blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaftiö
UTAN ÚR HEIMI
SÚDAN
Vígamenn myrða börn
Friðargæsluliöar Afríkubandalagsins í Darfúr-héraði
fullyrða að arabísklr vígamenn sem njóta stuðning súd-
anskra stjórnvalda hafi myrt 63 í síðustu viku og þar
af 27 börn undir tólf ára aldri. Fólkið var myrt í árás á
búðir flóttamanna í vesturhluta héraðsins.
NÍGERÍA
Tímamót í jafnréttisbaráttunni
Virginia Etiaba hefur tekið við embætti ríkisstjóra
í Anambra-ríki í Nígeríu. Etiaba er sú fyrsta í
sögu Nígeríu sem gegnir slíku embætti. Hún tók
við embættinu eftir að ríkisþingið samþykkti að
vísa Peter Obi úr því fyrir stórfelld afglöp í starfi.
i-íi/i'Miimi^^^
Herinn í árásarstöðu
Dagblaðið Washington Times fullyrðir að varnarmálayfirvöld hafi
fyrirskipað hernum að vera reiðubúinn aö grípa til hernaðaraðgerða
gegn Norður-Kóreumönnum í kjölfar þess að stjórnvöld í Pjongjang
sprengdu kjarnorkusprengju 9. október. Þetta gerir það að verkum
að hægt verður að grípa til hernaðaraðgerða með stuttum fyrirvara.
Kjördæmisþing Framsóknar:
Siv sögð andvíg atkvæðagreiðslu
„Þetta er valdníðsla. Siv vill ekki
fá mælingu því að hún veit hvernig
hún kæmi út úr atkvæðagreiðslu.”
Þetta sagði einn
þeirra Framsókn-
armanna sem
í gær lýstu yfir
vanþóknun sinni
á þeim fregnum
« sem þeim bárust
&JP / um að ekki stæði
til að kjósa um
fyrsta sætið á kjördæmisþingi Suð-
vesturkjördæmis í dag.
Siv Friðleifsdóttir heilbrrgðisráð-
herra sækist ein eftir fyrsta sætinu
og að sögn heimildarmanna Blaðs-
ins hefur hún beitt sér fyrir því að
tillagan um fyrsta sæti verði ekki
borin undir atkvæði.
FRAMBJÓÐENDUR:
1. sæti: Siv Friðleifsdóttir
2. sætl Gísli Tryggvason
Samúel Örn Erlingsson
Una María Óskarsdóttir
Þórarinn E. Sveinsson
3. - 6. sæti: Hlini Melsteð Jóngeirsson
4. sæti: Kristbjörg Þórisdóttir
5.-6. sæu: Gunnleifur Kjartanss
„Það hefur verið gríðar-
leg óánægja með vinnu-
brögð hennar innan kjör-
dæmisins þótt menn
séu almennt ánægðir
með störf hennar sem
þingmanns og ráðherra,’
sagði annar viðmælenda Blaðs-
ins. Annar sagði að menn vildu
greiða atkvæði þótt enginn annar
sæktist eftir fyrsta sætinu. Flokks-
menn vildu lýsa yfir óánægju með
vinnubrögð ráðherrans í kjördæm-
inu. Þeir kvarta undan skorti á
skoðanafrelsi.
Öruggt er að kosið verður um
aðra frambjóðendur.
Baráttan um annað sæti hefur
verið hörð og þykir víst að
Gísli Tryggvason, Samúel
Ö.rn. Erlingsson og Una
María Óskarsdóttir skipti
Kópavogsatkvæðunum
nokkuð jafnt á milli sín.
Þess vegna geta úrslitin í
prófkjörinu ráðist með at-
kvæðum Framsóknarmanna í
öðrum bæjarfélögum.
Ekki náðist í Siv Friðleifsdóttur
heilbrigðisráðherra í gær.
ReKstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
$ala@rv.is • www.rv.is
Ry
Vorum að fá nýja
sendingu af
sængurfatnaði
Gæði, ending og góð þjónusta
Mikið og gott úrval
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 * Reykjavík
Þegar gæðin skipta máli
Lotus Professional borðpapplrsvörur
Til hátíðabrigða
I verslun RV að Réttarhálsi eru
nú á tilboði Lotus LinStyle
dúkar og servíettur í mörgum
litum. Einnig eru á tilboði
ýmsar gerðir af servíettum,
diskamottum og „löberum"
með jólamynstri.
