blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 blaði6 Vegna skipulagsástæðna þarf fyrir- tækið að loka, því hér á að byggja hús og slippirnir eiga allir að fara,“ segir Gunnar Richter, fram- kvæmdastjóri Daníelsslipps. Síð- asta skipið, Fanney HU sem hét Jón Jónsson SH upphaflega, rann út úr Daníelsslipp á mánudagsmorguninn og segir Gunnar það hafa verið grátlega sjón að sjá síðasta skipið fara úr slippnum. Daníel Þorsteinsson, sem fyrirtækið er kennt við, stofnaði Daníelsslipp árið 1936 ásamt syni sínum og tengdasyni. Daníel var til margra ára slippstjóri í Slippfélaginu áður en hann stofnaði fyrirtækið. Gunnar segir að fjórir hafi starfað í slippnum undir lokin. „Þegar mest var voru starfsmenn í slippnum hins vegar um fimmtíu talsins, en mest var að gera á árunum 1940 til 1970“ Sjötíu ára sögu Daníelsslipps lokið: m 1811 heimili. Ég er viss um að slippurinn skipi sér- stakan sess í huga íslendinga og þá sérstaklega sjómanna.“ Að sögn Gunnars voru oft um tuttugu skip á vegum slippsins á landi og hafi slippurinn af- Gunnar segir að tilfinningin sé súr að þurfa að yfirgefa slippinn. „Það var mjög sérstök til- finning að sjá síðasta skipið renna út. Ég byrjaði að vinna hér tólf ára gutti og er hér enn. Það mætti því segja að þetta hafi verið mitt annað greitt að meðaltali um sextíu til sjötíu skip á ári. ,Fanney HU var 41. skipið sem við afgreiddum í ár,“ segir Gunnar. Starfsmenn Daníelsslipps flögguðu í hálfa stöng á mánudaginn þegar síðasta skipið rann út úr slippnum. „Við erum ekki sáttir við ákvarðanaferli fyrrum borgarstjórnarmeiri- hluta í Reykjavík. Það er enn nóg að gera í þess- ari atvinnugrein og þeir hefðu mátt huga betur að atvinnumálum í stað tónlistar- og kaffihúsa. Þjóðleikhúsið opnar nýtt leiksvið, Kúluna eftir Bernd Ogrodnik Brúðusýning fyrir fullorðna „Undur einfaldleikans" Mbi., mk „...heillandi heimur" Fbi., ss ★ ★ ★ ★ , DV, PBB ,með ólikindum hvernig honum tekst að glæða brúðurnar lifi." viðsjá, Rás 1. þes Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJOÐLEIKHUSIÐ blaöiö LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 33 Flögguðu í hálfa stöng Fanney HU var síðasta skipið sem rann út úr slippnum á mánudaginn. Myndir/Frikki Farnir að huga að framtíðinni Framkvæmdastjórinn segirþá ekki hætta í bransanum þó að þeirþurfi að yfirgefa slippinn við Bakkastig. Síðasti meirihluti var á miklum villi- götum þegar kom að hafsækinni at- vinnustarfsemi,“ segir Gunnar. Stálsmiðjan, með svipaða starf- semi og staðsett við hlið Daníelss- lipps, verður áfram starfandi. „Mér skilst að Stálsmiðjan fái að vera að minnsta kosti út næsta ár. Stál- smiðjan er að stórum hluta mannað af Portúgölum og farandverka- mönnum og mér finnst kjánalegt og skjóta skökku við að eitt skuli ekki yfir alla ganga í þessum málum.“ Þessa dagana vinna starfsmenn Daníelsslipps við það að taka til og vinna að öðrum landverkefnum og segir Gunnar að fyrirtækið sé að huga að framtíðinni þessa stundina. „Við munum flytja annað, en sem stendur viljum við ekki opinbera hvert það verður. Við erum alla vega ekki hættir í bransanum," segir Gunnar. Kvenleg og mjúk plata Söngkonan Hera Björk Þórhalls- dóttir er landsmönnum að góðu kunn fyrir kraftmikinn og hugljúfan söng sinn en hún hefur nú sent frá sér nýja plötu sem ber hinn einfalda titil Flera Björk. „Ég er ótrúlega ánægð með afrakst- urinn og er búin að vera að syngja út um allar trissur að undanförnu og mun halda því áfram næstu vik- urnar,“ segir Hera kát með plötuna. „Þetta er voðalega kvenleg og mjúk tónlist. Ég valdi lögin sjálf og þau eru öll í miklu uppáhaldi. Ég var með frábært fólk með mér við vinnslu á plötunni og þetta gekk hratt og vel fyrir sig.“ Hera semur sjálf flesta textana á plötunni og segir hún þá vinnu hafa gengið ágætlega. „Ég á frekar auðvelt með að skrifa texta þegar ég gef mér tíma, sest niður og einbeiti mér að því.“ Aðspurð um yrkisefnin segist Hera aðallega semja um ástina og hlutverk sitt sem konu i tilverunni. Auk þess að fylgja eftir plötunni sinni er Hera að vinna fyrir hinn ís- lenska X-Faktor sjónvarpsþátt sem brátt hefur göngu sína og er ætlað að leysa Idol-þættina vinsælu af hólmi. „Þetta er mjög spennandi verkefni en ég get því miður ekki upplýst strax ná- kvæmlega í hverju vinnan mín felst,“ segir Hera Björk leyndardómsfull að lokum. Plötuna hennar nýju má fá í öllum betri hljómplötuverslunum. aboPha adoPharma ÐETA CAROTIN :iNK-DioTir KAPSEIN adoPhapma adoPhaw ROPFEN: adoPharma adoPharaaa W LACH5ÖL OMEGA-a-FETOAUREN % mSWomint SALMON OIL CAPSULES 3 FAm ACIDS '**t'VkQminE SALDEI- ^ BONBONS KNOBLAUCH Misfel + WeiBdorn gonttoi'-S ADOPHARMA Fjölskylda af fiörefnum vitamín með ávaxtabragði 20% kynningarafsláttur 2. nóvember til 9. nóvember MULTIVITAH 2UCKERFREI Fæst í: Arbæjarapóteki, Garðsapótek, Lyfjavalt Alftamýri, Lyfjavali Hæðasmára, Lyfjavali Mjódd, Lyfjaver og Rlmaapóteki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.