blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006
blaöið
„Faðir minn var stjórnlagaprófessor og lögfræð-
ingur og vissi nákvæmlega hvað hann mátti og
hvað hann mátti ekki lögum samkvæmt. Það er
fráleitt í mínum huga að hann hafi brotið lög.“
Tveir ólíkir heimar
En þeir sem segja þetta halda
kannski að þú munir misbeita valdi
þínu?
„Það opinberar vanþekkingu á því
hvernig stjórnkerfið virkar. Allir
verða að vera ábyrgir orða sinna og
við sem erum í ráðherrastarfi berum
meiri ábyrgð en margir aðrir því ef
við misbeitum valdi okkar erum við
að brjóta lög. Um þetta er ég mjög
meðvitaður.
Þótt ég skrifi eitthvað á vefsiðu
mína og taki þátt í opinberum um-
ræðum, sem stundum eru harðar,
jafngildir það ekki því að ég fari
síðan niður í dómsmálaráðuneyti
og segi mönnum að lesa vefsíðuna
til að sjá, hvernig taka eigi á málum!
Þetta eru tveir ólíkir heimar: góð
stjórnsýsla og vefsíðuskrif."
Hefurðu alltaf verið þanniggerður
að þú teljir það skyldu þína að svara
fyrirþig?
„Já, ég er þannig gerður. Mér
finnst það hluti af stjórnmálunum
að menn svari fyrir sig og láti aðra
ekki eiga neitt inni hjá sér. Það er
kannski hluti af því hvað stjórn-
málaumræður hér á landi geta verið
skrýtnar að menn telji að stjórnmála-
menn eigi ekki að svara fyrir sig.“
Allt í lagi að hafa harða ímynd
Nú hefurðu nokkuð harða ímynd.
Hefurðu aldrei hugsað um að mýkja
hana?
„Ég veit ekki af hverju hún er hörð.
Á hverjum degi er ég að sinna málum
og reyna að leysa og greiða úr vanda-
málum. Ég tek því almennt vel, ef fólk
ber upp við mig erindi, en læt einnig
í ljós, hvort ég get sinnt þvi eða ekki.
f hverju felst hin harða ímynd? Felst
hún í því að vera fastur fyrir og hafa
ákveðnar skoðanir og láta ekki vaða
ofan í sig? Ef það er svo þá hef ég ekki
áhuga á að mýkja ímyndina. Ég held
að það gagnist mér ágætlega að hafa
harða ímynd. Ég sé ekki að það hafi
spillt neitt fyrir mér.
Þessi harða ímynd hefur örugglega
átt sinn þátt í því að ég var gagnrýndur
á fyrri hluta kjörtímabilsins fyrir að
setja of hörð útlendingalög og gera
of strangar kröfur varðandi komu út-
lendinga til landsins. Pólitíkin er fljót
að breytast því nú sýnist mér áber-
andi sá málflutningur að ekki hafi
verið gerðar nógu strangar kröfur. Ef
menn telja að ríkisstjórnin hafi verið
að gera ranga hluti í þessum málum
þá hefðu þeir átt að krefjast þess að ís-
lendingar færu úr Evrópska efnahags-
svæðinu. Við höfum farið að reglum
sem gilda á þvi svæði en að sama
skapi höfum við hert reglur gagnvart
þeim sem eru utan svæðisins.
1 þessu máli finnst mér allt í lagi
að hafa harða ímynd. Ég hef skoðun
og stefnu sem byggist á rökum og
skýrum hugmyndum en ekki á
upphlaupum eins og mér finnst ein-
kenna umræðuna núna þegar menn
vilja að slá sig til riddara. Útlendingar
hafa komið hingað, hér er næg vinna
og margir leggja hönd á plóginn. Þá
standa menn upp og segja að þetta
verði að stöðva. Þetta eru sömu menn-
irnir og töluðu á móti mér þegar ég
var að vinna að þessum málum i upp-
hafi kjörtímabils. Ég gef ekki mikið
fyrir þennan uppslátt þeirra. Hins
vegar tel ég að við eigum að breyta
reglunum um íslenskan ríkisborg-
ararétt og við verðum líka að vera til-
búin að gera breytingar á útlendinga-
lögum. Við eigum að vinna að þessu
máli þannig að allir séu klárir á því að
hér séu í gildi skýrar og sanngjarnar
reglur. Við eigum ekki að reka þetta
sem upphlaupsmál eins og áberandi
er nú þegar menn eru komnir út í
pólitísk öngstræti með flokka sína.
Það skilar ekki því sem að er stefnt
því við þurfum líka að búa þannig í
haginn að fólk sem vill setjast hér að
geti lagað sig að íslensku þjóðfélagi
og notið sín hér á landi. Það á ekki að
búa til óþarfa spennu í kringum það.“
Að standa af sér gagnrýni
Þú hefur fengið þinn skerfafgagn-
rýni á þínum pólitískaferli. Tekurðu
hana inn á þig?
