blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 29
28 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaðið
z.
v.
,Eg kann mitt og ég þarf ckkert
aö vcra á varðbergi gágnvart
því að eitthvað klikki niðri
í hljómsveitargryfju. Þá fcr
ég át á svið fyrir franian 400
áliorfcndur og mérfinnst cins
og ég sé að labba niður Lauga-
vcginn. Þetta cr ekkert mál."
Utíf í vafa
°ga
Kristinn Sigmundsson er
nýkominn frá San Franc-
isco þar sem hann dvaldi
í tvo mánuði og söng í
óperuhúsi borgarinnar
hlutverk Marke konungs í Tristan
og Isold eftir Wagner. Kristinn hlaut
afar lofsamlega dóma gagnrýnenda
fyrir söng sinn. Þann 18. þessa mán-
aðar syngur Kristinn í Salnum við
undirleik Jónasar Ingimundarsonar
og 23. nóvember syngur hann á sin-
fóníutónleikum. Söngvarinn, sem
nýtur mikillar virðingar í hinum
alþjóðlega óperuheimi, segir að í
æsku hafi hann ekki ætlað sér að
verða söngvari.
Söngvarinn sigraði kennarann
„Þegar ég var í Menntaskólanum
í Hamrahlíð héldu fimm skólafé-
lagar á mér inn á kóræfingu hjá
Þorgerði Ingólfsdóttur. Þegar ég var
dottinn inn í stofuna þar sem Þor-
gerður stóð og horfði á lætin með
átorítetssvip var ekki um annað að
ræða hjá mér en að setjast. Svo fékk
ég blað í hendur sem ég frétti seinna
að væri kallað nótur, og söng með.
Eftir þessa fyrstu æfingu kviknaði
áhuginn. Þarna var eitthvað annað
en Rolling Stones og Bítlarnir sem
ég hlustaði mest á á þessum tima,“
segir Kristinn.
„Eftir stúdentspróf munaði engu
að ég færi í söngnám til Vínar.
Ég var kominn með skólavist en
hálfum mánuði áður en ég átti að
fara út kynntist ég konunni minni
sem var hér í hjúkrunarnámi. Ég
gat ekki hugsað mér að fara einn út
og skilja hana eftir svo ég hætti við
og innritaði mig í lífræði í Háskól-
anum. Fram að því hafði ég svosem
ekkert vitað hvað ég ætlaði að verða.
Ég lauk því námi og kenndi líffræði
í Menntaskólanum við Sund um
tíma. Samtímis söng ég í kórum og
þar sem ég var með stærri rödd en
gengur og gerist var ég stundum
látinn syngja sóló. Þá skalf ég á bein-
unum og jarmaði tóna út í loftið. Ég
var svo að segja búinn að gefa alla
einsöngvaradrauma upp á bátinn.
Mér fannst ég ekkert hafa í það að
gera og þótti betra að vera góður
í kór en lélegur einsöngvari. Svo
vantaði sólósöngvara í La Travi-
ata á tónleikum og ég sló til. Guð-
mundur Jónsson, sem söng þar eitt
af stærstu hlutverkunum, tók eftir
mér og til að gera langa sögu stutta
þá fór ég haustið eftir í söngtíma til
Guðmundar í Söngskólann og lauk
því námi á tveimur árum.
Smám saman fann ég að ég hefði
kannski eitthvað í þetta að gera og
söngvarinn tók að taka völdin af
kennaranum. Ég tók próf í uppeldis-
og kennslufræðum og eitt af því sem
ég lærði þar var að láta nemendur sjá
um kennsluna. Ég nýtti mér þetta
og meðan þeir kenndu sat ég inni á
skrifstofunni með nótur og lærði
texta. Ég hafði samviskubit og hugs-
aði stundum með mér hvort ég væri
að svíkjast um en nemendur sögðu
mér seinna að þetta hefðu verið þeir
tímar sem þeir hefðu lært einna mest
á. Árið eftir fór ég í söngnám til Vínar
og eftir það fór boltinn að rúlla.“
Kröfuharðir áhorfendur
Á ferlinum hefurðu sungið víða
um heim og ert á stöðugum ferða-
lögum vegna vinnu. Verðurþað ekki
þreytandi?
„Það fer eftir því hvar maður er
og hvað maður er lengi á hverjum
stað. Það getur verið skelfilega þrey t-
andi að vera á nokkurra vikna tón-
leikaferðalagi þar sem maður er á
hótelhergi í þrjár til fjórar nætur á
hverjum stað. Nýlega var ég í San
Francisco í tvo mánuði og það var
yndislegur tími og ég hafði nóg
að gera við skemmtileg verkefni.
Borgin er ótrúleg og fólkið er þægi-
legt og afslappað. Svo getur maður
lent á stöðum þar sem maður verður
Kristinn Sigmundsson
I hlutverki morðingjans Sparafucile i
óperunni Rigoletto eftir Verdi. Myndin
tekin ísíðasta mánuði í San Francisco.
