blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 18
019010=
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur ÞórGuðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Janus Sigurjónsson
Við erum vandinn
Nú er að standa í báða fætur og viðurkenna að næstu kosningar snúast
ekki um Evrópumál, umhverfismál eða skattalækkanir. Fólk vill ræða um
útlendinga.
Er ekki hægt að ræða málið án þess að fordómafullt fólk stjórni umræð-
unni og hafi sem hæst? Ætla stóru stjórnmálaflokkarnir að sópa umræð-
unni út af borðinu með því einu að úthrópa þann fjölda sem segist hafa
snúið sér að Frjálslynda flokknum og segja hann rasista?
Getur verið að fólk hafi áhyggjur af innflytjendum vegna óskipulags
í ríkisstofnunum og handahófskenndum aðgerðum verkalýðsfélaga við
komu erlendra til vinnu hér á landi?
Það er högg í magann að ekki þurfi meira til en að stjórnmálaflokkur,
sem hér áður hafði það eitt að leiðarljósi að breyta kvótakerfinu, þurfi
ekki nema að nefna innflytjendur til að tvöfalda fylgi sitt frá síðustu kosn-
ingum, eins og könnun Fréttablaðsins leiddi í ljós. Högginu er fylgt eftir
með sparki í síðuna, því enginn annar stjórnmálaflokkur er tilbúinn að
taka á málinu.
Útlendingar koma ekki hingað til að svíkja undan skatti eða leggjast
á kerfið. Þeir koma hingað til að bæta líf sitt, efnast, hafa það betra en
þeir höfðu það heima hjá sér, í ævintýraþrá. Ástæðurnar eru örugglega
jafnólíkar og fólkið er margt. Vandinn liggur ekki hjá þeim heldur hjá
forsvarsmönnum þeirra fyrirtækja sem ráða þá til vinnu, því á íslandi
eru til stjórnendur fyrirtækja sem ráða útlendinga en leyfa sér að svíkja
þær skyldur sem þeir hafa gagnvart ríkinu. Þetta gera þeir jafnvel án vit-
undar útlendinganna sem þeir réðu. Þeir borga þeim laun sem lög segja að
eigi ekki að líða hér á landi. Þeir borga þeim jafnvel enga yfirvinnu. Þetta
gera þeir meðvitað. Á íslandi eru líka stjórnendur sem hirða ekkert um
að greiða skatta af erlendum starfsmönnum sínum. Hér á landi eru líka
stjórnendur sem vildu gjarnan gera upp á löglegan hátt, en geta það ekki
þar sem langan tíma tekur að fá þá pappíra sem þarf svo fólkið sé löglega
í landinu.
Það eru ekki fordómar að hræðast það að komist fyrirtæki upp með að
greiða útlendingum minna en lágmarkslaun þurfi íslendingar líka einn
daginn að sætta sig við sömu laun. Það er ekki óeðlilegt að óska eftir því
að ríkið lagi eftirlitsstofnanir sínar og verkalýðsfélög taki sig saman í and-
litinu og taki í hnakkadrambið á þessum stjórnendum. Umræður um inn-
flytjendur væri skynsamlegra að nálgast á þessum nótum frekar en þeim
sem gert hefur verið undanfarna daga.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn &auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
PENZIM
ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
ÚR SJÁVARRÍKI NU UMHVERFIS
ÍSLAND
Dr. Jón Bragi Bjarnason, prófessor í lífefnafræði, hefur
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
PENZIM er hrein,
taeroglitarlaus
náttúruvara byggð á
vatni en ekki fitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefni,
litarefni eða gerviefni
sem geta valdið
ofnæmisviðbrögðum.
PENZIM inniheldur
engar fitur, oílur eða
kremblöndur sem
geta smitað og eyðilagt
flíkur eöa rúmföt.
