blaðið - 04.11.2006, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2006
blaðið
Það er mjög auðvelt að búa til leynilegt bréf með trúnaðarupplýsingum
sem enginn má sjá. Þú getur skrifað með sítrónusafa á hvítt blað (getur
notað til þess tannstöngul) og sá sem fær skilaboðin þarf einungis að
strauja með straujárni yfir skilaboðin og þá koma þau í Ijós.
KRAKKAKYNNING
Vildi að ég ætti mús
Götuleikir
Þótt kuldaboli bíti stundum í
kinn er samt skemmtilegt að
fara út að leika sér. Hér eru
tveir skemmtilegir útileikir.
París
París er oftast teiknaður á stétt
eða ristur í mold. Oftast eru fyrst
búnirtil þrírferhyrningar hver
ofan á öðrum, þá tveir stærri ofan
á þá hlið við hlið, sem marka eins
konar hendur. Ofan á þeim er einn
ferhyrningur sem háls og efst stór
hringur fyrir haus. Markmið leiks-
ins er svo að hoppa á einum fæti
í reiti paríssins eftir ákveðnum
reglum. Steini er kastað á næsta
reit og svo er hoppað frá reitnum
upp í hausinn og til baka. Þangað
til búið er að kasta á alla reitina.
Útilegumaður
Útilegumaður er gamall íslenskur
leikur. Mörkuð er borg. Einn þátt-
takenda er útilegumaður. Aðrir
grúfa sig allir í borg í tiltekinn
tíma, sem útilegumaðurinn notar
til að fela sig. Til dæmis meðan
talið er upp á 50. Síðan fara aliir
að leita útilegumannsins og
efeinhversér hann hróparsá:
„Útilegumaður fundinn!" Allir
flýta sér þá í borg, en útilegumað-
urinn reynir að klukka sem flesta
áður en þeir komast þangað.
Útilegumaður og allir sem hann
nær verða þá útilegumenn í
næstu umferð, en þeir sem ekki
náðust grúfa sig í borg í annað
sinn og þannig er haldið áfram
uns enginn - eða einn - er eftir.
Útilegumaður má fara úr felustað
sínum og reyna að ná leitar-
mönnum hvenær sem honum
sýnist og einnig má hann skipta
um felustað. Ef útilegumaður
getur laumast óséður að leitar-
manni og klukkað hann er ekkert
hrópað, enda er þá sá leitarmaður
orðinn að útilegumanni. Sá leitar-
maður, sem síðast næst, verður
útilegumaður í næstu umferð.
Sívinsælir afmælisleikir
Þið raðið ykkur í hring og einn
ákveður orð. Sá sem ákveður
orðið hvíslar því í eyrað á þeim
sem situr við hliðina á honum. Sá
hvíslar svo því sem hann heldur
að hann hafi heyrt í eyrað á þeim
næsta og svo framvegis. Þegar
hvíslað hefur verið í eyrað á
síðustu manneskjunni, segir
hún svo upphátt það sem henni
heyrðist orðið vera. Oftast
breytist orðið á leiðinni og getur
útkoman orðið mjög fyndin.
PakkaSeikur
Pakkaleikur er alltaf vinsæll.
Einhverjum litlum hlut er pakkað
inn í mörg lög af gjafapappír eða
dagblöðum. Þið setjist í hring og
pakkinn er svo látinn
ganga á milli veislu-
gesta á meðan tónlist
er spiluð. Þegar smellt er
á pásu á tónlistinni, má sá
sem heldur á pakkanum rífa
eins mikið upp af honum og
hann getur. Þegar tónlistin
byrjar aftur, þarf pakkinn að
ganga að nýju. Sá sem nær
að opna pakkann alveg, fær
að eiga það sem í honum er.
Limbó
(limbó reynir á það að vera
liðugur. En tveir þurfa að halda
stöng á miili sín sem afmælis-
gestirnir ganga undir með því
að beygja höfuð og bak aftur.
Skemmtilegt er að spiia tónlist
undir meðan þið gangið undir
stöng-
ina.
