blaðið - 12.08.2006, Side 38

blaðið - 12.08.2006, Side 38
38 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST2006 biaöiö HVAÐ FINNST ÞER? Er ekki betra að læknar fari á Litla-Hraun en fangar á sjúkrahús? folk@bladid.net „Églteld að þad væri miklu skárra. Læknar gætu þá skoðað ntarga teinu Geir Jón Þórisson, yfirlögregln- þjónn hjá lögreglunni í Reykjavík Hilmar Ragnarsson, fangi á Litla-Hrauni, náði að strjúka síðastliðinn þriðjudag þegar hann var færður til læknis i Lágmúla. Lögreglan leitar enn að Hilmari. Smáborgarinn HRYÐJUVERKA- GABB? Smáborgarinn er ekki mikill efa- semdarmaður. Yfirleitt trúir hann því sem honum er sagt, að fólk sé í eðli sínu gott, að himininn sé blár og Guð sé til. Smáborgarinn fann ekki fyrir hræðslu þegar hann heyrði að breska lögreglan hefði komið í veg fyrir stórtæka hryðju- verkaárás þar sem áætlað var að sprengja hátt í tíu flugvélar í loft upp. Þvert á móti fann Smáborg- arinn fyrir vantrú og efasemdum, getur þetta virkilega verið satt? Var þetta kannski bara ráðabrugg runnið undan rifjum Tony Blair og George Bush. Embætti Banda- ríkjaforseta hefur oft verið tengt við samsæri af alls kyns tagi þó fæst þeirra hafa sannast. Hver kannast ekki við þá sögu að Bandaríkjamenn hafi aldrei lent á tunglinu og að John F. Kennedy hafi verið myrtur af CIA. Undanfarið hafa bresk stjórn- völd ýjað að því að töluverð hætta sé á hryðjuverkaárásum í Bretlandi. Síðasta miðvikudag lét John Reid innanríkisráðherra hafa Embætti Bandaríkja- forseta hefur oft verið tengt við samsæri af alls kyns tagi þó fæst þeirra hafa sannast. eftir sér að sú ógn sem steðjaði að Bretlandi í dag væri sú mesta síðan í seinni heimsstyrjöldinni. At- burðir fimmtudagsins gætu hafa gert hann að spamanni. Nema hann hafi vitað eitthvað sem við hin vissum ekki. Ljóst er að Tony Blair og George Bush verða sífellt óvinsælli vegna stríðsreksturs þeirra. Andstaða fer vaxandi. Þó er líklegt að sú andstaða fari dvínandi eftir atburði síðustu daga og að sama skapi má búast við að vinsældir Tony Blair og George Bush aukist. Eins er líklegt að friðhelgi einkalífsins verði skert enn meira í kjölfar nýlegra atburða. Friðhelgi einkalífsins hefur nú þegar verið skert umtalsvert eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum árið 2001. í skugga óttans hefur almenningur litið fram hjá því að stjórnvöld leyfa sér sífellt meira á kostnað hins almenna borgara. Smáborgarinn efast ekki um að forsætisráðherra Bretlands og for- seti Bandaríkjanna gætu skipulagt og framkvæmt samsæri af þessari stærðargráðu. Hvort þeir gerðu það er hins vegar annað mál. BlaliS/Steinor Hugi Allt annað líf Katrín Júlíusdóttir þingkona segir að hún finni mjög mikinn mun á sér eftir að hún hóf að stunda reglulega Ifkamsrækt, hún sé hressari, sprækari og orkumeiri. ■ Tómstundirnar minar Einkaþj álfar inn bjargaði lífi mínu Katrín Júlíusdóttir er annasöm kona enda er seta á Alþingi íslend- inga fullt starf og gott betur. Þrátt fyrir annir í stjórnmálum hefur hún einnig tíma til að sinna öðr- um áhugamálum og segir Katrín að þessa dagana eyði hún miklum hluta af frítíma sínum í hreyfingu og líkamsrækt. „Ég fer mjög mikið í ræktina og er þar bæði undir leiðsögn einkaþjálf- ara og á eigin vegum. Einkaþjálfar- inn minn, Elmar Eliasson í Sport- húsinu, bjargaði lífi mínu og kom mér á rétta sporið,“ segir Katrín og bætir við að hún eigi honum mik- ið að þakka. „Fyrir utan ræktina er ég að fara að prófa skvass sem er víst rosalega gaman auk þess sem ég geng mikið og hjóla svo nokkuð sé nefnt.