blaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 25
blaðið
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 2 5
eða þjálfa heilann upp á nýtt. Spítal-
inn útvegaði mér konu sem lét mig
hafa bók til að lesa og sú bók var alveg
fáránlega erfið og mamma mín stað-
festi það seinna. Eg hugsa að Litla gula
hænan hefði verið fín fyrir mig,“ segir
Edda sem segist þó ekki hafa fyllst
vonleysi þrátt fyrir allt.
„í mínu tilfelli held ég að það hafi
bjargað mér hvað ég var rugluð í rím-
inu. Ég var ekkert hrædd við þetta
og alveg viss um að þetta myndi allt
lagast. Ég hef verið svona barnalega
bjartsýn.“
Hún segir að það sem hafi skipt
hana mestu máli hafi verið að ná aftur
heilsu. „Ef ég hefði aldrei lært að lesa
aftur eða náð tökum á því að læra eitt-
hvað utan bókar þá hefði maður bara
orðið að snúa sér að einhverju öðru en
leiklist. Aðalmálið var að ná heilsu.“
MacBeth stuðlaði að
endurhæfingu
Þegar Edda er spurð hvernig hafi
gengið að takast á við daglegt líf og
sinna vinnu á ný segist hún hafa
verið afar heppin því að röð tilviljana
leiddi til þess að hún fékk hlutverk í
leikhúsinu nokkrum mánuðum eftir
heilablóðfallið.
„Þorsteinn Gunnarsson var þá að
fara að setja upp Macbeth eftir Shake-
speare hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Skömmu áður en ég veiktist hafði ég
unnið með Þorsteini í sjónvarpsverk-
efni og hann vildi endilega fá mig til
að leika frú Macbeth. Það er náttúr-
lega ansi snúið hlutverk og mjög stór
biti fyrir manneskju sem er nýbúin
að fá heilablóðfall en Þorsteinn hafði
svona mikla trú á því að ég gæti gert
þetta,“ segir Edda sem var sjálf ekki
jafntrúuð á að hún gæti valdið hlut-
verkinu enda átti hún enh mjög erfitt
með að lesa og gat alls ekki lært neitt
utan að.
„Ég fékk langan tíma til að liggja yfir
þessu hlutverki og ég vann eins og
hestur við það alla daga að reyna að
læra hlutverkið og það tókst. Eg held
að þetta hafi verið mín lækning. Eg hef
oft sagt við fólk sem hefur lent í svona
heilaskaða að ég sé ekki fagmanneskja
í því hvernig hægt er að hjálpa fólki að
endurhæfa heilann en ég hef reynslu
af því að gera það með þessari aðferð:
Að taka texta, glíma við hann og helst
að reyna að læra hann og ég hef trölla-
trú á þeirri aðferð,“ segir Edda.
Fékkflogakast hálfu ári síðar
Eftir að Edda hafði náð heilsu á ný
var hún auðvitað hrædd um að heila-
blóðfallið myndi endurtaka sig og
hálfu ári síðar fékk hún flogakast sem
rekja má til heilablóðfallsins. „Eftir
þetta fyrsta flogakast var ég á mjög
sterkum lyfjum i ein átta ár en hætti
smám saman á þeim. Ég fékk reyndar
einu sinni flogakast eftir það en lærði
af því að ef maður fer nógu illa með
sig, sefur lítið og borðar ekki þá geta
allir fengið flogakast. Mitt þak er að-
eins lægra en hjá manneskju sem er
alveg heilbrigð. Maður verður bara
að læra á kerfið og lifa með því,“ segir
Edda.
Virkt og sýnilegt starf
Edda verður ásamt fleirum á
málþingi Heilaheilla á Hótel Sögu á
morgun. Heilaheill eru samtök fólks
sem hefur fengið heilablóðfall eða
heilaslag og aðstandenda þeirra og
fagfólks. Undirskrift málþingsins
er „Áfall er ekki endirinn" og er það
öllum opið en þar fjalla sérfræðingar
um heilablóðfall út frá ýmsums
sjónarhornum.