Stöngin
er alltaf
lækkuð meira
og meira og ef
þiðdettið þá
eruð þið úr leik.
Saradínuleikur er öðruvísi
feluleikur. Einn felur sig
og þegar einhver fínnur
hann, treður hann sér
líka á felustaðinn án þess
að segja orð. Þegar ný
•M manneskja finnur felar-
ann, treður hún sér líka á
felustaðinn. Þetta heldur
áfram þangað til allt afmælið
hefur troðið sér á felustaðinn.
ÞRAUTIR
Spurning 1:
Hvaða númer er á bringu
Iþróttaálfsins?
1) 10
2) 9
3) 0
4) 99
Spurning 2:
Meðan Solla stirða er í heimsókn
í Latabæ, hjá hverjum gistir hún?
1) Frænkusinni
2) Frænda sínum
3) Afa sínum
4) Pennavini sínum
Spurning 3:
Manneskjan sem Solla stirða
dvelur hja gegnir mikilvægu
starfi. Hverl er það?
1) Póstberi
2) Borgarstjóri
3) Slökkviliðsmaður
4) Bakari
Spurning 4:
Hvert er fvrsta barnið í Latabæ
sem Solla nittir og talar við?
1) Goggimega
2) Halla hrekkjusvín
3) Nenni níski
4) Siggi sæti
Spurning 5:
Hvernig er loðni stóllinn á litinn
sem Glanni glæpur situr oft í?
1) Appelsínugulur
2) Grænn
3) Fjólublár
4) Blár
Spurning 6:
Fyrir framan hús Nenna
mska er stytta af...
1) Nenna níska
2) Afa Nenna
3) Hesti
4) Svíni
Spurning 7:
Klukkan hvað fer [þrótta-
álfurinn að sofa?
1) 7:07
2) 10:10
3) 8:08
4) 9:09
Svör:
1.10 2. Frænda sínum 3. Borgarstjóri 4. Siggi
sæti 5.Appelsínugulur 6. Svíni 7.8:08
Kjartan varö 7 ára á fimmtudaginn síðasta, 2. nóvember, og bauð þá vinum sínum og fjölskyldu til veislu.
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki í
skólanum?
Hjóla úti.
Hvað finnst þér skemmtilegast
aðgera?
Hjóla úti.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór?
Ég veit það ekki.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
horfa á?
Simpson.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Pitsa og fiskur.
Hvaða bækur finnst þér gaman
að lesa?
Nafn:
Kjartan Ágústsson.
Hvað ertu gamall?
7 ára.
Hvenær áttu afmæli?
2. nóvember.
Hvað fékkstu í afmælisgjafir?
Ég fékk svo mikið: tafl og myllu,
bækur, trefil, Playmo, róbóta, reið-
hjól og fleira.
Hvað er uppáhaldsfagið þitt í
skólanum?
fþróttir.
Stundarðu einhverjar tómstundir?
Æfi fótþolta með KR.
Ef þú fengir eina ósk, hvers mynd-
irðu óska þér?
Að ég ætti litla mús í herberginu
mínu.
Skúla skelfi og bölvun múmíunnar.
Hvaða bíómynd sástu síðast og
hvað fannst þér um hana?
Monster House - skemmtileg og
lögregluþjónarnir voru glaðir þegar
þeir komu út úr húsinu.
Áttu einhver systkini?
Eina stóra systur, Freyju.
En dýr?
Kött sem heitir Gormur og hann er
svo sætur þegar Freyja kemur og
ýtir eyrunum á honum niður.
Foreldrar og börn athugið!
Sunnudaginn 5. nóvember kl. 15.00 kynnir
Þorbjörg Karlsdóttir bamabókavörður bækur fyrir
yngstu bömin og á eftir verður sögustund.
BOR.GARBÓKASAFN
REYKJAVÍKUR
Tryggvagötu 15, Reykjavík
Simi 563 1717 - www.borgarbokasafn.is
UT AÐ LEIKA!