blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 36
3 6 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaöiö
Ný plata frá Óskari Péturssyni frá Álftagerði
Svngurog
gerir vio bíla
íttSfc
Oskars Péturssonar,
einn af Álftagerðis-
bræðrunum, hefur
sent frá sér sína
þriðju sólóplötu, en
á plötunni syngur
Óskar gömul og ný lög eftir Gunnar
Þórðarson. „Á plötunni eru fjórtán
lög og níu af þeim eru ný lög en hin
eru gömul og góð. Þetta eru gull-
molar eins og Bláu augun þín, Ást-
arsæla og Vetrarsólin en nýju lögin
eru líka gullmolar að minu mati og
þeirra sem hafa heyrt þau,“ segir
Óskar og bætir við að Gunnar Þórð-
arson sé magnaður. „Það var ein-
stakt að syngja lög Gunnars Þórðar-
sonar og að fá að fylgjast með því
hvernig lögin urðu til í höndum
hans. Gunnar fékk líka úrvalstexta-
höfunda með sér í lið og þar á meðal
eru Davíð Oddsson, Gísli Rúnar
Jónsson, Einar Már Guðmundsson
og Friðrik Erlingsson."
Geri við bíla með söngnum
Óskar er langt frá því að syngja
einn á nýju plötunni því með
honum er 16 manna kammerkór,
Hymnodia. Auk þess eru Jóhann
Friðgeir Valdimarsson og Regína
Ósk gestasöngvarar. „Það má eigin-
lega segja að kórinn syngi bakraddir
fyrir mig því þetta eru ekki venju-
legar útsetningar fyrir kór. Ég fékk
líka karlakórinn í Skagafirði til að
syngja með mér eitt lag á plötunni.
Gunnar sagði að það væri svo góður
hljómur í kórnum að það yrði að
nota hann, það kæmi ekkert annað
til greina og vitanlega hafði hann á
réttu að standa,“ segir Óskar og upp-
lýsir að þegar sé búið að skipuleggja
tvenna útgáfutónleika á Akureyri 17.
nóvember. „Kynningarnar tengdar
plötunni eru rétt að byrja núna og
það verður því nóg að gera fram að
jólum við að troða sér alls staðar,
segir Óskar og hlær. „Ég er bifvéla-
virki og áður söng ég með bifvéla-
virkjuninni en núna geri ég við bíla
með söngnum.“
Hvattir til að gefa út plötu
Flestir kannast við Álftagerðis-
bræðurna en þeir skutust upp á
stjörnuhimininn fyrir tíu árum eða
svo. Saman hafa þeir gefið út þrjár
plötur og hafa skemmt víða enda er
eftirspurnin mikil. „Við erum búnir
að vera eins og farfuglar úti um allt.
Við höfðum lítillega verið að syngja
áður en fyrsti diskurinn kom út
en það var ekki mikið nema í sitt í
hvoru lagi.“
Óskar segir að athyglissýki sé
sennilega ástæðan fyrir því að þeir
bræður tóku sig saman og gáfu út
sina fyrstu plötu. „Svo ég tali eins
og maður þá vorum við hvattir til
þess, það var stöðugur þrýstingur
alls staðar frá. Við fengum bréf frá
ókunnugu fólki sem krafðist þess
að við gerðum eitthvað. Þannig að
við létum undan og sjáum alls ekki
eftir því. Þegar við gerðum fyrstu
plötuna þá svaf ég vart fyrir spenn-
ingi og var með þvílíka magaverki.
Þetta var alveg ótrúleg upplifun
en við bræðurnir syngjum aldrei í
okkar eigin fjölskylduboðum eða
þess háttar. Við syngjum bara þegar
við komum fram saman og ef það
eru formlegar æfingar."
Nógu montnir fyrir
Áður en ráðist var í fyrstu plötu
Álftagerðisbræðra höfðu þeir allir
komið fram áður, bæði einir og með
kórum.Þeirurðugríðarlegavinsælir
á skömmum tíma en Óskar segir að
þeir hafi litið fundið fyrir því. „Ég
fann ekkert fyrir því og ég held
að enginn okkar hafi fundið fyrir
því. Við höfum alltaf litið á þetta
sem sjálfsagðan hlut. Þetta hafði
afskaplega lítil áhrif á okkur og við
urðum ekki montnari enda kannski
nóg fyrir. Ég held við höfum ekki
• Kynning á frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík • Kynning á frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík •
Kynning á frambjóðendum
Opinn fundur með frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar
í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 4. nóvember
kl. 14 aö Hallveigarstíg 1.
Allir velkomnir.
' Kynning á frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík
Samfýlkingarfélagið
í Reykjavík
www.sffr.is
gert okkur grein fyrir því hvað við
vorum í rauninni þekktir. Ég held
að það tengist því að við erum bú-
settir fyrir norðan, þú verður ekkert
var við þetta á Akureyri og í Skaga-
firðinum. Við verðum ekki varir við
það að við séum þekktari en Pétur
og Páll. Það er helst þegar maður
kemur í þessa Sódómu fyrir sunnan
að maður finnur til sín,“ segir Óskar
og hlær. „Ég verð hins vegar að við-
urkenna að það er erfiðara að standa
einn uppi á sviði og syngja heldur
en að vera í félagsskap bræðranna.
Ég er í svo vernduðu umhverfi þegar
við erum margir saman.“
Fjarstæðukennt að
ég yrði söngvari
Þrátt fyrir að Óskar segist ekki
hafa ætlað að verða söngvari frá
unga aldri hefur hann sungið alla
tíð og var snemma kominn í kór.
