blaðið - 12.08.2006, Side 22

blaðið - 12.08.2006, Side 22
22 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST2006 blaðið A „Mér þótti athyglisvert að þessi reyndi fjölmiðlamaður skyldi halda því fram að þarna væri bara urð og grjót þegar það lá fyrir í skýrslu sem hann hafði lesið að þarna væru 40 ferkílómetrar af grónu landi og megnið af því mjög vel gróið land sem myndi fara undir vatn." gera varðandi Kárahnjúkavirkjun. Eg hefði fjallað um sjónarmið með og á móti því að virkja þar. Fyrir sextíu árum höfðu mjög fáir komið á þessa staði nema smalamenn og nokkrir jarðfræðingar. Þjóðin vissi ekkert hvað Landmannalaugar eða Jökulgil var. Ef það hefði verið sagt við mig á þeim tíma: „Ómar, þú átt ekki að fjalla um þessi svæði vegna þess að það þekkir þau enginn“ þá hefði ég sagt: „Það er einmitt þess vegna sem ég á að fjalla um þessa staði“. Samkvæmt þeirri hugsun að ekki eigi að fjalla um aðra hluti en þá sem allir þekkja þá væri fjölmiðlun í miklum ógöngum ef aldrei mætti upplýsa um mál vegna þess að eng- inn vissi um þau. Ég er núna að leita að aðstoð- armönnum við verkefnið Örkin. Það stendur til að loka hjárennslis- göngum undir Kárahnjúkastíflu og láta Jöklu, aurugasta fljót landsins, fylla Hjalladal fyrir innan stífluna með vatni og leðju, sem um síðir mun fylla dalinn. Ég ætla að sigla eftir lón- inu. Á hverjum degi myndast nýtt landslag sem aldrei hefur áður sést og mun hverfa jafnvel sama daginn og sjást aldrei aftur. Þetta ætla ég að mynda dag frá degi og senda dagíega út á vefsíðu. Ég á eftir að sjá að þetta gangi upp en ég stefni að þessu. Þeir sem veita mér aðstoð við þetta verkefni vilja flestir að ég upp- lýsi ekki hverjir þeir eru. Þeir vilja ekki láta vita af því að þeir komi ná- lægt því. Að sumu leyti finnst mér ég hvað eftir annað rekast á það að ég sé að vafra um i mínu starfi eins og holdsveikur maður. Það sem hefur háð starfi mínu hvað mest er þrýstingur frá öðrum. Menn eru að segja mér að það sé svo mikil áhætta fyrir mig að fjalla um þessi mál. Mér finnst það einkennilegt hugarfar í þjóðfélagi sem á að vera opið og lýðræðislegt. Jú, jú, ég tapaði öllum eigum mínum vegna þess að ég tók áhættu á sínum tíma. En ég var alveg reiðubúinn að taka þá áhættu.“ Hvert augnablik blífur Hvað varð til þess að þú varðst svo- til eignalaus? „Myndin Meðan land byggist kost- aði mig mikið og þar var stysti listi yfir kostunaraðila sem hefur birst í nokkurri heimildarmynd. Þeir voru tveir. Annar var einstaklingur sem lagði fram 400.000 krónur. Hitt var bifreiðaumboð sem lagði fram 200.000 krónur. Búið! Ég hef haldið áfram að gera myndir. Ég hef fengið nokkra styrki út á þær sem er ein- ungis upp í hluta af kostnaðinum sem ég hef lagt í. Þannig að ég held alltaf áfram að vera jafn eignalaus og „Ég er alltaf aö reyna að hugsa fram 1 tímann og þá líður mér betur í núinu þótt ég sé kannski að ganga í gegnum hremmingar." ég var og mér er alveg nákvæmlega sama. Ég hangi á því að eiga þennan flugvélagarm sem ég á og nokkra jepparæfla sem mér eru nauðsyn- legir til að komast um. En ég stend ekki einn. Konan mín stendur með mér. Ég skil eiginlega ekki úr hverju hún er gerð að hafa getað staðið með mér í gegnum allt þetta. Ég dáist að henni og er henni þakklátur því hún á heimtingu á allt öðru frá mér. En þetta er hugsjón og hún gerir sér grein fyrir því. Þetta tekur á. Þannig er það bara.“ Hefurðu aldrei séð eftir að fara þessa leið sem þúfórst? „Nei. Það er hvert augnablik sem blífur. Fortíðinni getur maður ekki breytt. Ég tel að við ættum að hugsa um það að líðan okkar í augnablik- inu getur ráðist af því hvort við hugsum fram í tímann. Ég er alltaf að reyna að hugsa fram í tímann og þá liður mér betur í núinu þótt ég sé kannski að ganga í gegnum hremm- ingar. Vonin er sú að ég og afkom- endur mínir hafi betri samvisku vegna þess sem ég hef gert og að okkur líði betur síðar. Á því byggist þetta starf.“ Þú ert fyrst og fremst að sinna því sem þér finnst vera skylda fjölmiðlamanns? „Fram að þessu hefur það verið svo, hvað sem síðar verður. Ég var bara tíu ára gamall þegar mig langaði til að fara í pólitík. I áratugi hef ég staðið frammi fyrir því vali hvort ég ætti að fara í pólitík.“ Ertu að hugsa um það? „Ég hef alltaf verið að hugsa um það. En það verður varla neitt úr því úr þessu. Ég get bara sagt þér að ég veit að það er líf handan við fréttamennskuna." Áhugi þinn á flugi og ferðalögum, tengist hann frelsistilfinningu? „Símaskráin var ein fyrsta opinber- unin í mínu lífi. Þar sá ég Islandskort þegar ég var smástrákur. Svo er ég af jarðýtukynslóðinni. f sveitinni dund- aði ég við að stífla læki, búa til virkj- anir og leggja vegi. Það var mín æska. Ég bjó til í huganum sérstakar sögur af sátubotnum. Ég ímyndaði mér sátubotna sem voru nálægt Álfta- vatni sem heimkyni mitt. Þar um hlaðið lægi vegurinn sem ég var að leggja og þar gerðust miklir atburðir og bílar lentu í vandræðum vegna ófærðar á vetrum. Ég spann upp í hugarheimi mínum margar sögur. Sjö ára gamall var ég farinn að ferð- ast i huganum. Flugin og ferðalögin voru eðlilegt framhald af því. Það var eitthvað í mínu eðli sem knúði mig til að skoða heiminn. Meðan ég var krakki og gat ekki skoðað heim- inn með því að ferðast þá var ég að skoða heiminn á minn hátt í hug- anum. Skoða heiminn og skoða fólk og skoða lönd. Það hefur verið mín ástríða frá því ég man eftir mér.“ kolbrun@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.