blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 blaöió INNLENT LÖGREGLA Lýst eftir manni Lögreglan lýsir eftir Kristófer Erni Sigurðarsyni til heimilis að Logafold 141 í Reykjavík. Hann er um 185 cm á hæð með stutt, skolleitt hár. Þeirsem geta gefið upplýsingar um ferðir Kristófers hringi í lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100. HÆSTIRÉTTUR Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur (slands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem grun- aður er um að hafa smyglað tæpum tveimur kílóum af kókaíni til landsins í ágúst. Verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér 12 ára fangelsi. SEYCISFJÖRÐUR Afturganga á Seyðisfirði (gærkvöldi voru Ijósin slökkt á Seyðisfirði vegna hátíðarinnar Dagar myrkurs. Þá ganga bæjarbúar aftur og setja sig í spor forfeðra sinna árið 1912 þegar engar götur voru upplýstar. Seyðis- fjörður var fyrstur bæja á (slandi tii þess að hljóta götulýsingu en það gerðist árið 1913 þegar Fjarðaselsvirkjun var ræst. Leyfislaus bíll valt við Gullfoss: Sex kínverskir ferðamenn slasast Lögreglan á Selfossi rannsakar hvort ökumaður bifreiðar sem valt við Gullfoss með hóp ferðamanna innanborðs hafi haft leyfi til að aka farþegum gegn gjaldi. Bifreiðin sem er af gerðinni Hu- yndai Hi flutti sex kínverska ferða- menn. Farþegar og ökumaður voru fluttir á sjúkrahúsið á Selfossi til skoðunar. Enginn slasaðist alvar- lega en farþegar fundu fyrir smá- vægilegum eymslum. Okumaðurinn er grunaður um að vera ekki með þau ökuréttindi sem krafist er. Enn fremur grunar lögreglu að fyrirtækið sem á bílinn hafi ekki rekstrarleyfi. Bifreiðar sem eru skráðar fyrir átta farþega eða færri flokkast sem leigubifreiðar og skulu því hafa sérstök rekstrar- leyfi sem Vegagerðin úthlutar. Bíll- inn er skráður fyrir sjö farþega og flokkast því sem leigubifreið. Margir hafa kvartað til lögreglu vegna bíla sem aka fólki gegn gjaldi án allra tilskilinna leyfa. MEISTARAVERK! f ÍT&GirÆztZSSÍ Antony Beevor lýsir hér af nærfærni og list gangi innrásarinnar í Þýskaland úr austri og þeim mannlegu örlögum og hörmungum sem hún hafði í för með sér. BOKAUTGAFAN HOLAR FALL BERLÍNAR 1945 - bók sem þú verður að lesa! FYRIRTÆKI & VERSLANIR V I/ miLVAKLAUSNin 1 UMBÚVUM pappfr • gjafapokar • pakkaskraut *gjafabönd greinar • borðar • öskjur • silkiblóm • slaufur Melabraut 19 • 220 Hafnarfirði • Sfmi 575 0200 • danco@danco.is OANCO HEILDVERSLUN Sala Reykjavíkurborgar á hlut sínum í Landsvirkjun: Borgarstjóri sveik gefið loforð ■ Forkastanleg vinnubrögð ■ Röng tímasetning að mati Vinstri grænna ■ Búið að tala of lengi, segir borgarstjóri Ósætti í borgarstjórn Minnihlutinn íborgarstjórn gagn- rýnir vinnubrögð meirihlutans harálega og segir þau ólýð ræðisleg. Borgarstjóri lofaði viðræðum en sveik loforðið. Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Flokkarnir í minnihluta borgar- stjórnar gagnrýna allir sölu hlutar Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun en samkomulag þess efnis var undir- ritað á miðvikudag. Gagnrýni þeirra er þó ekki samhljóma nema um það sem snýr að vinnubrögðum og fram- göngu meirihlutans. „Framgangur meirihlutans í borg- arstjórn er óverjanlegur. Viðræðum um samningsdrög hjá borgarráði var lofað af borgarstjóra í sumar en þær hafa aldrei farið fram,“ segir Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, og bendir á að borgarstjórn sé fjölskipað vald með lýðræðislega kjörnum fulltrúum allra flokka. „Sjónarmið voru ekki reifuð í borg- arstjórn en við það borð eiga öll mál að vera leidd til lykta. Eftir blaða- mannafund og undirskrift