blaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006
blaöið
Eigandi Torrent.is hefur verið gert að loka síðunni
r
„Lífiö er of stutt til aö hafa
annað en ranghugmyndir
um sjálfan sig.“
Gene Simmons, úr hljómsveitinni Kiss
sviðs..
Atta þúsund kærðir
Alþjóðleg samtök höfundaréttar á
hljóðverkum (IFPI) hafa kært um átt
þúsund aðila um allan heim vegna
ólöglegrar dreifingar á tónlist á
netinu. Dæmi eru um að ákærðir hafi
þurft að reiða fram allt að 1.600 pund,
eða rúmar 200.000 íslenskar krónur,
til að semja um dómsátt.
Ákært í 17 löndum
Ákærurnar hafa verið birtar
einstaklingum í 17 löndum. Gunnar
Guðmundsson, sem situr í stjórn
Samtóns, segir samtökin hafa
sent bréf til eiganda vefsíðunnar
Torrent.is og farið fram á síðunni
verði lokað. Eigandi síðunnar er
eini íslendingurinn sem málið nær
yfir að þessu sinni. Torrent.is gerir
notendum Netsins auðveldara að
nálgast tónlist og annað efni á netinu
en Gunnar segir að ekki verði farið út
í að hafa upp á notendum síðunnar en
bendir á að þeir stundi ólöglega iðju.
„Ekki verður farið út í að kæra
eiganda síðunnar að svo stöddu né
rukka hann um fjársektir,“ segir
Gunnar. „í þessum áfanga ætlum við
að fá hann til að loka léninu. Hann
er ekki á leiðinni í fangelsi. Ég hef
engin viðbrögð fengið frá eigenda
siðunnar." Gunnar bætir við að
frekari aðgerða sé að vænta innan
skamms. „Notendur torrent.is eru
að sjálfsögðu að taka áhættu með því
að deila efni.“
Örlög síðunnar óákveðin
Svavar Lúthersson, eigandi
vefsiðunnar torrent.is, segist ekki
hafa ákveðið hvort síðunni verði
lokað eður ei. „Ég á eftir að hafa
nánar samband við lögfræðinga
Samtóns." Að sögn Svavars verður
öllum lagalegum aðgerðum beitt
loki hann ekki síðunni. „Ég held að
ég taki ekki lokaákvörðun um lokun
síðunnar fyrr en ég er búinn að
skoða málið nánar.“
Notendur torrent.is eru rúmlega
4.800. Á síðunni kemur fram að
ekkert efni sem deilt er með torrent-
forritun sé hýst á vefþjóni torrent.
is. Enn fremur kemur fram að
síðan beri ekki ábyrð á því efni sem
notendur dreifa.
atli@bladid.net
Metallica Sveitin hefur barist hart gegn ólgölegu niðurhali á netinu.
Heyrst hefur í skúmaskotum
að enginn annar en Magni
„okkar“ Ásgeirsson hafi sést á
skrifstofum Hr. Örlygs, skipu-
k leggjanda Airwaves-
hátíðarinnar, þar
) sem hann reyndi að
fá að spila á hátíð-
inni. Starfsmenn Hr.
örlygs tjáðu Magna að
listamenn og hljómsveitir sem
spila á hátíðinni hafi allar sótt
um og að enginn „fljúgi" inn.
Sagan segir að Magni hafi verið
tilbúinn að „sætta sig við“ að
spila á minnstu stöðum hátíðar-
innar en allt kom fyrir ekki og
honum var neitað.
Hin sænska Jenny Wilson gat
ekki komið fram á Airwaves
sökum veikinda en
annar Svíi, Jens
Lekman, kom í
hennar stað. Jens
þessi ku vera
hinn sænski Benni
Hemm Hemm. Það er
því engin tilviljun að hann hefur
beðið Benna ásamt hljómsveit
hans að troða upp með sér á
hátíðinni. Nýjustu fréttir herma
þó að meðlimir Stórsveitar Nix
Noltes munu kom fram með
Jens í stað Benna og félaga.
