blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 42

blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 íþróttir ithrottir@bladid.net Skeytin inn Drífa ehf Alex Ferguson í 20 ár á Old Trafford: blaöiö Lagersala! Komið og gerið frábær kaup á flfspeysum, bómullarpeysum, ullarhúfum og vettlingum fyrir veturinn á lagersölu Drífu lcewear. Suðurhrauni 12c • 210 Garðabæ • 555-7400 • www.icewear.is Beckham sektaður fyrir óstundvísi Það á ekki af David Beckham að ganga þessa dagana. Hann er dottinn út úr enska landsliðshópnum, fær lítið að spila hjá Real Madrid og núna síðast var hann sekt- aður fyrir að mæta seint á æfingu. Beckham mætti tíu mínútum of seint á æfingu á fimmtudag og var engin miskunn sýnd heldur mátti hann punga út fyrir sektinni. Valsarar styrktu leik- mannahóp sinn í gær þegar þeir sömdu við fjóra leikmenn. Hæst ber Hafþór ÆgiVil- hjálmsson, kantmanninn efnilega frá ÍA. Flest lið úrvals- deildar sýndu honum áhuga eftir að ljóst var að hann gæti losnað undan samningi auk þess sem hann fékk tilboð frá sænska 1. deildar- liðinu Norrköping sem hann hafnaði. Aðrir leikmenn sem Valsarar sömdu við eru þeir Jóhann Helgason frá Grinda- vík, Gunnar Einarsson frá KR og Daníel Hjaltason sem hefur leikið með Víkingum. Það getur tekið á að spila fót- bolta, ekki síst gegn topp- liðum. Edmilson, miðvall- arleikmaður Barcelona, segir erfitt að leika gegn Chelsea. Það er þó ekki óþarfa harka eða of mikil leikni þeirra bláu sem fer verst í hann. Heimskan í Jose Mourinho er það versta segir hann eftir leik liðanna í vikunni og virðist búinn að fá sig fullsaddan á taugastríði Mo- urinhos og Franks Rijkaards. Opið I dag laugardag frá kl 10-16. Opnum aftur mánudaginn 6,nóv kl. 13-18. ■ Reisti Manchester United viö ■ 25 titlar komnir í hús ■ Erfiöleikar á tíu ára afmælinu á Heysel. Rauðu djöflarnir mættu stjörnum prýddu liði Barcelona í úr- slitum og var búist við sigri þeirra síðarnefndu. Þeir rauðu unnu þó og fóru þeir Mark Hughes og Mike Phelan á kostum. Síðar tók við mikil sigurganga í ensku úrvalsdeildinni eftir að Eric Cantona bættist í hópinn og breytti United-liðinu i óvígan andstæðing fyrir önnur ensk lið. Mikið var rætt um það þegar leið á október 1996 að stutt væri i að Fergu- son hefði verið tíu ár við stjórnvölinn á Old Trafford. Liðinu fór hins vegar að ganga illa um þetta leyti, tapaði nokkrum leikjum illa og fékk mörg mörk á sig. Mesta dýrðarstundin var hins vegar framundan, þremur eftir- sóttustu titlunum var öllum landað eftir dramatískar lokamínútur í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 1999. United vann þrjá Englandsmeist- aratitla næstu fjögur árin, þann síð- asta 2003. Síðustu ár fóru menn að efast um hæfni Fergusons en þeim gagnrýnisröddum virðist hann hafa svarað í byrjun þessa tímabils þegar United hefur leikið vel og er i efsta Alex Ferguson getur fagnað því á mánudag að tuttugu ár eru liðin síðan hann tók við stjórn Manchester United. Skotinn sem gert hafði garð- inn frægan með Aberdeen tók við liði sem mátti muna fífil sinn fegri og var í miklum vandræðum í neðri hluta deildarinnar. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. „Þegar ég gekk til liðs við United 6. nóvember 1986 voru liðin nítján ár án titils og það þurfti enginn að segja mér að ef ég byndi ekki enda á þá titlaþurrð væri vera mín þar mislukkuð. Ég vissi að til þess að koma liðinu í aðstöðu til að keppa um titla reglu- lega þyrfti ég að leggjast í mikla og tímafreka undir- búningsvinnu. Ég þyrfti að byggja frá grunni og upp úr, ég þyrfti að bæta úr göllunum sem blöstu við mér og tryggja að áhrif mín og sjálfstraust gegnsýrðu hvert ein- asta lag félagsins.” Það var með þessum orðum sem Alex Ferguson rifjaði upp fyrstu daga sína á Old Trafford í ævisögu sinni Managing My Life sem kom út árið 1999. Þá var Ferguson á hápunkti ferils síns, nýbúinn að leiða Manc- hester United til sigurs í deild, bikar og Meistaradeild Evrópu á sama tímabilinu. Liðið hafði þá unnið Eng- landsmeistaratitilinn fimm sinnum á sjö árum og bætt við tveimur Evr- ópumeistaratitlum á litlu lengri tíma. Þá var fyrir löngu orðið ljóst að vera hans væri fjarri því mislukkuð. Þetta leit þó ekki vel út í upp- hafi. Þegar Ferguson tók við stjórn Manchester United, örfáum klukku- stundum eftir að Ron Atkinson var Vonarstjarnan Mikið mun mæða á Rooney. vikið úr starfi, var liðið í neðsta sæti efstu deildar, í bullandi fallbaráttu. Fergu- son náði að rétta skipið aðeins og liðið var í ellefta sæti þegar upp var staðið. Næstu árin gekk á ýmsu. Ferguson stýrði United upp í annað sætið á öðru tímabili sínu en næstu tvö árin seig á ógæfuhliðina. Liðið endaði í ellefta og þrettánda sæti. Þetta sættu stuðningsmennirnir sig ekki við og kröfðust þess að Fergu- son yrði rekinn. Það sem bjargaði honum líklega vorið 1989 var að liðinu gekk vel í bikarnum og stóð í lokin uppi sem sigurvegari eftir tvo leiki gegn Crystal Palace. Það var á þessum tíma sem fór að ganga vel á Old Trafford. Manc- ester United varð Evrópumeistari bikarhafa árið 1990, fyrsta árið sem ensk lið fengu að taka þátt eftir ára- langa fjarveru i kjölfar harmleiksins rcnuuavno ■ Meistaradeild Evrópu: 1999 ■ Evrópumeistarar bikarhafa: 1991 ■ Meistarar meistaranna i Evrópu: 1991 ■ Heimsmeistarar félagsliöa: 1999 ■ Englandsmeistarar: 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003 ■ Bikarmeistaratitlar: 1990,1994, 1996, 1999, 2004 ■ Deildabikarinn: 1992, 2006 ■ Samfélagsskjöldurinn: 1990,1993, 1994, 1996, 1997, 2003 sæti úrvalsdeildarinnar. Manchester United hefur unnið 25 titla undir stjórn Fergusons og setur nú stefn- una á þann 26. Sóknin í 26. titilinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.