blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 12
blaði
Útgáfufélag: Árog dagurehf.
w Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ritstjórnarf ulltrúi: JanusSigurjónsson
Skattsvik á
háum stöðum
Stjórnmálamenn svíkja undan skatti, ekki síst þegar prófkjör nálgast.
Þetta er ljóst af fréttum Blaðsins síðustu daga. Rætt hefur verið við um-
brotsmenn og aðra sem hafa verið ráðnir til vinnu af stjórnmálaflokkum
eða einstökum frambjóðendum og samið um að þeir vinni svart. Þetta er
auðvitað fyrir neðan allar hellur. Því miður er þetta hvorki einsdæmi né
nýtt af nálinni.
Fólkið sem setur okkur lögin er nefnilega ekkert endilega líklegra til að
fara eftir þeim en við hin. Þetta sanna dæmin. Einn viðmælandi Blaðsins
sagðist leita sérstaklega eftir því að vinna fyrir stjórnmálamenn og stjórn-
málaflokka vegna þess að þar væru góðar líkur á að fá svarta vinnu. Aðrir
viðmælendur hafa haft orð á því að þeim hafi verið boðin svört vinna að
fyrra bragði. Framámenn í stjórnmálum hafa sem sagt hvatt til skattsvika.
Viðmælendur Blaðsins hafa unnið fyrir sjálfstæðismenn og samfylkingar-
fólk. Það er engin ástæða til að ætla að fólk úr öðrum flokkum sé ekki selt
undir sömu sök.
Flestir forsvarsmenn flokkanna vilja ekkert kannast við skattsvik, alla
vega ekki á skrifstofunum hjá sjálfum sér. Reyndar er það svo að flokk-
arnir skiptast upp í ótal félög, kjördæmisráð, fulltrúaráð og hvað þær nú
heita allar þessar stofnanir flokkanna. Þó það sé væntanlega misjafnt eftir
flokkum getur hver og ein stofnun haft sjálfstæðan fjárhag og hver og ein
beitt sínum aðferðum. Það er því víða hægt að svíkja undan skatti. Þetta
viðurkennir Skúli Helgason, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, í við-
tali við Blaðið. „Því miður er þetta landlægur ósiður og eitthvað sem þarf
að taka á í atvinnulífinu. Flokkarnir eru líklega hvorki betri né verri en
aðrir hvað þetta varðar.“
Það eru þó ekki aðeins umbrotsmenn og aðrir utanaðkomandi sem fá
greitt svart, hvort sem það er frá flokkunum og flokksstofnunum sjálfum
eða einstökum frambjóðendum. Fólk á kosningaskrifstofum fær í stórum
stíl borgað undir borðið. Þeir sem borga launin verja sig stundum með því
að segja þetta verktakagreiðslur og það sé viðtakendanna að standa skil á
skatti. Þetta kann að vera rétt í einhverjum tilfellum en oft er þetta líka
haugalygi. Og þó nótur komi fyrir greiðslu er ekki þar með sagt að skatt-
urinn komist nokkurn tíma á snoðir um það. Nóturnar eru nefnilega fyrir
bókhaldið og þeir sem skrifa þær hafa sumir fengið loforð um að enginn
nema endurskoðandinn fái nokkurn tímann að sjá þær, allra síst skattur-
inn. Nóturnar bera þess enda stundum merki, þar eru tilgreind laun en
enginn skattur, hvorki virðisaukaskattur né tekjuskattur.
Brynjólfur Þór Guðmundsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
PENZIM
»ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
ÚR SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS
Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefnafræði, hefúr
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skcið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
12 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaöiö
fYUi RQFfpu; eN
tÓFlí VflH SAGT
H VÆtþR.
\?KI'
VR Sm Sfgjj
\ jvuSHWNflíR
\ biuwím
Samfylkingin á
að vera 40% flokkur
Nú í vikunni kom regluleg skoð-
anakönnun Gallup sem sýnir Sam-
fylkinguna með fylgi fjórðungs
þjóðarinnar, 25%, og sem fyrr er
hún næststærsti stjórnmálaflokkur
landsins. Það er glæsilegur árangur
sem jafnaðarmenn hafa náð á ör-
fáum árum, að sameinast í einni
fylkingu og skapa raunverulegan
valkost við Sjálfstæðisflokkinn. En
það er ekki nóg.
ÁþessumvetriþarfSamfylkingin
að gera tilkall til forystu fyrir land-
inu og gera hverjum manni ljóst að
kosningarnar í vor munu aðeins
snúast um það hvort sérhagsmuna-
gæsla Sjálfstæðisflokksins eða
almannahagsmunir Samfylkingar-
innar munu móta samfélag okkar
næstu fjögur ár. Verkefni okkar er
býsna einfalt. Við þurfum að verða
stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.
Aftur til framtíðar
Við þurfum að taka forystu því
stjórnarflokkarnir hafa gefist upp
við efnahagsstjórnina. Verðbólga
og ofurvextir eru veruleiki venju-
legs fólks sem þeir hafa gefist upp
fyrir. Það bitnar hart á ungu fólki
og skuldsettu á meðan skjólstæð-
ingar sérhagsmunaflokkanna hagn-
ast á tá og fingri í stöðutökum. I
því ástandi þarf þjóðin forystu sem
þorir að kveðja íslensku krónuna
og skapa hér aðstæður fyrir fólk
og fyrirtæki eins og þekkjast í lönd-
unum í kringum okkur.
