blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 blaöiö VEÐRIÐ I DAG Hvassviðri Hlýnar aftur með vaxandl suðaustan- átt. Hvassviðri og rigning þegar líður á daginn, fyrst suðvestanlands en snýst í suðvestanátt með skúrum eða slyddu- éljum seint í kvöld. Á MORGUN Stormur Vestan stormur með rigningu eða slyddu. Lægir og dregur úr úrkomu vestantil siðdegis, en fyrir austan um kvöldið. Kólnandi veður og frystir fyrir norðan síðdegis. VlÐAUMHEIM | Algarve 22 Glasgow 9 New York 4 Amsterdam 9 Hamborg 5 Orlando 16 Barcelona 16 Helsinki -2 Osló 4 Berlln 4 Kaupmannahöfn 4 Palma 24 Chicago 0 London 11 Paris 9 Dublin 9 Madrid 13 Stokkhólmur 1 Frankfurt 8 Montreal -1 Þórshöfn 10 Líbanon: íranar borga í uppbyggingu Kassam Allaik, áhrifamaður innan Hizballah-hreyfingar- innar, hefur staðfest að íranar séu að fjármagna uppbygging- arstarf samtakanna í landinu vegna eyðileggingarinnar sem stríðið í ísrael hafði í för með sér. Jihad Azour, fjármálaráð- herra Líbanons, hefur beðið írana um að veita ekki fé beint til Hizballah, heldur til ríkis- stjórnar landsins. íranar eru áhrifamiklir í Líbanon gegnum náin tengsl sín við Hizballah. Óttast er að þeir vilji steypa stjórninni af stóli. ‘ i , ■: ■I; '&mum f Austurevrópskir þjófar herjuðu á búðareiganda: Larus Bjorn aftur i fangelsi Lalli Johns gerði garðinn frægan þegar gerð var heimildarmynd um iíf hans en hann hefur verið afbrota maður síðan á sjöunda áratugnum. Sjö mánaða fangelsi fyrir þjófnað: Lalli Johns stal leikfangabangsa Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Lárus Björn Svavarsson, eða Lalla Johns öðru nafni, í sjö mánaða fang- elsi fyrir margvíslegan þjófnað. Lalli á meðal annars að hafa stolið leikfangabangsa úr bíl, sólgler- augum, vettlingum, eyrnalokkum og mörgu fleiru. í dómsorði segir að hann hafi alls verið dæmdur í 20 ára skilorðsbundið fangelsi, en Lalli er fimmtíu og fimm ára gamall. Hann hefur hlotið alls 42 refsidóma síðan 1969 en ekki þótti ástæða til þess að skilorðsbinda dóminn því hann rauf skilorð með þessum brotum. Þá er einnig tekið fram í dómsorði að brotin hefðu verið framin þegar Lalli var í annarlegu ástandi. Hann mun víst hafa verið hirtur nokkrum sinnum þegar hann ráfaði um götur Reykjavíkur með þýfið. Einnig er honum gert að greiða allan sakarkostnað. ísrael: Myrtu tvær konur í mosku ísraelskir hermenn felldu tvær palestínskar konur þegar þeir gerðu áhlaup á mosku í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í gær. Á fimmtudag földu sextíu palestínskir vígamenn sig í al- Nasir-moskunni. I gærmorgun komu um fimmtíu konur til moskunnar til þess að gegna hlutverki hlífiskjalda fyrir menn- ina á meðan þeir reyndu að flýja. Nærvera kvennanna varð ekki til þess að fæla ísraela frá árás. Versnar áður en það batnar Að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns er mikið um búðarhnupl á haustin og um jólin. Handteknir aftur sama dag ■ Beittu nýstárlegum aðferöum Eftir Val Grettisson valur@bladid.net „Þetta var óhugnanlega vel skipu- lagður búðarþjófnaður hjá þessu sovéska þorparagengi,“ segir Gylfi Gylfason, framkvæmdastjóri hjá versluninni Símabæ, en fyrirtækið varð fyrir barðinu á vel skipulögðum búðarþjófum á síðasta laugardag. Samkvæmt Gylfa komu