„Ef ég tæki gagnrýni inn á mig
þá væri ég bara í því og gæti ekki
gert neitt annað. Enginn gleðst yfir
harðri gagnrýni en menn verða að
standa hana af sér ef þeir ætla að
starfa í stjórnmálum. Það er mis-
jafnt hvaða stjórnmálamenn verða
skotspónn á hverjum tíma. Sumir
eru alltaf í skjóli, aðrir fá stöðugt á
sig gagnrýni. Sumir ganga þannig
fram að það er erfitt að hafa þá sem
skotmark af því enginn veit hvaða
skoðun þeir hafa. Þeir eru bara
þarna.“
Það er fátt spennandi við sviplitla
stjórnmálamenn.
„Ef það er mönnum fjötur um fót
að hafa ákveðnar skoðnir og svara
fyrir sig þá telst sennilega heppi-
legra að hafa mjúka ímynd og vera
skoðanalaus. Þá kemst viðkomandi
áfram af því að hann er goody guy.
Ég hef ekki tileinkað mér þetta
viðhorf."
Nú ólst þú upp við pólitík og systir
þín, Valgerður, er í framboði fyrir
Samfylkinguna. Finnst þér það
óþægilegt?
„Mér finnst það alls ekki óþægi-
legt. Mér finnst það ágætt hjá henni.
Hún hefur lengi haft mikinn pólit-
ískan áhuga og vill láta að sér kveða.
Ég óska systur minni alls hins besta
og vona að henni gangi allt í hag-
inn, en ég greiði ekki atkvæði hjá
Samfylkingunni."
Finnst þér þú sem stjórnmála-
maður og sonur Bjarna Benedikts-
sonar berapólitíska ábyrgð gangvart
föðurþínum ogsögunni?
„Ég er kominn yfir það. Finn
ekki fyrir því. Mér hefur hins
vegar sárnað þegar menn segja í
umræðum um hleranamál að faðir
minn hafi misbeitt valdi sínu og
staðið fyrir ólögmætum aðgerðum.
Ekkert hefur komið fram sem segir
okkur annað en að farið hafi verið að
réttum lögum. Faðir minn var stjórn-
lagaprófessor og lögfræðingur og
vissi nákvæmlega hvað hann mátti
og hvað hann mátti ekki lögum sam-
kvæmt. Það er fráleitt í mínum huga
að hann hafi brotið lög. Auðvitað var
nauðsynlegt fyrir ríksvald og stjórn-
völd á þessum tíma að halda þeim i
skefjum sem talið var að kynnu að
beita valdi til að breyta hér stjórnar-
háttum. Ég hef alltaf sagt að það eigi
að leggja þetta mál á borðið og gera
það upp eins og annað.“
Ævisaga á Netinu
Þú ert í annasömu ráðherrastarfi.
Verðurðu ekki stundum þreyttur á
pólitíkinni?
„Ég ætti sennilega að taka mér
meiri hvíld frá pólitíkinni. En ég
er ekki stjórnmálamaður sem talar
í símann allan sólarhringinn. Ég
vinn mín störf en heimilislífið er
ekki gegnsýrt af pólitík dagsdaglega.
Ég hef mjög mikinn frið heima hjá
mér.“
Hefurðu hugleitt að skrifa ævisögu
þína?
„Ég hef ekki hugleitt það. Ég hef
skrifað hluta af ævisögu minni í tólf
ár á Netið. Ég veit ekki hversu mikið
magn það væri ef það yrði tekið
saman. Það er ekki hægt að líkja
þessum skrifum við dagbækur þar
sem menn eru með uppljóstranir um
samstarfsmenn eða eitthvað í þá átt-
ina. Þessi skriflýsa skoðunum mínum
og eru viðbrögð mín við því sem ger-
ist í pólitík og þjóðfélagsmálum. Ef
þau yrðu gefin út og lesin þá er ég
viss um að ímynd mín myndi ekki
mýkjast. Þá myndi sennilega koma í
ljós að harkan væri jafnvel meiri en
menn grunar. Ég sit uppi með það en
kvarta alls ekki yfir neinu."
kolbrun@bladid.net
%: 25'
& afs\á
/ /
Nicorette Fruitmint
Nýtt bragð
sem kemurá óvart
Nicorette nikótfnlyf eru fáanleg án lyfseóils og eru notuó þegar reykingum er haett eöa þegar dregiö er úr
reykingum. Til aö ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiöbeiningum f fylgiseöli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir þvi hve mikiö er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber aö
kyrma sér upplýsirigar urn notkun í fyigiseðii. í fylgiseólínurn eru upplýsingar um: verkuri og notkuri,
varúöarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er aö lesa áður en lyfín eru notuö, hugsanlegar
aukaverkanir og aórar upplýsirigar. Leitiö tíl læknis eða lyfjafræóings ef þórf er á frekari upplýsirigum um
lyfín. Þeir sem fengiö hafa ofnæmi tyrir nikótíni eða öörum innihaldso>fnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstööuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglop eöa nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngn en 15 ára, þungaöar konur og konur meö barn á brjósti eíga ekki aö nota Nicorette
nikótínlyf nema aö ráöi læknis. Lesið allan fylgiseöilinn vandiega áöur en byrjað er að nota lyfið.
Geymlð fylgiseöllinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Handhafi markaösleyfis: Pfizer ApS. Umboöá íslandi: Vistorhf., Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is
Tilboösverö 2006