blaðið - 04.11.2006, Page 24
24 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaðið
tíornm og Faris
Mesti munaðurinn er náttúrlega að geta
búið þannig um hnútana í lífi sínu að
maður þurfi ekki að vinna meira en svo
að maður geti alltaf átt nokkra klukku-
tíma á dag með börnunum sínum.
Maður er alltaf á svolitlum hlaupum og
það er kannski þess vegna sem þau eru
manni ofarlega í huga. Það vill verða
þannig að eitthvað þarf að sitja á hakan-
um og það er oftar en ekki heimilið. Það
er kannski að mörgu leyti veruleiki nú-
tíma fslendingsins.
Annað sem er alger munaður er að eiga
nokkra góða daga í París, að búa í fjórða
hverfi og vera í göngufæri við allt það
stórkostlega sem sú borg hefur upp á að
bjóða. Ég reyni að finna tækifæri til að
komast þangað með reglulegu millibili.
Fjórða hverfið eða Mýrin (Le Marais)
er náttúrlega frábært og svo er maður í
göngufæri við Latínuhverfið og getur í
raun farið hvert sem maður vill í borg-
inni.
Borgin sjálf er algerlega heillandi og það
er mikil mýta að Frakkar séu óliðlegir og
leiðinlegir. Ég hef aldrei upplifað það og
líður alltaf jafn vel að koma þangað. Þetta
er náttúrlega mjög mikil menningarborg
og maður hefur á tilfinningunni að það
sé eitthvað mennskt við hana.
Allir leyfa sér einhvern nmn-
að stöku sinnum og pað er að
sjálfsögðu jafn misjafnt og
mennirnir eru margir í hverju
sá munaður er fólginn. Sum-
um finnst gott að gera vel við
sig t mat og drykk á meðan
öðrum finnst munaður að aka
utn á dýrum ogfínum btl eða
fá tækifæri til að flatmaga á
framandi sólarströnd, latts við
áhyggjur Itversdagsins. Blað-
ið spurði fittttn einstaklinga,
hver væri mesti tnunaðurinn.
Katrín Jakobsdóttir, varaformaöur VG
Dýr krem og
rólegir dagar
Að eiga nógan tíma er mesti munaðurinn
sem ég get hugsað mér. Að geta gert ná-
kvæmlega það sem mann langar að gera
án þess að vera bundinn neins staðar. Dag-
ar þar sem ekkert er á dagskránni eru al-
ger munaður og slíkum dögum vil ég helst
eyða á bæjarrölti eða liggja í heitu baði og
bara slappa af. Á sumrin nota ég slíka daga
til að fara út úr bænum og finnst það líka
alger munaður. Á sumrin eru fleiri dagar
þar sem tími gefst til að slappa af og ég
nota hvert tækifæri til að fara út úr borg-
inni og leggjast í græna laut.
Munaðurinn sem ég eyði pening í er góð-
ur matur og dýr krem. Mér finnst gott að
borða góðan mat og finnst gott hráefni,
nýtt grænmeti og ferskvara, vera mikill
munaður.
Ég er líka forfallinn kremadýrkandi og
ég kaupi mér stundum ótrúlega fín og
dýr krem og er ginnkeypt fyrir lofræð-
um snyrtivöruframleiðenda. Ég hef samt
smávægilegan grun um að kremin virki
kannski ekki alltaf sem skyldi en máttur
trúarinnar drífur langt í þessum efnum.
Að finna
innri ró
Fyrir utan munaðinn að vera með börnun-
um mínum og mínum nánustu finnst mér
mesti munaðurinn vera að finna innri ró
og lifa í núinu.
Við erum svo oft heltekin af streitu og
spennu. Þess vegna er munaður að upplifa
þessa tilfinningu þar sem maður er í jafn-
vægi og sáttur við sjálfan sig og umhverfið.
Mér finnst sú tilfinning vera alger munað-
ur og eitt af því yndislegasta sem hægt er
að upplifa.
Mér finnst líka mikill munaður að lifa í nú-
inu. Það er svo mikilvægt að minna sig á
það reglulega að njóta stundarinnar hér og
nú en vera ekki of upptekinn af því sem er í
framtíðinni eða því sem maður hefur gert.
Fólk er kannski að ergja sig á einhverju
sem er liðið sem er algerlega tilgangslaust.
Mér finnst ég stundum gera það sjálf en
held þó að ég sé að læra betur og betur að
staldra við og lifa í augnablikinu eins og
jógarnir tala um.
Svo finnst mér alger munaður að geta hleg-
ið. Þegar það koma tímabil þar sem ég hlæ
ekki mikið þá sakna ég þess verulega og
þess vegna finnst mér það alger guðsgjöf
að geta séð spaugilegu hliðarnar á lífinu
og hlegið.
Valgeröur Matthíasdóttir, sjónvarpskona
Tími, heilsa og
íslenskt vatn
Ég myndi segja að mesti munaðurinn væri
tími og góð heilsa.
Peningar og veraldlegur munaður hrökk-
va skammt ef heilsan og tími til að njóta
lífsins eru ekki til staðar. Ég hef oft lítinn
tíma en hef að undanförnu verið að fatta
hvað tíminn er dýrmætur. Ég reyni að taka
mér tíma í hverri viku til að njóta lífsins og
það þarf ekki að vera eitthvað mjög skipu-
lagt. Hlutir eins og hálftíma göngutúr gera
heilmikið fyrir mig og ég kem endurnærð-
ur aftur til leiks.
Annars var ég nvverið á mánaðar tónleika-
ferðalagi með Ghostigital um Bandaríkin
að kynna plötuna okkar, In cod we trust,
og þá fann maður virkilega fyrir því hvað
íslenska vatnið er mikil snilld. Að geta
skrúfað frá krananum og fengið ótrúlega
gott og ferskt vatn. Vatnið er mikill mun-
aður sem við búum við hér á íslandi og
maður kann oft ekki að meta það fyrr en
maður fer í burtu. Ég vona að íslenska vatn-
ið megi vera í friði og ókeypis sem lengst.
Einhverjar blikur eru á lofti um að vatnið
verði ekki ókeypis í framtíðinni sem mér
fyndist virkilega sorglegt.
Indversk slökun
og íslenskt vatn
Þegar ég hugsa um mesta munaðinn í
mínu lífi þá dettur mér strax í hug shirod-
hara sem er yndislega slakandi ayurveda-
meðferð sem ég fékk á Indlandi fyrr á
þessu ári. Hún fer þannig fram að volg olía
er látin leka hægt á ennið á manni í þrjátíu
mínútur. Þetta er alveg mögnuð reynsla og
ótrúlega slakandi. Ég bókstaflega sveif af
vellíðan og ég hlakka mikið til að reyna
þetta aftur.
Annar munaður sem er mér ofarlega í
huga er íslenska vatnið. Þegar ég kem frá
Indlandi er alltaf svo ótrúlega mikill lúxus
að geta skrúfað frá krana og drukkið hreint
vatn. Maður lærir miklu betur að meta
það þegar maður hefur dvalist í löndum
þar sem tært vatn er langt frá því að vera
sjálfsagður hlutur. Maður finnur svo vel
hvað maður hefur það gott hérna á íslandi.
Svo er ótrúlega mikill munaður fólginn I
því að fara á jógadýnuna og gera nokkrar
jógaæfingar. Ég fæ alltaf svo mikla orku
og kraft út úr því og það er svo sannarlega
mikill munaður.
Ingibjörg Stefánsdóttir, jógakennari