ICELAND AIRWAVES
FESTIVAL SCHEDULE
Í • • • • 9 9 9 9 9 9ÆLM 9JM 9 9U 9 9 9 9 i
999999999 9 M W9 9 9 9 Jt 9 9 9 9 9
$999999999_MMáM 9 9 9 9 9 9 9 9 9*
9 _9_9^9
OFF VENUE_
Bar 11, 20.oct at 21:00
ON VENUE
NASA, 21.oct at 20:00
icELÆnd
niruinuES
myspace.com/wulfgangtheband
Iceland Airwaves, miðvikudagur
Weezer-hjartað sló
Engin hátíð fær jafnmarga ís-
lendinga til að fara á tónleika á
miðvikudegi og Iceland Airwaves.
Tónleikastaðir voru flestir fullir í
fyrrakvöld og raðir mynduðust fyr-
ir utan Gaukinn og Grand Rokk. Að-
standendur hátíðarinnar höfðu gert
ýmsar ráðstafanir gegn röðunum,
til dæmis fækkað miðum og stillt
stærstu nöfnunum upp á sama tíma.
Virkni aðgerðanna kemur þó varla í
ljós fyrr en framboð tónleika eykst.
Á Gauknum voru flestir mættir
til að hlýða á Bandaríkjamennina I
We Are Scientists. Nokkrar hljóm-
sveitir spiluðu á undan þeim og ég
mætti stuttu áður en Telepathet-
ics byrjuðu. Þeir voru augljóslega
mættir til að skemmta fólk og tókst
það mjög vel. Spilagleðin geislaði af
þeim og smitaði út frá sér til áhorf-
enda sem voru vel með á nótunum.
Hljómburður var með besta móti
(allavega þar sem ég stóð) og hljóm-
ur trommusettsins var svo „djúsí??
að mig langaði til að borða það.
We Are Scientists stigu á svið
klukkan 22.30 og áttu að spila í
klukkutíma. Mér var létt þegar þeir
kölluðu það gott eftir 40 mínútna
tónleika. Hvorki tónlistin né sviðs-
framkoman náði að heilla mig. Allt
sem þeir reyndu að vera voru þeir
ekki. Ekki eins hressir og Franz
Ferdinand, ekki eins svalir og Strok-
es og ekki eins breskir og Arctic
Monkeys.
Eftir vísindamennina tölti ég á
Grand Rokk þar sem hljómsveitin
Weapons var í þann mund að byrja.
Þeir náðu ekki að rífa mig með í
stemninguna sem var uppi á sviði
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þeir
mega samt eiga að þeir voru þéttir
en hljómurinn í salnum vann ekki
með þeim.
Lada Sport steig á svið tilbúin
að sigra heiminn með hjartalaga
blöðrur, tvo gestagítarleikara og
þrjár stúlkur sem léku á blásturs-
hljóðfæri í síðasta laginu. Sveitin
spilaði mestmegnis (eða einungis?)
nýtt efni sem hljómaði mjög vel og
fékk gamalt Weezer-hjarta til að slá.
Þá var sviðsframkoma drengjanna
með allra besta móti, þeir öskruðu,
hoppuðu og létu eins og óðir menn
og fór það vel í mannskapinn.
atli@bladid.net
Reykjavík! gefur
út vefskífu
Hljómsveitin Reykjavík! í samstarfi
við vefritið Rjómann hefur gefið út
vefskífuna „Because We Love You“.
Platan inniheldur lagið Changes,
eftir David Bowie, You Always Kill,
tvær endurhljóðblandanir af laginu
All Those Beautiful Boys, demó af
laginu Mömmukisi og tvö lög sem
tekin voru upp á lceland Airwaves í
fyrra; Óberón og Ted Danson. Loks
fylgir með umslag til útprentunar.
Pötuna má nálgast ókeypis á vef-
síðu Rjómans; www.rjominn.is. Við
erum að leggja okkar að mörkum
til að drepa breiðskífuna sem
form,“ segir Haukur Magnússon,
gítarleikari Reykjavíkurl, um útgáf-
una. Spurning hvort það takist hjá
köppunum en framtakið er engu að
síður gott.
Tónleikar i Elvis
Nóg verður um að vera í Smekk-
leysu plötubúðinni og Elvis í dag
og á morgun. Fjölmargar hljóm-
sveitir troða upp og ber þar hæst
að nefna kanadísku hljómsveitina
Islands.
■ Föstudagur
kl. 17.00 Skakkamanage
kl. 17.30 Islands
kl. 18.00 Kalli
■ Laugardagur
kl. 13.00 Reykjavlk!
kl. 14.00 Ninety Nine
kl. 14.40 Dikta
kl. 15.20 Óvænt atriði