“ Líkamsklukkan verður virkari Katrín segir að líkamsræktin hafi beinlínis gefið lífi hennar nýtt gildi og hún finni mjög mikinn mun á sér fyrir og eftir að hún hóf að hreyfa sig reglulega. „Maður er miklu léttari. Það er eins og líkams- klukkan verði virkari. Maður vakn- ar hressari og sofnar betur. Maður fær aukinn kraft og er miklu hress- ari og sprækari og orkumeiri þann- ig að ég mæli hiklaust með þessu.“ Gerði bókstaflega ekki neitt Katrín segir að hún hafi hreyft sig mikið þegar hún var yngri og stundað íþróttir en síðan hafi það dottið niður. „Það komu nokkur ár þar sem ég gerði bókstaflega ekki neitt, að minnsta kosti ekki með reglubundnum hætti. Ég taldi mér einhvern veginn trú um að ég hefði ekki tíma í þetta en svo átti ég fullt af tíma þegar ég fór að skoða það betur,“ segir Katrín Júlíusdóttir að lokum. SU DOKU talnaþraut Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hvertala komi ekki nema einu sinni fyrir I hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers nfu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 5 3 9 1 6 3 2 4 5 6 8 1 4 9 3 6 8 2 1 5 8 9 7 2 4 8 3 7 2 9 4 2 1 8 6 7 5 4 2 3 9 2 9 7 6 3 1 4 5 8 3 4 5 2 8 9 1 6 7 6 1 2 3 9 5 7 8 4 4 3 8 1 2 7 5 9 6 5 7 9 8 4 6 3 1 2 7 5 1 4 6 8 9 2 3 8 2 4 9 1 3 6 7 5 9 6 3 5 7 2 8 4 1 10-16 © Jim Unger/díst. by United Media, 2001 HEYRST HEFUR... Qigurður Einarsson, stjórnar- Oformaður Kaupþings, skrifar greinámiðopnu í Morgunblaðið í gær og svarar fullum hálsi þeim, sem gagnrýnt hafa undursam- leg launakjör helstu berserkja bankakerfisins og víkinga viðskiptalífsins. Er staðsetning- in við hæfi, því Morgunblaðið hefur mjög beitt sér í málinu og fundist hinn mikli launamunur landsmanna óþolandi. Sigurður er efins um nytsemi og siðferði sérstakra laga til þess að stemma við launaþróuninni, t.d. með lögbundnum hámarkslaun- um. Athygli vekur að Sigurður nefnir 1.636.000 krónur á mán- uði sem hugsanlegt hámark í því og lesandinn veltir því auðvitað fyrir sér af hverju sú upphæð er nefnd öðrum fremur. Svarið fá menn ef þeir fletta launablaði Frjálsrar verslunar og gá að ætluðum launatekjum Styrmis Gunnarssonar, rit- Stjóra Morgunblaðsins... (ólitísk viðtöl Helga Seljan í Pressunni á NFS hafa vakið verðskuldaða athygli, en á morgun verður það Steingrím- ur J.Sigfússon, leiðtogi stjórn- arandstöðunn- ar, sem Helgi hyggst þjarma að. Sjálfsagt verður vegferðin að komandi kosning- um rædd sérstaklega, hvort kenningin um parhúsið á vinstri vængnum standist og hvort Vinstri grænir nái að uppskera gott gengi í skoðanakönnunum betur en í síðustu kosningum... A furbloggarinn Össur Skarp- Vv héðinsson er kominn heim suður um höfin af sólgylltri strönd og er tekinn til við að greina stjórnmálaviðhorfið (oss- ur.hexia.net). í gær fjallar hann í botnlausu háði um um lunda- veiði Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra sem gætti þess ekki að veiði- kort þarftil þess að drepa hvers konar villtdýr, að rottum og mú- sum undantekn- um. Össur telur víst að herra Ólafur Ragnar Grímsson veiti Einari forsetanáðun ef eftir verð- ur leitað en Össuri er máhð skylt því það var í ráðherratíð hans í Umhverfisráðuneytinu sem veiðikortin voru upp tekin... Forystukosningar framsókn- armanna verða um næstu helgi. Þótt sumum þyki fr am- boð Sivjar Friðleifsdóttur seint fram komið telja margir að hún muni veita Jóni Sigurðssyni harða samkeppni og engin leið að segja fyrir um úrslitin. Eins eru menn ekki vissirumvarafor- manninn. Fyrir nokkrum vikum þótti mönnum ljóst að Guðni Ágústsson færi létt með að leggja Jónínu Bjart- marz en annað kann að verða upp á teningnum. Jónína hefur verið feikidugleg í sinni baráttu meðan Guðni þykir varla hafa gerthandtak... andres.magnusson@bladid.net Má ég borga þér á föstudag?

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.