þóknaðist borgarstjóra loks að ræða málin við borgarráð. Það kalla ég málamynda- viðræður því gjörningurinn var full- komnaður fyrir,“ segir Svandís. Ekki hægt að tala endalaust Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar- stjóri er ósammála gagnrýni um slæ- Ieg vinnubrögð meirihlutans. Hann bendir á að viðræðurnar hafi staðið lengi yfir. „Ég veit ekki lengur hvað snýrupp ogniðurhjáminnihlutanum. I þeirra stjórnartíð var undirrituð yf- irlýsing um söluna og viðræður fóru fram,“ segir Vilhjálmur. „Þetta voru hálfgerðar sýndarviðræður í gangi hjá fyrrverandi meirihluta enda lá fyrir að Vinstri grænir vildu aldrei selja, jafnvel þótt helmingi hærra verð hefði fengist. Viðræður voru búnar að vera í gangi í langan tíma. Ég hef reglulega kynnt gang við- ræðna á meðan þær fóru fram.“ Forkastanleg vinnubrögð Ólafur F. Magnússon, borgarfull- trúi Frjálslynda flokksins, tekur undir gagnrýni Vinstri grænna og undrast það hversu hratt málinu var þrýst í gegn. „Okkur finnst það forkastanleg vinnubrögð að samkomulag náðist algjör- lega án samráðs við kjörna borgarfulltrúa. Samkomu- lagið var tilkynnt í fjöl- miðlum áður en búið var að afgreiða málið í borgar- stjórn,“ segir Ólafur. „Svona stór ákvörðun á að hafa fyrirliggjandi samþykkt borgarstjórnar áður en hún er tilkynnt opinberlega. Vinnubrögðin eru algjörlega á skjön við lýðræðið." Röng tímasetning Samfylkingin hefur einna helst gagnrýnt verðið sem borgin fær fyrir hlut sinn og segir það fjarri því að vera ásættanlegt. Aðspurð segir Svandís Samfylk- inguna hafa nokkuð til síns máls í þeim efnum Framgangur meirihlutans er óverjanlegur Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna og bætir við þeirri skoðun að ekki hafi verið rétt að selja hlutinn á þessum timapunkti. „Við spyrnum við fótum gagnvart einkavæðingarstefnu rík- isstjórnarinnar. I því umhverfi sem blasir við, með ríkisstjórn svo fjand- samlega almannahagsmunum, erum við mótfallin því að losa núna um hlut borgarinnar," segir Svandís. „I fyllingu tímans teljum við rétt að taka þetta skref en ekki við þessar pól- itísku aðstæður.“ Hækkað verð Aðspurður gefur Vilhjálmur lítið út á þá gagnrýni sem fram hefur komið á verð sem fékkst fyrir hlut borgar- innar. „Fullyrðingar Samfylkingar- innar um verðmiðann eru fráleitar og algjörlega órökstuddar. Þegar R-list- inn gafst upp í viðræðunum var talan í 56,4 milljörðum en endar í 60,5 millj- örðum. Við náðum í raun að hækka verðið frá viðræðum sem áttu sér stað hjá fyrrverandi meirihluta," segir Vilhjálmur. Hærra raforkuverð Ólafur segir það skýlausa kröfu F-listans að Ég veit ekki lengur hvað snýr upp og niður hjá minnihlutanum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Okkur finnst það forkastanleg vinnubrögð Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins ábyrgðum borgarinnar fyrir virkjun- arframkvæmdum verði að aflétta taf- arlaust þar sem hún beri enga ábyrgð hjá Landsvirkjun lengur. „Nú blasir við einkavæðing fyrirtækisins en ábyrgðir borgarinnar munu áfram standa," segir Ólafur. „í kjölfarið verður líklega Orkuveita Reykjavíkur einkavædd og raforkuverð hækkar til muna. Þetta þjónar klárlega ekki almannahagsmunum.“ Vilhjálmur bendir á að það sé ekki í valdi borgarstjórnar að ákveða framtíð Landsvirkjunar. „Það bíður Alþingis að ákveða hvort eigi að einka- væða eða ekki. Við getum ekki sett skilmála við sölu hlutarins um það hvernig eigi að reka Landsvirkjun í framtíðinni. Hins vegar verður Orku- veita Reykjavíkur ekki einkavædd í minni tíð sem borg- arstjóri," segir Vilhjálmur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.