PENZlM
PENZIM PENZIM
RsjiAHwlir,4 GEL wrmAU n vu kai I.OÍION UIIM tll VtttRAI
MARINI' r.vznriís Adtmrd Skm Ai fctdy marim t vrrwii s Ui.mi.il *yLiu fc ivd) Our I iMvmili
XtiiMwtrlni h ■1 " . j VI>u*tiir>;inK Nruu-nJMnx. mí-tHean
I mmmainino HEAf-TIÍY 1 SKIN.jOINrS fögt r-oR | MAINi/vlNINix. : HFAI.TMV I f>K IN.fOINT 1 ANH MUSCIJS
4 — ” *
þenzíM
Ioirw
Penzim fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt.
WSBBSBBBSKSBMHHBk penzim.is
18 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006
blaðiö
írak - og fyrsta verk
nýrrar ríkisstjórnar
Fyrsta verk ríkisstjórnar jafnaðar-
manna verður að taka Island með
formlegum hætti af lista hinna
sjálfviljugu, vígfúsu þjóða sem
studdu innrásina í Irak. Innrásin
var fólskuverk, sem var réttlætt með
falsrökum og lygi. Stuðningur ís-
lands, píndur fram með löglausum
og algerlega siðlausum hætti í sam-
ráði við sendiherra Bandaríkjanna
á íslandi, er svartasti bletturinn á
utanríkisstefnu Islendinga svo langt
ég muni. Það er löngu tímabært að
Islendingar hreinsi þessa smán af
sér með formlegum hætti.
650 þúsund saklaus líf
Fráþví Bandaríkjamenn og Bretar
réðust inn í Irak í mars 2003 - með
mórölskum stuðningi íslands - hafa
meira en 650 þúsund óbreyttir borg-
arar beðið bana í stríðsátökum í land-
inu. Þetta er niðurstaða rannsóknar,
sem birt var í október í einu virtasta
læknariti heimsins, The Lancet.
Rannsóknin var gerð í samvinnu
bandarískra og írakskra lækna.
Þetta gríðarlega mannfall er mun
meira en Bandaríkjastjórn og hinir
bresku taglhnýtingar hafa viljað við-
urkenna. Aðferðin er þó alþjóðlega
viðurkennd. Nær tvö þúsund heim-
ili á 47 stöðum í írak voru heimsótt,
og samtals var rætt við tæplega
þrettán þúsund íraka. Fæðingar og
dauðsföll fyrir og eftir innrásina
voru metin á grundvelli samtala.
Niðurstaðan var sú, að 650 þúsund
saklausir borgarar - börn, konur,
gamalt fólk, karlar - hefðu látið lífið
beinlínis vegna innrásarinnar, sem
ísland meðal annarra studdi.
Löglaus og siðlaus ákvörðun
Ákvörðunin um stuðning Islands
var tekin án þess að vera borin undir
Alþingi - og var hvergi rædd. Löngu
síðar kom fram, að hún var ekki
einu sinni rædd í ríkisstjórn Islands.
Aðeins tveir menn tóku ákvörð-
Össur Skarphéöinsson
unina, Davíð Oddsson og Halldór
Ásgrímsson. Verstur er hlutur Hall-
dórs Ásgrímssonar. Hann hafði
marglýst yfir að gefa ætti vopnaeft-
irliti SÞ tíma til að ganga úr skugga
um hvort gereyðingarvopn væri að
finna i landinu. Síðar kom í ljós að
svo var ekki - og rökin fyrir innrás-
inni uppdiktuð haugalygi. En Hall-
dór snerist á einni nóttu - enda for-
sætisráðherrastóll í húfi. Ákvörðun
hans var versta feilspor nokkurs
forystumanns Framsóknar frá upp-
hafi. Hún leiddi beinlínis til þess að
hann hrökklaðist uppgefinn úr emb-
ætti, og skildi Framsókn eftir rúna
trausti og fylgislausa. Ákvörðun
þeirra tvímenninganna var í senn
löglaus - og siðlaus.
Ábyrgð stjórnarþingmanna
Davíð Oddsson er að sönnu hættur.