Við þurfum forystu sem getur
skorið upp stagbætt bóta- og skatt-
kerfi landsins sem er orðið svo
flókið og óskilvirkt að þeir sem
minnstar tekjur hafa borga hæstu
skattana, en þeir sem mest hafa
greiða minnst. Nú þegar vinnuafls-
skortur er allsráðandi refsum við
lífeyrisþegum fyrir sjálfsbjargar-
viðleitni með því að taka af þeim
yfir helming tekna þeirra í skatta
Helgi Hjörvar
og tekjutengingar meðan aðrir
geta frestað söluhagnaði eða greitt
miklu lægra hlutfall. Við þurfum
fólk sem getur komið á einföldu
skatta- og bótakerfi fyrir almanna-
hagsmuni í stað skrifræðisbákns
sérhagsmunaflokkanna sem bara
þjóna sínum.
Við þurfum forystu fyrir konur.
1 vor verður kosið um hvort kona
verði forsætisráðherra, eða hvort við
ætlum að bíða í aðra öld. Á hverjum
degi eru framin mannréttindabrot á
venjulegum konum í launamisrétti
sem jafnvel nær til lífeyriskerfisins.
Þar er þeim refsað með tekjum maka
og ekki taldar sjálfstæðir einstak-
lingar. í vinnunni er launamisréttið
það sama og þegar ríkisstjórnin tók
við fyrir tólf árum. En hún hefur
óspart hækkað skatta á lágar og með-
altekjur og því standa konur heldur
verr en áður. Helmingur þjóðar-
innar þarf nýja ríkisstjórn.
Gæfa og getuleysi
Það er gæfa okkar að vera rík að
mannauði og auðlindum. Við eigum
öflugt atvinnulíf sem skilar okkur
sívaxandi tekjum. Það er þeim
mun óskiljanlegra að við skulum
sætta okkur við það getuleysi sem
blasir við í stjórnmálunum. Það
ógnar árangri okkar að ná ekki
tökum á verðbólgunni, vera ekki í
trúverðugu myntsamfélagi og auka
svo á misskiptinguna að það skapar
sundrung í samfélaginu.
Við þurfum forystu sem ekki
heldur að það sé verkefni stjórn-
málamanna á 21. öldinni að koma
með verksmiðjur handa fólkinu.
Forystu sem veit að hlutverk hennar
er að búa venjulegu fólki góð skil-
yrði, efla menntun og skapa þannig
atvinnulífinu almennar aðstæður
til að blómstra. Það er kjarninn í
Fagra Islandi og eftir honum kallar
stærstur hluti venjulegs fólks. Þess
vegna á Samfylkingin að vera 40%
flokkur.
Höfundur er alþingismaður Samfylkingar-
innar í Reykjavík.
PENZiMer hrein,
tæroglitarlaus
náttúruvara byggð á
vatni en ekki fitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefni,
litarefnieða gerviefni
sem geta valdið
ofnæmisviðbrögðum.
PENZIM ínniheldur
engar fitur, oílur eða
kremblöndur sem
getasmitaðog eyðilagt
flíkureðarúmfot.
PENZIM
Rt(»A«n4ír*w
GEL
VVTtH Al I.NAJI KAl
St in » « tl'l
MARINI EVWWÍ
,VJv jni Sl .« fe Uodr
PENZIM
RrfUvvtUStiH>
LOTION
VVItll A1J Wlt RAl
wrut Attivi
MARiM etisntm
AtitJtKrUSUnfeftmJy
Penzim fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt.
p e n z i m. i s
Klippt & skorið
Ossur Skarphéðinsson skrifaði á
dögunum magnaða stjórnmálaskýr-
ingu á vef sinn (ossur.hexia.is) um
innanflokksátök í Sjálfstæöis-
flokknum. Varla þarf að deila
um það að Össur hefur með
leiftrandi stíl, skarpskyggni #
og fullyrðingagleði markað |
sérbássem einn fremsti stjórn-
málaskýrandi landsins. En svoverða menn líka
að taka skrifunum með saltkorni, því auðvitað
á Össur hagsmuna að gæta þegar hann segir
sundrungu í liði helstu andstæðinga sinna. Og
sumu er hagrætt, svo kenningin standist.
Til dæmis má nefna að Össur segir rót
átakanna vera hefndarþorsta þeirra,
sem vilja „gjalda fyrir glæpinn í Ráðhús-
inu, þegar Davíð Oddsson og Björn Bjarna-
son stálu af Ingu Jónu Þórðardóttur
oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins - korteri
fyrir kosningar". En þá gleymir hann að hent-
ugleikum því, að skoðanakannanir höfðu ít-
rekað sýnt að sjálfstæðismenn og borgarbúar
höfðu enga trú á því að henni tækist að end-
urheimta meirihlutann í
borginni. Ein könnunin
sýndi meira að segja að
þeir höfðu mun meiri trú
á Eyþóri Arnalds til þess
hlutverks, sem velti fyrir
sér í fullri alvöru að bjóða
sig fram gegn henni og stefndi allt í harðv-
(tugt leiðtogaprófkjör, þegar Björn Bjarnason
hjó á hnútinn með stuðningi beggja.
Hitt er svo annað mál að Össur hefur
sjálfsagt ýmislegt til síns máls um
undiröldurót í Sjálfstæðisflokknum.
Þannig hafa menn veitt farsanum í Norðvestur-
kjördæmi athygli, en þarkepptu
þeirBorgarÞórEinarsson,for-
maður SUS og sonur Ingu Jónu,
og Bergþór Ólason, aðstoðar-
maður samgönguráðherra, um
4. sætið á listanum. Bergþór hafði betur í full-
trúaráðskosningu, en þá dró Borgar sig í hlé og
taldi hentugra að kona af Skaganum tæki það.
Tilviljun ræður því svo að Herdís Þórðardóttir,
móðursystir hans, sækist nú eftir sætinu. Segja
gárungarnir augljóst að fjölskyldumálin verði í
fyrirrúmi i komandi kosningum.
andres@bladid.is