blaðið - 04.11.2006, Side 46
Pierre Alan Giraud er
23 ára, kemur frá Lyon
í Frakklandi og hefur
búið á íslandi í rúmt ár.
Hann hefur vakið mikla
athygli fyrir leik sinn
í verkinu Best í heimi,
leikriti sem sýnt er
þessa dagana á fjölum
Iðnó í leikstjórn Maríu
Reyndal. Honum líður
vel á íslandi og getur
vel hugsað sér að vera
hér lengur en upphaf-
lega stóð til og taka frek-
ari þátt í menningar- og
listalífi íslendinga.
Orðlaus
mælir með
Rólegri helgi
Þar sem veðrið hefur ekki verið
upp á marga fiska undanfarið
er um að gera að hafa
það bara huggulegt
heima í stað þess
að brjótast um mið-
bæinn í aftakaveðri.
Kveikið frekar á
kertum, farið í þægi-
leg föt, lesið góða
bók eða liggið bara
í sófanum og horfið
á sjónvarpið.
Búðaferðum
Farið í góðum félagsskap og
kíkið á úrvalið í búðum bæjar-
ins. Það er um að gera að eyða
nokkrum aurum í falleg föt í
hverjum mánuði. Nú eru allar
búðir fullar af vetrarvörum og
því um aö gera að velja sér eitt-
hvað fallegt.
Soja latte
Það bragðast bara svo miklu
betur en kaffi með venjulegri
mjólk. Farið á kaffihús, takið
með ykkur skemmtileg tímarit,
ræðið málin, drekkið soja latte
og fáið ykkur helst stóra köku-
sneið með rjóma.
Best í heimi
Skemmtilegt gamanleikrit og
háðsádeila á íslenskt samfélag.
Komið er inn á upplifun útlend-
inga á íslandi og Islendingum og
Ijósi varpað á oftar en ekki
spaugilegar aðstæður sem
útlending-
ar lenda
í þegar
þeir eru
að kynn-
ast landi
og þjóð.
leikaþætti
Uppáhaldstónlist:
Ég er núna að hlusta á Beck, Anthony and the
Johnsons, Keren Ann og The White Stripes.
Plata sem ég hef notið hvað mest undanfarnar
vikur er nýjasta plata Lily Allen.
Hvað ertu að gera núna?
Ég er verkfræðingur að mennt (það er ekki eins
leiðinlegt og það hljómar) og ég legg stund á
leiklist og tónlist. Nú vinn ég í franska sendiráð-
inu við að undirbúa franska menningarhátíð sem
haldin verður á Islandi á næsta ári auk þess sem
ég fer með eitt aðalhlutverka í leikritinu Best í
heimi.
Hvaða kvikmyndir eru í uppáhaldi hjá þér?
Playtime eftir Jacques Tati er uppáhalds-
kvikmynd mín og Nói Albínói fékk mig
næstum því til að koma til Islands á stund-
inni. Myndin er afar falleg og nokkrar senur
hennar hreyfðu sterkt við mér.
Ég er einnig hrifinn af nýlegum og vin-
sælum myndum eins og Spiderman og
King Kong.
Hvað horfir þú á í sjónvarpi?
Dr. Phil, nei, ég er að grínast. Ég eyðilagði
óvart sjónvarpið mitt fyrir nokkrum mánuðum
og ákvað að það yrði ekki nema til skrauts í
stofunni. En ég hef ótrúlega gaman af því að
horfa á þessa ægilegu en áhugaverðu raun-
veraleikaþætti sem eru vinsælir í sjónvarpi
núna. Tilraunir á mönnum. Ég sef vel eftir að
hafa horft á slíkan þátt.
Áttu þér einhverja uppáhaldsleikara?
Kirsten Dunst, Charlotte Gainsbourg og kannski
Bill Murray.
Uppáhaldsbók?
The House of Leaves eftir Mark Z. Danielewski.
Þetta er bók sem tekur á!
Ef þú mættir breyta einhverju í heiminum ...?
Þarf ég að ímynda mér að ég sé guð í eina sek-
úndu. Argh ... ég get ekki gert það! Það myndi
fara með mig.
Hvern myndir þú telja hafa haft mest áhrif
á þig sem manneskju?
María Reyndal, besti leikstjóri í heimi (hún bað
mig um að segja þetta, María, hér hefurðu þaðl).
- .*•
BlatiðMkl- Í
. V
Miracle Forever Fágaður og nútímalegur
ílmur frá Lancöme sem byggist á blóma-
angan og ferskleika. Ilmur af anísfræjum,
sólberjum og möndlublómum gerir ilminn
mildan en engu aö síður ferskan, frjálslegan
og fágaðan. Miracle Forever hentar öllum
konum.
ílllracle
Itirrvei
Töfrapenninn frá Bourjois Anticerne pour petits matins er gullpenni sem
tekur burt öll ummerki þreytu og lýsir upp húðina í kringum augun. Gefur
andlitinu frísklega áferð og er töfrapenninn einfaldur í notkun. Hylur vel þau
svæði á húðinni sem hann er borinn á og gerir sannkallað kraftaverk.
Red Delicious Nýr ilmur frá DKNY fyrir
konur. Ferskur, kröftugur og kynþokkafullur
ilmur sem kemur f fallegum umbúðum.
Hannað með sterka, frjálsa konu í huga sem
nýtur lífsins í stórborgum heimsins. Virkilega
góð lyktfyrir hverja sem er.
Maskari frá Bourjois
Nýr maskari sem gerir
augnhárin löng og glæsileg
og kemur í veg fyrir að þau
klessist. Maskarinn þykkir
augnhárin og burstinn
greiðir vel í gegnum hárin
þannig að liturinn hylur
augnhárin vel. Ný gerð
bursta sem hindrar klessur
og gerir augnhárin ótrúlega
falleg.
High Recharge Einstök
virk formúla sem virkar
gegn þreyttri og líflausri
húð karlmannsins. Hefur
skjóta en langvarandi
virkni gegn þreytu og er
einnig rakagefandi og
styrkjandi. Gefur húðinni
aukinn Ijóma, einstakan
raka og aukna orku.
Emporio Remix Nýr ilmur frá Emporio Armani fyrir bæði menn
og konur. Lykilorð ilmanna er Get together og eru þeir hugsaðir
fyrir hann og hana, hina kvenlegu og hinn karlmannlega.
Emporio Remix fyrir hann er
klassiskur herrailmur sem er
samt nýlfskulegur. Blágresi
víkur fyrir lilju vallarins og
múskat og lakkrístónar
krauma undir. Nútímalegur og
ferskur fyrir alla karlmenn.
Emporio Remix fyrir
hana einkennist af
klassfskum blómailmi
á nútímalegum nótum.
Girnileg blómablöðin,
ávextir og ferskleiki
gera ilminn gríþandi.
Angan af rósum og
hvítum blómum sem
gefa ilmvatninu kyn-
þokka og kvenleika.