Halldór Ásgrímsson er hættur. Don-
ald Rumsfeld er hættur. Pólitískir
dagar Tony Blair verða senn út taldir.
Forsetatíð George Bush er í rúst. Pól-
itísk arfleifð allra þessara manna er
yfirskyggð af Irak.
Alþingi verður hins vegar að þvo af
sjálfu sér og íslensku þjóðinni blett
smánarinnar, sem löglaus ákvörðun
íslensku tvímenninganna leiddi af
sér. Það verður einungis gert með
því að Alþingi samþykki ályktun þar
sem ísland er formlega tekið af lista
hinna 30 sjálfviljugu, vígfúsu þjóða.
Sú tillaga liggur nú fyrir Álþingi,
flutt af mér og öðrum formönnum
þingflokka stjórnarandstöðunnar.
Þjóðin mun fylgjast með því hvort
þingmenn stjórnarinnar fylkja sér
bak við ósómann með því að svæfa
tillögu okkar félaganna - eða hreinsi
ísland af þessari smán.
Fari svo, að þingmeirihlutinn horf-
ist ekki í augu við skömm sína gagn-
vart saklausri þjóð Iraks verður það
fyrsta verk nýrrar rlkisstjórnar, sem
jafnaðarmenn taka þátt í, að taka Is-
land með táknrænum og formlegum
hætti af lista hinna vígfúsu þrjátíu
þjóða.
Höfundur er þingflokksformaður
Samfylkingarinnar.
Klippt & skorið
Meðal sitjandi þing-
mannaSamfylking-
arinnar í Reykjavík
er mikill ótti við að flokks-
menn verði óhræddir við
að kjósa nýtt fólk eins og
gerðist í Suðurkjördæmi og
Kraganum þar sem reyndir þingmenn ýmist
stráféllu eða ýttust niður listann. Þannig þykj-
ast menn merkja að Kristrún Heimisdóttir
hafi sótt mjög á Steinunni Valdísi Óskars-
dóttur, sem flestir töldu í upphafi prófkjörs-
baráttunnar að helst gæti velgt þingmönn-
unum undir uggum. Nú spyrja sumir hvort hún
sé nógu „ný", enda enginn nýgræðingur á ferð.
En svo hafa aðrir áhyggjur af því að á listanum
verði alltof margar konur, sem aftur kann að
styrkja þá Helga Hjörvar og Mörð Árnason.
Iprófkjörsvertíðinni
grípa menn til marg-
víslegra ráða til þess
að vekja athygli á sér,
stefnumálum sinum og
áherslum. Guðrún Ög-
mundsdóttir minnir á
sinn blíða málróm með herhvöt um að hennar
rödd þurfi að heyrast á Alþingi. Sem er auð-
vitað alveg laukrétt. Flokkssystir hennar í
Samfylkingunni, Bryndís ísfold Hlöðvers-
dóttir, hugsar hins vegar ekki aðeins um
raddirnar, heldur líka tungurnar. Þannig varð
hún fyrst íslendinga til þess að birta grein
undir erlendri fyrirsögn í Morgunblaðinu, á
pólsku nánar tiltekið, en hún hefur einnig
látið snara sjónarmiðum sínum á taílensku
og svahílí, svo fátt eitt sé nefnt.
Eins og nefnt var (
þessum dálki i gær
getur brugðið svo
við að auglýsingar stuðn-
ingsmanna séu svona
og svona, sérstaklega
þegar meintir stuðnings-
menn eru ekki endilega stuðningsmenn
viðkomandi frambjóðanda í prófkjöri. Árni
Johnsen birtir þannig heilsíðuauglýsingu
í gær þar sem skylmingaþrællinn Maximus,
sem Russel Crowe lék svo eftirminnilega,
er meðal annarra stuðningsmanna. Gárung-
arnir segja að Spartacus hafi neitað að taka
þátt í auglýsingunni í Ijósi afstöðu Árna til
samkynhneigðar.
andres.magnusson@bladid.net