blaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 39
blaðiö
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 3 9
SVANDlS RAGNA DAÐADÚTTIR
1. Hvað merkir málslrátturinn: Oft veltir
litil þúfa þungu hiassi?
Ég held að það þýði að eitthvað lítið geti
orðið stórt.
2. Hvað heitir menntamálaráðherra?
Siv Friðleifsdóttir
3. Hvað heitir höfuðborg Egyptalands?
Veit það ekki
4. Hver skrifaði Pride and Prejudice?
Pass
5. Hver fann upp Ijósaperuna?
Isaac Newton
RAKEL BJÖRK PÉTURSDÓTTIR
1. Hvað merkir málshátturinn: Oftveltir
lítil þúfa þungu hlassi?
Hef ekki hugmynd
2. Hvað heitir menntamálaráðherra?
Pass
3. Hvað heitir höfuðborg Egyptalands?
Veit það ekki.
4. Hver skrifaði Pride and Prejudice?
Hef ekki hugmynd
5. Hver fann upp Ijósaperuna?
Pass
SINDRIJENSSON
1. Hvað merkir málshátturinn: Oft veltir
litil þúfa þungu hlassi?
Að eitthvað lítiö verður að einhverju stóru
2. Hvað heitir menntamálaráðherra?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
3. Hvað heitir höfuðborg Egyptalands?
Pass
4. Hver skrifaði Pride and Prejudice?
Pass
5. Hverfann upp Ijósaperuna?
Edison
DfANA ÍRIS GUOMUNDSDÓTTIR
1. Hvað merkir málshátturinn: Oft veltir
litil þúfa þungu hlassi?
Að eitthvað lítið verður að einhverju stóru
2. Hvað heitir menntamálaráðherra?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
3. Hvað heitir höfuðborg Egyptalands?
Pass
4. Hver skrifaði Pride and Prejudice?
Pass
5. Hverfann upp Ijósaperuna?
Edison
FJÓLA HEIÐDAL
1. Hvað merkir málshátturinn: Oft veltir
lítil þúfa þungu hlassi?
Litlir hlutir geta orðiö að stórum
2. Hvað heitir menntamálaráðherra?
Pass
3. Hvað heitir höfuðborg Egyptalands?
Veit það ekki
4. Hver skrifaði Pride and Prejudice?
Pass
5. Hver fann upp Ijósaperuna?
Edison
uosjpg ba|\/
seuioiji 'S ua;snv euer ‘fr ojiex ■£ jmgp
-sjeuuno uiJiex jngjaBjOt) z sejeQjnqie
jjjæ]S J3S ie J!Q|3| jnQjnqie ||!in 'i :joas
Stjörnustælar
Fyrr í vikunni var greint frá því í frétt, að sið-
ustu helgi hefðu þau undur og stórmerki átt
sér stað að billjóner islands, Björgóifur sæti,
skellti sér á R&B-kvöld á einum skemmti-
staða miðbæjarins. Urnrætt kvöld var
undirrituð að hrista skankana á „dansgólf-
inu“ einmitt á þessum sama stað. i fréttinni
var einnig minnst á, að eitthvað í líkingu
við múgæsingu hefði myndast hjá gæsum
þessa lands við að berja peningamaskínuna
augum. Sem er kannski alveg skiljanlegt.
Nema þegar litið er til þess að við erum á
Islandi. Hingað kemur hver stórstjarnan
á fætur annarri og alltaf er talaö um hvað
íslendingar eru þægilegir, og fræga fólkið
virðist fá að vera nokkurn veginn í friði til
þess að upplifa land og þjóð. Hr. Costner
kemur hingað í fiskirí, okkar eigin Björk
trítlar um skemmtistaði borgarinnar nokkuð
óáreitt. Hr. Dillon kom hér og tjúttaði með
okkur eina helgina og svo mætti lengi telja.
En þegar Björgólfur Thor bregður fyrir sig
betri fætinum og dillar sér við Snoop Dogg,
þá verður ailt vitlaust. Fyrrnefnt kvöid var ég
sem sagt stödd á þessum ágæta skemmti-
stað, búin að hertaka dansgólfið, og meðan
barferðir voru farnar hitti ég mann og
annan sem höfðu skoðun á útliti mínu eöa
takthæfileikum. Meðan ég dansaði, lesist:
stóð í þéttri, svitastorkinni þvögunni og lét
mig berast með rassaköstum annarra, varð
ég alls ekki vör við Hr. Bjögga Billa koma, sjá
og sigra hjörtu meyjanna með tilheyrandi
múgæsingi. Sá hins vegar annan fótbolta-
tvíbbann af Skaganum sem stóð óáreittur
við barinn.
Er þetta ekki talandi dæmi um hugsunar-
hátt okkar Islendinga. Við kippum okkur
ekkert upp við það þó einhverjar vestanhafs
stórstjörnur komi hingað, skoði skemmti-
A kassanum
Anna Þóra Kolbeinsdóttir
staði og veiði(h)ár landsins. Bara af því að
einhverjum tókst að halda andliti nógu lengi
til að senda frá sér eins og eina kvikmynd
eða geisladisk þýðir það ekki að við ætlum
að láta nappa okkur á því að láta eins og
stjörnubarðir smáhvolpar með tilheyrandi
flaðri. En, peningar, já þá skulum við nú
taka ofan og tryllast öll saman. Eina leiðin
til að við íslendingar sleppum hendinni af
okkar margfræga cool-i, er ef að við hittum
einhvern sem getur búið til peninga úr engu.
Hugurinn ferðast til sápunnar sem við getum
kallað ríkisstjórn (slands vs. Baugur. Sú
sería er nú búin að halda áhorfi nógu lengi
og ekki halda að við greiðum ekki afnota-
gjöld af þeim raunveruleikaþætti. Nei, kvik-
myndastjömur, tónlistarmenn og aðrir lista-
menn, hér á íslandi getið þið óáreitt notið
frísins. Okkar stórstjörnur eru bissnesfólk.
Og hver veit, kanski hefði mér ekkert þótt
athugavert við þetta ef ég hefði tekið eftir
honum sjálf. Kannski er ég bara öfundsjúk
af því að á meðan svíinn Krister tjáði mér í
of löngu máli aðdáun sína á íslenskri tungu,
íslensku landslagi og íslensku kvenfólki, var
alvöru biljóner, rétt handan við hornið.