Málþingið er til marks um það
öfluga starf sem unnið hefur verið
á vegum Heilaheilla á undanförnum
misserum.
„Félagið er mjög virkt og sýnilegt
til dæmis á sjúkrahúsunum. Nýr for-
maður félagsins er Þórir Steingríms-
son leikari og lögreglumaður og er
hann að framkvæma alveg stórkost-
lega hluti.
Á þessum stutta tíma frá því að
Þórir tók við hefur hann verið snið-
ugur að virkja krafta félagsmanna.
Hann hefur sett á laggirnar nokkrar
nefndir sem eru mjög virkar eins
og til dæmis ein sem heitir Faðmur.
Þeir nefndarmenn eru ungt fólk sem
hefur fengið heilablóðfall eða heilas-
lag og fer Katrín Júlíusdóttir Alþing-
ismaður fyrir þeim hópi. Þau eru
búin að safna töluverðu fé sem fer í
sjóð og er ætlaður ungum foreldrum
sem lenda í þessu,“ segir Edda.
Edda hefur tekið virkan þátt í
starfi Heilaheilla og er meðal ann-
ars í svokallaðri Framvarðasveit
samtakanna en framverðirnir skipt-
ast meðal annars á að svara fyrir-
spurnum í síma og eru alltaf tilbúnir
til skrafs og ráðgerða. Samtökin
hafa einnig gefið út bækling eða svo-
kallað „fyrsta dags kort“ með mik-
ilvægum upplýsingum um félagið
fyrir þá sem lenda í heilablóðfalli.
Heilaheill heldur einnig úti heima-
síðunni heilaheill.is þar sem nálgast
má ýmis konar fróðleik, greinar eftir
fagfólk og reynslusögur sjúklinga
svo nokkuð sé nefnt.
Heimasíðan bjargar mannslífum
Edda segir að heimasíðan hafi
þegar sannað gildi sitt. „Ég þekki
dæmi þess að hún hafi hreinlega
bjargað mannslífum eins og mann-
inum sem fann fyrir skrýtnum ein-
kennum en hélt að þetta væri ekk-
ert sérstakt eins og sjálfsagt margir
hugsa. Hann fór þó inn á heimasíð-
una og gluggaði í þessar reynslusög-
urnar og sá að ein þeirra stemmdi
við hans líðan. Hann fór strax á spít-
alann og það kom í ljós að hann var
um það bil að fá heilblóðfall. Þessi
saga og margar fleiri sanna að það er
mikilvægt að við kynnum samtökin
og heimasíðuna sem allra víðast
þannig að fólk viti af þessu og geti
fræðst um sjúkdóminn. Það getur
skipt máli að fólk gefi sér tíma til
að kíkja á heimasíðuna þó að það sé
ekkert að því. Þetta er á vissan hátt
eins og að læra hjálp í viðlögum. Ef
maður kemur að manni sem er hugs-
anlega að veikjast af heilablóðfalli
vill maður geta hjálpað og ráðlagt,'
segir Edda og bætir við að bækling-
urinn sé gefinn út í sama tilgangi, að
breiða út orðið.
„Það þyrftu sem flestir að vita af
þessu og það er meðal annars þess
vegna sem við höldum þetta mál-
þing. Bæði er það til fróðleiks fyrir
okkur sem vitum af þessu en það
er líka liður í þvi að kynna félagið
fleirum og helst sem allra flestum.
Líka þeim sem eru alhraustir því
að hver veit hvenær kemur að ein-
hverjum sem stendur manni nærri,
en tölfræðin segir að á íslandi veik-
ist 2 á dag af þessum sjúkdómi,“ segir
Edda Þórarinsdóttir að lokum.
<.
V)
Jakkaföt áður 32.900 nú 14.900
Tvíhnepptir ullarfrakkar áður 18.900 nú 5.900
Gallabuxur áður 12.900 nú 3.900
Úlpur áður 9.900 nú 3.900
Skyrtur áður 6900 nú 2.900
Bolir áður 2.900 nú 590!!!
Ps. vorum einnig að taka upp helling af nýjum vörum.
Firði Hafnarfirði
Sími 565 0073
Mnaifjörður