draumarnir um betra samfélag fyrir alla er alltaf nálægur, svo nálægur að maður hellir sér út í það að reyna að láta það rætast. Hellir sér út í baráttu fyrir réttlæti handa mann- eskjum, að þær séu virtar að verðleikum, að samfélagið sinni þörfum þeirra sem minnst mega sín. Að draumurinn um jöfnuð, réttlæti og frið verði að raunveruleika í þessum harða heimi. Það er langt í friðardrauminn með öllum þeim ógnum sem nú steðja að, því mið- ur, en það er ekki þar með sagt að við eigum að leggja upp laupana og hætta að láta okkur dreyma, af og frá, við eigum að láta hætturnar, ófriðinn og ógnirnar styrkja okkur enn ffekar í baráttunni fyrir friði. En réttlæti og jöfnuður er ekki óraunhæfur draumur, við eigum að taka þátt í því að láta hann rætast. Og af því í dag, og þessa síðustu daga hafa verið Hinsegin dagar í Reykjavík þá á ég mér þann draum að Frítt flug fyrir ísraelsmenn Guörún Ögmundsdóttir, alþingismaður Það sem mig dreymir um þessa dagana er að íbúum Ísraelsríkis, öllum með tölu, verði flogið til miðríkja Bandaríkjanna, þeim að kostnaðarlausu, og þeir verði kyrrsettir þar innan öflugrar rafmagnsgirðingar, en fái að öðru leyti að njóta sömu réttinda og aðrir Bandaríkjamenn. Þá dreymir mig einnig um að íslendingar og aðrar þjóðir í heiminum sem hafa lagt af dauðarefsingar, segi tafarlaust upp stjórnmála- og varnarsamningum við Bandaríki Norður-Ameríku, á meðan Banda- ríkjastjórn hefur beinlínis á stefnu sinni að ögra og grafa undan þeirri siðmenningu sem við höfum komið okkur upp. Ég veit að ég fer á mikið, en sjaldan í mannkynssögunni hefur ein þjóð farið fram á eins mikið af ann- arri þjóð og Bandaríkin/Ísrael ætlast til af um- heiminum um þessar mundir. hommar og lesbíur öðlist fullan rétt á öllum sviðum til jafns á við okkur. Sá draumur hefur ræst að stærstum hluta, - segið svo að draumar rætist ekki, en enn á kirkjan eftir að vinna sína heimavinnu, og ég á mér þann draum að hún vinni hratt og vel og bjóði alla velkomna á sinn fund, til þess að staðfesta samvist sina og ást. Ég held að sá draumur muni rætast, vittu bara til. Og áfram læt ég mig dreyma um réttlæti frið og jöfnuð. Draumargeta nefnilega ræst. Bragi Ólafsson rithöfundur Friðsæl framtíð Tólf núll eru ekki algeng úrslit í fótboltaleik, raunar fáheyrt burst. Tólf núll í lok upphæðar er hins vegar svo svimandi há tala að vonlaust er að skilja hana - hún hefur enga merkingu í huga okkar frekar en vegalengdir milli reiki- stjarna. Reynum samt að átta okkur á tölunni 65.000.000.000.000. Þetta er sú upphæð sem þjóðir heims eyða í vopn á ári hverju, talið í íslenskum krónum. Þessi gegndarlausa sóun viðgengst í heimi þar sem stór hluti mannkyns sveltur, fellur fyrir sjúkdómum sem hæglega mætti lækna og nýtur engrar skólagöngu. Eins og þetta sé ekki nóg, valda stríð og vopnaátök ómældum þjáningum, oft á fátækustu svæðum jarðar. Stríð geysa nú í um þrjátíu löndum og enn víðar er ástandið ótryggt. Engum blöðum er að fletta um að hagsmunir vopnaframleið- enda kynda undir ófriðarbálinu á þessum stöð- um. Draumurinn er sá að þetta breytist. Að þjóðir heimsins sameinist um að hverfa af vegi þessarar gegndarlausu sóunar. Friður verður ekki tryggður með vopnum. Þótt útgjöld til her- mála séu einatt réttlætt með vísun til friðar og öryggis hljóta þau að leiða til hins gagnstæða. Því fyrr sem leiðtogar heimsins viðurkenna þessi einföldu sannindi, því fyrr getum við horft fram á friðsæla og lífvænlega framtíð.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.