þrír menn inn í búðina af austurevrópskum uppruna en tveir sátu í bíl fyrir utan. Að sögn Gylfa grunaði hann hvað væri í vændum enda hafði hann séð þá áður inni í búðinni líkt og þeir væru að „skanna' hana, eins og Gylfi orðar það. „Ég sá að einn þeirra var að skoða síma sem var á vegg í búðinni. Þá kemur vinur hans og truflar mig í nokkrar sekúndur," segir Gylfi en þegar hann leit aftur á vegginn sá hann að síminn var horfinn. Hann sá manninn ganga út og kallaði á eftir honum. Hinn grunaði tók þá á rás og Gylfi á eftir honum. Hann segist ekki leggja það í vana sinn að elta búðarþjófa uppi en honum blöskraði aðferðin þannig að hann fann sig knúinn til þess að láta hann ekki komast upp með þjófnaðinn. „Ég náði honum að lokum en fann þá ekki símann á honum,“ segir Gylfi sem neyddi manninn aftur inn í búðina og hringdi á lögregluna. Aðstoðarmaður hans fínkembdi leiðina sem maðurinn hljóp en fann ekki símann. Þegar lögreglan kom á staðinn bar maðurinn fyrir sig kunnáttuleysi í tungumálum að sögn Gylfa en þá var orðið ljóst að vinir hans stálu símanum á meðan Gylfi lét blekkjast. „Maðurinn var bara tálbeita á meðan þeir rændu búðina mína,“ segir Gylfi, en honum blöskra fólskulegar aðferðir búðarþjófanna. Hann bætir við hlæjandi að hann hafi ekki hlaupið svo kröftuglega í fimmtán ár og hafi verið með harð- sperrur alla helgina. Lögreglan handtók manninn og fór með hann niður á lög- reglustöð. Skýrsla var tekin af honum og síðan var honum sleppt. „Eftir að við lokuðum búð- inni hringdi aðstoðarmaður- inn í mig. Þá var hann í versl uninni BT og hann sagði mér að sömu þjófarnir væru þar,“ segir Gylfi, sem hringdi þá aftur á lögregluna. Þrír lögreglu- bílar mættu á staðinn að sögn Gylfa og handtók lögfeglan þjófagengið. Mennirnir fóru í;skýrslutöku, þeim var síðan sleppt óg verða þeir kærðir fyrir búðarhnupl. „Við fáum þrjár til sex tilkynn- ingar á dag um búðarhnupl,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykja- vík, en Samtök verslunar og þjónustu telja að tap verslana á ári hverju vegna búðarhnupls nemi þremur mUi'örðum króna. Að ;ögn Geirs Jóns eykst búðarhnupl gríðar- lega á haustin og kringum jól og því mun ástandið versna áður en það batnar á ný. Ungfrú Bretland: í sambandi meö dómara Ungfrú Bretland, Danielle Lloyd, hefur verið svipt titli sínum í kjölfar þess að hún upplýsti í viðtali við tímarit að hún hafi verið í tygjum við einn af dómurunum sem tóku þá ákvörðun að sæma hana hinum eftirsótta titli. Talið er að sambandið hafi getað leitt til hagsmunaárekstra hjá dómaranum. Einnig kemur fram í viðtalinu að ástarsam- band hennar við knattspyrnu- kappann Teddy Sheringham hafi staðið mun lengur en almennt var talið. Aðstandendur keppninnar tóku ákvörðun um að svipta Lloyd titlinum á fimmtudag. I tilkynningu frá þeim kemur fram að ákvörð- unin hafi verið þeim þungbær og þeir óska Lloyd alls hins besta í framtíðinni. Steinunn Guönadóttir í 6.sæti Opnum kosningaskrifstofu Steinunnar Guðnadóttur að Strandgötu 24, Hafnarfirði, sunnudaginn 5. nóvember kl. 17:00 Hlökkum til að sjá ykkur sem flest! Stuðningsmenn Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi 11.11.2006 Tálbeita í búðarþjófnaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.