blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 blaöið HVAÐ FINNST ÞÉR? Var Landsvirkjun seld á vaxta- lausum raðgreiðslum? „Nei, svo gott var það nú ekki. Ég tel að það séu mörg verri greiðsluform foik@bladid.net en vaxtalausar raðgreiðslur. Þetta var nánast gefins." Dagnr B. Eggertsson, borgarfulltrúi Dagur er ósáttur við söluna á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun. Hann segir að verðið hafi verið of lágt, fyrirvarar um einkavæðingu haldi ekki og að greiðslu- formið hafi verið vont. HEYRST HEFUR... Bakkynja og skorpumanneskja Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona hefur átt gríðarlega anna- sama viku en hún er þessa dagana að æfa verkið Bakkynjurnar eftir Evripídes sem verður jólaleikrit Þjóðleikhússins f ár. „Ég ætla að sofa út á sunnudaginn, elda góðan mat og fara í göngutúr,” segir Katla. „Enda vikan búin að vera annasöm í meira lagi. Við erum að æfa Bakkynjurnar á hverju m degi og auk þess hef ég verið í tökum á þáttunum Stelpurnar.” Verkið Bakkynjurnar er einn þekkt- asti harmleikur gullaldarinnar og verður líklega einn af hápunktum vetrarins í Þjóðleikhúsinu. f Bakk- ynjunum segir frá konum er dýrka Bakkus. Þær gera það svo ákaflega, að þær lokka til sín drengi út í skóg og vakna upp við vondan draum þegar ein konan er að slíta í sundur son sinn. Af því verður grátur og gnistran tanna og harmleikur. „Leikstjóri verksins er grískur, Giorgos Zamboulakis," segir Katla og bætir við að þau hafi farið í vinnubúðir í vikunni til að læra texta og ræða verkið. „Hann Gior- gos kom einnig að verkinu Mýrar- ljós sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu í fyrra,” segir Katla og rifjar upp að verkið hafi fengið afar góða dóma auk þess sem sérstakar grímur hafi verið notaðar i verkinu að grískri hefð. „Grímur verða einnig notaðar í Bakkynjunum,” bætir hún við. „Ég tek svaka skorpur yfir dag- inn í vinnu en fer snemma að sofa á kvöldin,“ segir Katla aðspurð um það hvernig hún höndli erf- iða viku sem þessa. „Ég fer líka í ræktina nokkra morgna í viku og næ að slaka þannig á, svo finnst mér gott að fara í göngutúra um Fossvogsdalinn til að ná mér niður á kvöldin.” Hún segist nota göngutúrana til að ræða daginn og veginn ásamt góðri vinkonu. ,Annars fæ ég nóga hreyfingu á æfingum á Bakkynjunum,“ segir Katla. En um dans og sviðs- hreyfingar sér Erna Ómarsdóttir dansari. dista@bladid. net Helgi Seljan notar útilokun- araðferðina við að finna sér rétta hillu í fjölmiðlaheim- inum. En á rúmu ári hefur hann starfað á eftirfarandi fjölmiðlum: Austurglugganum, DV, Tal- stöðinni, NFS og nú í Kastljósi RÚV. „Ég er nú bara að skipta um vinnu. Það er ekki eins og ég sé að ganga í gegnum hjóna- skilnað,“ sagði Helgi Seljan sjónvarpsmaður nú nýverið er hann skrifaði undir samning við Pál Magnússon sjónvarps- stjóra þess efnis að koma til starfa á RÚV. Starfslokin ætla hins vegar að reynast honum erfið sem hjónaskilnaður því ekki sést hinn skjávæni Seljan enn á skjánum og Kastljósið fær ekki notið starfskrafta hans fyrr en að loknum þriggja mánaða uppsagnaríresti hans hjá NFS. Utgáfa tímaritsins Isafoldar sem Reynir Traustason ritstýrir hefur valdið miklu fjaðrafoki nú síðastliðin miss- eri og þykir mörgum nóg um dramað. Nú er blaðið komið út og nú ætlar allt um koll að keyra (sem fyrr). „Blaðið er uppselt þrátt fyrir skæru- liðasveitir Fróða,“ segir Reynir í Fréttablaðinu í gær og sakar Fróða (Birtíng) um að keyra milli verslana og henda blaðinu til hliðar. Málið þykir reyfarakennt og Mikael Torfason, aðalritstjóri Birtíngs, hristir hausinn og vísar ásök- unum á bug. Báðir virðast þeir hlæja hvor í sínu horninu að kjánaskapnum i hinum. Katla Margrét Þorgeirsdóttir Vikan n að vera annasöm i'meira lagi Gúmmívinnustofan SPdekk ,________ COOPEÍR POIAB VETRARDEKK JEPPLINGADEKK POLAR RAFGEYMAR m'MiCHELIIU GÚMMÍVINNUSTOFAN Skipholti 35 105 RVK Sími: 553 1055 www.gumvnivmnustofan.is Opið: Mán - fös 8-18 • Lau 9-15 .11. þriðjudaga Auglýslngasímlnn er 510 3744 Ég er svo stolt af þér! Á sama tíma á morgun ertu búinn að vera í megrun í heila viku! Hvað bar hæst í vikunni? Regína Ösk Óskarsdóttir, söngkona Þar sem það er búið að vera mjög mikið að gera hjá mér þessa vikuna hef ég lítið fylgst með fréttum. Mér fannst það þó afskaplega fréttnæmt að Nylon hafi þurft að fresta útgáfu plötunnar sinnar vegna hvalveið- anna. Mér finnst það svolítið leiðinlegt þar sem við erum alltaf að hugsa um útrás í tónlist- inni að þá skuli eitthvað svona verða til þess að stoppa þessar stelpur sem hafa náð svo langt.“ Steingrfmur J. Sigfússon, alþingis- maður Þar sem ég eyddi megninu af vikunni á Norðurlandaráðs- þingi í Kaupmannahöfn gat ég ekki fylgst mikið með fréttum hér heima. En ég fylgdist vel með skrifum Ekstrablaðsins um íslendinga og fjárfestingar þeirra. í þessum skrifum fannst mér þeir vera mikið að ýkja og dramatísera gamlar sögur og jafnvel að skapa einhvers konar múgæsingu gegn lslendingum.“ Sigurður Valur Sveinsson, handknatt- leiksþjálfari Ætli það sé ekki fyrst og fremst prófkjör Sjálfstæðis- flokksins, það er að segja hvað skapast miklar deilur manna á milli og öll eftirköst prófkjörs- ins. Svo kemur líka umfjöllun Ekstrablaðsins um auðmenn Islands mikið á óvart. Ég ætla bara rétt að vona að þetta sé ein- hver öfund í Baununum."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.