blaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006
blaöið
Ármann Kr. Ólafsson,
stjórnarformaður Strætó bs.
f gær var birt stjórnsýsluúttekt Deloitte á starfsemi Strætó bs. og þar er
gagnrýnt að ekki sé til nein stefnumótun. Samkvæmt því er óljóst hvert
eigendur þess vilji stefna.
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er óljóst hvert strætó
er að fara?
„Nei, það er alls ekki óljóst enda stendur
það framan á vögnunum."
HEYRST HEFUR...
Jakob Frímann Magnússon
er í miklu stuði þessa dagana
en hann berst um þriðja sæti á
framboðslista
Samfylkingar-
innar í Suðvest-
urkjördæmi á
móti Tryggva
Harðarsyni
Hafnfirðingi
með meiru. Jakob hefur
ráðið kosningastjóra en það
er Hildur Guðmundsdóttir,
dóttir Guðmundar Árna
Stefánssonar, sem einnig er
mætur Hafnfirðingur. Sumir
kannast kannski við Hildi úr
veðurfréttunum á Popptíví
sælla minninga en Hildur var
þá fyrsti og eini veðurfrétta-
maður landsins sem átti það
til að fækka fötum og reyndar
klæða sig í eftir því hvort hita-
tölurnar sýndu mínus eða plús.
Nú er bara að sjá hvort Hildur
sýni sömu takta eftir því hvort
fylgi Jakobs fari upp eða niður.
Sumir hlutir virðast vera
stimplaðir i huga þjóðar
eins það að Davíð Oddson
sé enn þá
forsætisráð-
herra en ekki
:/\ v £ Seðlabanka-
- * —' stjóri og
Geir Haarde
sé utan-
ríkisráðherra eða jafnvel
fjármálaráðherra. Eins virðist
erfitt að venjast þeirri hugsun
að Eiður Smári spili með öðru
liði en Chelsea. En á dögunum
mættust Barcelona, liðið sem
Eiður spilar með í dag, og hans
gamla lið Chelsea á Stamford
Bridge. Eitthvað virðist vefjast
fyrir blaðamanni Fréttablaðs-
ins með hvaða liði Eiður spilar
en á forsíðu blaðsins í gær er
sagt að Eiður hafi verið í byrj-
unarliði Chelsea. Eins virðast
áhangendur Chelsea eiga erfitt
að sætta sig við breytingarnar
þar sem þeir hvöttu kappann
þrátt fyrir að hann hafi spilað
í hinu liðinu.
Sannkallað afmælisár
haldið hátíðlegt
Eric Guðmundsson prestur í að-
ventistasöfnuðinum í Reykjavík
ætlar að eyða helginni við afmæl-
ishöld en aðventistasöfnuðurinn
heldur upp á hundrað ára afmælið
sitt á morgun.
„Aðventistasöfnuðinn í Reykja-
vík var stofnaður 1906 og árið er
sannkallað afmælisár. Hápunktur-
inn á afmælishöldunum verður nú
á laugardaginn og hefst dagskráin
klukkan tíu með bíblíurannsókn
og síðan verður guðsþjónusta
klukkanellefusemverðurútvarpað
í Ríkisútvarpinu á sunnudaginn.
Klukkan fjögur verður síðan
boðið til hátíðardagskrár með fjöl-
breyttri tónlist, stuttum ávörpum
safnaðarmeðlima, fulltrúa þjóð-
kirkjunnar, annarra trúfélaga, full-
trúa frá heimsstarfi Aðventista og
dóms- og kirkjumálaráðherra.“
Aðventkirkjan í Reykjavik er ein
fallegasta kirkjubyggingin í borg-
inni. Kirkjan stendur í Ingólfsstræti
og var vígð í janúar 1926 þannig að
í ár er 80 ára vígsluafmæli hennar.
Sama ár var systrafélagið Alfa
stofnað sem er líknarfélag sem
starfar hefur að líknarmálum í borg-
inni í jafnmörg ár þannig að um
sannkallað afmælisár er að ræða.
„Undirbúningur hefur staðið
lengi og það er búið að taka til í
kirkjunni og mála og lagfæra ým-
islegt sem þurfti, þannig að það er
heilmikið sem tengist þessu.“
t Aðventistasöfnuðinum eru um
550 manns úr sex söfnuðum um
landið. Reykjavíkursöfnuðurinn
er stærstur en í honum eru um 200
manns. „Þetta er lítill og huggulegur
söfnuður. Meginatriði safnaðarstarf-
ins eru almennt kirkjustarf en við
leggjum áherslu á sama boðskap og
aðrar kristnar kirkjur sem er fagnað-
arerindi Jesú Krists. Megináherslan
í okkar boðskap er á endurkomu
Krists, að Kristur sé að koma brátt
aftur. Við viljum þjóna samfélag-
inu á heildrænan hátt, við leggjum
áherslu á menntun og skólastarf og
Aðventistar reka skóla um allan heim.
Við leggjum líka áherslu á heilsusam-
legt líferni, á hollt mataræði eins og
grænmetismat og hreyfingu. Síðan
ekki síst leggjum við áherslu á hvíld-
ardaginn en hann höldum við á
laugardögum ekki á sunnudögum
eins og í flestum kirkjum. Á hvíldar-
deginum er lögð áhersla á tengsl við
almættið og fjölskylduna og tíminn
notaður til að slaka á og eiga góðan
tíma með fjölskyldunni," segir Eric
að lokum sem hefur í nógu að snúast
um helgina.
SU DOKU talnaþraut
2 9 5 3 1 6 8 4 7
3 7 1 8 4 9 5 6 2
8 4 6 7 2 5 3 9 1
9 2 4 1 3 7 6 8 5
5 3 7 2 6 8 4 1 9
6 1 8 9 5 4 7 2 3
7 5 2 4 8 1 9 3 6
4 6 3 5 9 2 1 7 8
1 8 9 6 7 3 2 5 4
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin ;nýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
4 7
5 9 2
5 3 7
7 8 2 1 6
6 1 5 3 8 9
3 6 5
3 4 1 9
1 4 6
2 8 9 4 1
eftir Jim Unger
Ekki vandamálið. Ég er með eldspýtur
hérna einhvers staðar.
12-10
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
A förnum vegi
Hvað finnst þér um
að fá útlendinga í
verslunarstörf?
Sverrir Sigfússon, nemi
Það er í lagi ef það er í takmörk-
uðum mæli.
Hjalti Þór Grettisson, nemi
Það er í lagi ef eftirlitið með þeim
og réttindum þeirra er gott.
Sverrir Sverrisson
Mér finnst það vera I lagi svo
lengi sem (slendingar fá einnig
vinnu.
Steinunn Rán Helgadóttir
Ég hugsa að það sé ekkert við
þessari þróun að gera.
Inga Jóhannesdóttir
Mér finnst þetta ekki góð þróun,
en sjálfsagt ráðum við ekkert við
hana.