Takmarkað magn er í boð! af surnum
jólavarnmgi. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Halldór Sigdórsson
aðstoðarverslunarstjóri hjá RV
Rannveig Guðmundsdóttir:
Vill Þórunni í
fyrsta sæti
■ Hörð barátta ■ Sigursveitin vill forystu
1. sæti: Árni Páll Árnason lögfræöingur
Gunnar Svavarsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaöur
2. sæti: Katrín Júlíusdóttir alþingismaöur
2. - 3. sætl: Magnús M. Norödahl, lögfræöingur ASf
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Rannveig Guðmundsdóttir, fráfar-
andi oddviti Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, ákvað í gær að
lýsa yfir stuðningi við framboð Þór-
unnar Sveinbjarnardóttur alþingis-
manns i fyrsta sæti í prófkjörinu nú
um helgina.
„Ég ætlaði ekki blanda mér neitt í
niðurröðun á lista eða annað slíkt.
En eftir stuðningsyfirlýsingar for-
ystumanna við ýmsa frambjóðendur
ákvað ég að stíga fram og lýsa yfir
stuðningi við þá manneskju sem
mér finnst að eigi að leiða listann.
Þórunn hefur setið á þingi í átta ár
og hefur mikla reynslu og þekkingu.
Hún á auðvitað að uppskera vegna
þess,“ segir Rannveig.
Af nítján frambjóðendum sækjast
Árni Páll Árnason lögfræðingur og
Gunnar Svavarsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, eftir fyrsta sæti auk Þór-
unnar Sveinbjarnardóttur.
„Það er ekki skrýtið að Hafnar-
fjörður sæki á í þessu prófkjöri því
að sigursveitin okkar er þar. Sam-
fylkingarmenn eru með sjö bæjarfull-
trúa af ellefu í Hafnarfirði,“ bendir
Rannveig á og bætir því við að þótt
þingmenn Samfylkingarinnar í
Reykjavík séu átta starfi þar fyrst
og fremst bara eitt félag. Félögin í
Suðvesturkjördæmi séu sex og sveit-
arstjórnarmenn Samfylkingarinnar
margir. „Umræðan um bæjarmálin
Þaðerekki
skrýtið að Hafnar-
fjörður sæki á í
þessu prófkjöri
Rannveig Guðmunds-
dóttir, fráfarandi oddviti
og landsmálin er mjög virk og hér
eru fleiri þungavigtarmenn sem
ræða um þessi mál en í öðrum kjör-
dæmum. Og þess vegna vigtar það
þungt þegar sterkir sveitarstjórnar-
menn gefa út yfirlýsingar um hverjir
eigi að vera í ákveðnum sætum,”
segir Rannveig og leggur jafnframt
áherslu á að í framboði séu margir
öflugir og góðir félagar hennar.
Katrín Júlíusdóttir, sem hefur
setið á þingi í eitt kjörtímabil, berst
um annað sæti við Magnús M.
Norðdahl, lögfræðing ASÍ, og Krist-
ján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúa á
Álftanesi.
Um þriðja sætið takast á þau
Valdimar L. Friðriksson alþingis-
maður, Sandra Franks varaþing-
maður, Kristín Á. Guðmundsdóttir,
formaður Sjúkraliðafélags íslands,
Tryggvi Harðarson, fyrrverandi bæj-
arstjóri á Seyðisfirði, og Jakob Frí-
mann Magnússon tónlistarmaður.
Auglýsingar í prent- og ljósvaka-
miðlum voru ekki leyfðar í Krag-
anum fyrir prófkjörið nú frekar en
endranær. Leyfilegt var hins vegar
að gefa út bæklinga og auglýsa fundi
með mynd af frambjóðanda.
2. - 5. sæti: Kristján Sveinbjörnsson, bæjarfulltrúi Álftanesi
3. sæti: Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Islands
Tryggvi Harðarson, fyrrverandi bæjarstjóri
Valdimar L. Friöriksson alþingismaður
3. - 4. sæti: Sandra Franks varaþingmaður
4. sætl: Guðmundur Steingrímsson, blaðamaður og tónlistarmaður
Jens Sigurðsson, formaður Ungra jafnaöarmanna I Kópavogi
4. - 5. sæti: Anna Sigríður Guönadóttlr, bókasafns- og upplýsingafræðingur
Gunnar Axel Axelsson viðskiptafræðingur
Sonja B. Jónsdótfif myndlistarkennari og kvikmyndagerðarmaður
5. sætl: Guðrún Bjarnadóttir sálfræðingur
Bragi Jens Sigurvinsson umferðareftirlitsmaður
7. - 8. sætl: Bjarni Gaukur Þórmundsson íþróttakennari