„Ég var farinn að syngja áður en
ég talaði og ég hef sannanir fyrir
því. Það eru orð gamalla nágranna
úr Skagafirðinum sem hlustuðu á
þetta og sögðu að ég hafi setið á rass-
gatinu, hvorki getað talað né gengið,
en gat sungið með útvarpinu. Svo
varð ég söngvari og mér fannst það
alveg fjarstæðukennt. Hvað þá að ég
myndi syngja með köllum eins og
Gunnari Þórðarsyni, sem ég hlust-
aði á sem ungur drengur. Ég hefði
þorað að leggja hausinn að veði að
það myndi aldrei gerast. Þetta er
hins vegar ekki í fyrsta sinn sem ég
vinn með Gunnari því við bræður
fengum hann til að stjórna einni
plötu með okkur auk þess sem við
vorum með honum á Broadway þar
sem við troðfylltum Broadway í
mörg herrans skipti.“
Æfi mig í hljóði
Óskar segist ekki vera farinn að
huga að annarri sólóplötu enda
segist hann bara taka eina plötu í
einu. „Minn hugur stefnir til þess
að við bræðurnir gerum eina plötu
svona í restina en við erum að verða
gamlir, sá elsti er orðinn 63 ára sem
þykir þó nokkuð í söngbransanum.
En þetta er eitthvað sem er bara í
hausnum á mér og kannski verður
ekkert úr þessu. Ég held að það væri
viturlegt að gera það áður en allir
aðdáendurnir hrökkva upp af enda
hefur mikið verið spurt eftir öðrum
diski frá okkur bræðrunum. Mikið
af plötuútgáfu stílar inn á yngra fólk
og þessi markhópur sem hlustar á
okkur er því stundum útundan.“
Óskar segist ekki undirbúa sig sér-
staklega áður en hann kemur fram.
„Ég æfi mig aðeins fyrir tónleikana
en ekki mikið. Ég á aðeins inni í
lagabankanum sem er eini bankinn
sem ég á eitthvað inni í. Ég á ríku-
blaðið
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006 37
lega innistæðu þar en mætti náttúr-
lega vera duglegri að æfa mig. Hins
vegar syng ég aldrei heima hjá mér.
Ég æfi mig í hljóði og hef lengi gert
það. Konan heyrir stundum bara
uml í mér og þá er ég með nótur og
texta að æfa mig.“
Skringilegur söngferill
Óskar segist mega vel við una
þegar hann lítur yfir tónlistar-
feril sinn enda segist hann hafa
uppskorið ríkulega fyrir það sem
hann hafi gert. „Söngurinn byrjaði
skringilega hjá mér. Það er oft sem
menn enda í kórum en ég byrja korn-
ungur að syngja i karlakór og enda
svo á sextugsaldri að syngja dægur-
lög. Þetta er öfugt við marga sem
glamra í dægurlögum á yngri árum
en skella sér svo í kór þegar þeir eld-
ast. Ég var undir tvítugu þegar ég
var farinn að syngja einsöng með
karlakór. Fyrst var ég ofboðslega
stressaður, nær dauða en lífi, en ég
finn ekki fyrir því lengur. Ef ég finn
að ég er að gera vel og kann það sem
ég er að gera þá verð ég glaður. Eftir
á er ég gjörsamlega búinn, ég er
glaður en tómur. Þá finnst mér eig-
inlega best að vera einhvers staðar
einn.“
„Ég var farinn aö
syngja áður en
ég talaði og ég
hef sannanir fyrir
því. Það eru orð
gamalla nágranna
úr Skagafirðinum
sem hlustuðu á
þetta og sögðu
að ég hefði setið
á rassgatinu,
hvorki getað talað
né gengið, en
gat sungið með
útvarpinu"
svanhvit@bladid.net
Sýnum stuðning
Það má með sanni segja að björg-
unarsveitarstarfið sé óeigingjarnt
og fórnfúst enda eru þúsundir björg-
unarsveitarmanna og -kvenna til
taks allan ársins hring þegar við
hin þurfum á aðstoð að halda. Þrátt
fyrir að meðlimir björgunarsveita
starfi i sjálfboðavinnu er alltaf
ákveðinn kostnaður sem fylgir
rekstri björgunarsveitanna, kostn-
aður vegna þjálfunar, húsnæðis,
tækja og fleira. Af því tilefni munu
björgunarsveitir Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar fara af stað með
fjáröflun um allt land um helgina
þar sem meðlimir sveitanna selja
lítinn neyðarkall.
Til að sýna málefninu stuðning
mætti herra Ólafur Ragnar Gríms-
son í Smáralind í gær og aðstoðaði
við söluna. Ekki fylgir sögunni
hvort Ólafur seldi neyðarkall en
ljóst er að viðtökurnar voru góðar.
Neyðarkallinn kostar þúsund
krónur og björgunarsveitirnar von-
ast eftir stuðningi landsmanna en
kallinn verður seldur við verslanir,
verslunarmiðstöðvar og aðra staði
sem almenningur sækir.
Seldi neyðarkalla Forseti islands
mætti í Smáralind i gær til að sýna
björgunarsveitum landsins stuðning
en um helgina munu meðlimir þeirra
selja lítinn neyðarkall á þúsund krónur.
'>&£***
W V
J óíahíaöbcráió'
í «5tWnasal Hó-tel «5ög0> öamelhar
Ijö-ffehgah matcg gódcn sKemm-tjkh.
þtk gtxör þér ól glrhSegtk Naöbotöl
sKemm-^r þér o-hdlr tóahdl t>ÍTLI og
sKefllr bér svo tf-t A gólflð og
teKtw hoKKtw lé-ttspor.
Pantanir og upplýsingar í síma 525 9950
og á hotelsaga@hotelsaga.is
SAGA HOTEL, REYKJAVIK