Ljósmyndarr.John F. Martin
þunglyndur við það eitt að hugsa
um nafnið á borginni. Það er allur
gangur á þessu. En ég er búinn að
Sjóntækjafræðingur með
réttindi til sjónmælinga og
linsumælinga
Greiðslukjör
í allt að 36
mánuði
§Gleraugað
Biáu húsin við Faxafen
Suðuriandsbraut 50
108 Reykjavík
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is
(visa/euro) Engin útborgun
blaðið
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 29
vera svo lengi í þessum bransa og
þekki ekki neitt annáð.“
Nú eru áhorfendur sennilega mis-
munandi eftir löndum og miskröfu-
harðir. Hefurðu lent íþvt aðþað hafi
verið púað á þig?
„Nei, það hefur aldrei hent mig. Ég
hef sungið mikið í Parísaróperunni
og áhorfendur þar geta verið ansi
ruddalegir ef þeim mislíkar. Ég hef
lent í því oftar en einu sinni að púað
var á söngvara sem voru að syngja
með mér. Ég man sérstaklega eftir
einu atviki sem gerðist í Fást eftir
Berlioz, sem er verk sem er svívirði-
lega erfitt fyrir tenór. Tveir tenórar
sungu aðalhlutverkið til skiptis,
báðir heimsnöfn, en hvorugur
þeirra réð almennilega við verk-
efnið. Annar var dramatískur hetju-
tenór og hinn var lýrískari. Til að
syngja þetta hlutverk þurfa menn
að geta gert hvort tveggja. Hvorugur
þeirra gat sameinað þetta tvennt.
Það var púað á þá eftir hverja ein-
ustu sýningu. Annar þeirra sagðist
aldrei eiga eftir að syngja í París
aftur. Mér brá við þær móttökur
sem þeir fengu. Ég hef sloppið við
svona lagað og mér hefur yfirleitt
verið vel tekið.“
Einsog að labba
niður Laugaveginn
Þú syngur ífrœgustu óperuhúsum
heims. Ertu alltaf sjálfsaruggur á
sviði?
„Á tímabili var ég að safna óperu-
húsum og það var viss áfangi á ferl-
inum að syngja í Parísaróperunni.
Ég söng þar að minnsta kosti tvær
uppfærslur á ári í tíu ár og vann með
fólki sem var stór nöfn á Metropo-
litan. 1 huganum bar ég mig saman
við þetta fólk og sá að ég þurfti ekk-
ert að skammast mín gagnvart því.
Ég gerði hvorki betur né verr, alla-
vega ekki verr, þannig að ég sagði í
einhverri kokhreysti að ég væri ekk-
ert að sækjast eftir því að syngja i
Metropolitan en ég vissi að það kæmi
að því. Svo gerðist það og það var
toppurinn í þessari húsasöfnun. Nú
er orðinn fastur punktur að syngja í
Metropolitan og ég verð þar talsvert á
næstu árum og í San Francisco.
Þegar maður er kominn í Metro-
politan, með bestu óperuhljómsveit
í heimi og með bestu hljómsveitar-
stjóra sem völ er á, í húsi þar sem
menn sætta sig ekki við annað en
það besta og ekki er spurt hvað hlut-
irnir kosta, þeir eru bara fengnir, þá
er þetta allt saman svo öruggt. Eg
kann mitt og ég þarf ekkert að vera
á varðbergi gagnvart því að eitthvað
„Ég hefekki nokkurn áhuga áfallegum röddum, ef
þessar tilfinningar vantar. Ég sofna efég hlusta á
söng sem erfallegur en segir mér ekkert og efégget
ekki sofnað yfir honum þá leiðist mér."
klikki niðri í hljómsveitargryfju. Þá
fer ég út á svið fyrir framan 400 áhorf-
endur og mér finnst eins og ég sé að
labba niður Laugaveginn. Þetta er
ekkert mál.
Síðastliðinn vetur söng ég í Metro-
politan hlutverk Rocco í Fidelíó í
fyrsta sinn á ævinni. Þetta er eitt
af stærstu hlutverkunum í Fidelíó
og það er ekki vaninn að söngvarar
prufukeyri stór hlutverk í stóru óperu-
húsi einsog Metropolitan. Mér var
alveg sama. Ég hafði sem sagt aldrei
sungið þetta áður en var samt alveg
pollrólegur. Ég held að ef ég hefði
sungið hlutverkið í litlu óperuhúsi
í Þýskalandi þá hefði ég sennilega
skolfið á beinunum því ég hefði ekki
vitað við hverju ég ætti að búast af
samsöngvurum eða hljómsveit. Það
hefði verið eins og að vera á bremsu-
lausum bíl í þoku í Kömbunum. En
í Metropolitan var ég á stað þar sem
allar aðstæður eru pottþéttar."
Ruddaskapur í Parísaróperunni
Óperusöngvarar hafa orð á sér
fyrir að vera prímadonnur. Er það
svo?
Framhald á nœstu opnu
í.tí
5Ȥ
rafmagnsrum verð fra 84.510.
dúnsœngur & koddar
> i
nattborð verð 9.800.-
eldhusstólar
eldhusborð
barstolar
. i'-r-.,:..' ,..-q
borðstofa
sjonvarpsherbergið
stofa
svefnsófar
sofasett & hornsófar
stolar / casper 39.000,-
1 mmm www. toscana. is
HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KOP S:58 7 6090 HÚSGÖGNIN FÁST EINNIG i HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535