blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 30
3 0 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2006 blaðiö Drukkinn brennuvargur 20% afsláttur af gluggatjaldahreinsun í nóvember Gædahreinsun Þekking Góó þjónusta Árið er 1928 og vinnu var lokið í prentsmiðjunni Gutenberg. Einn starfsmanna var Stefán Daníels- son. Eftir vinnu, um klukkan fimm, settist hann að drykkju ásamt þremur öðrum starfsmönn- um. Saman drukku þeir tvær flöskur af Spánarvíni sem höfðu verið keyptar hjá Áfengisverslun- inni. Um klukkan átta um kvöld- ið fór Stefán úr prentsmiðjunni og settist inn á kaffihúsið Fjall- konuna. Þar var hann i um hálfa klukkustund og drakk einn pil- sner. Þar hitti hann Vilhjálm Þór- arinsson. Þeir fóru saman á Hótel ísland og borðuðu þar og Stefán drakk tvo pilsnera og púrtvín. Að lokinni máltíð gengu þeir yfir í Bröttugötu þar sem þeir hittu stúlku, Margréti Sigurðardóttur. Þau þrjú fóru á Hótel ísland þar sem Stefán drakk einn pilsner til. Að þessu loknu fóru þau í bíl inn á Laugarnes en stönsuðu þar stutt og óku aftur niður í bæ. Stef- án lét aka sér að Grettisgötu þar sem hann hugðist hitta stúlku. Húsið var læst og þar sem hann náði ekki sambandi við stúlkuna fór hann áfram með bílnum og fór úr honum í Bankastræti til móts við Þingholtsstræti. Hann gekk að prentsmiðjunni Gutenberg en þar var búið að læsa. Því næst fór hann aftur á Hótel Island og setti í sig einn pilsnerinn enn. Ásakaður um rúðubrot Á meðan Stefán sat í veitingasal hótelsins kom þar inn Karl Guð- mundsson yfirlögregluþjónn. Guð- mundur Jónsson, þjónn á hótelinu, tók Karl tali og sagði honum að Stefán hefði brotið rúðu á hótelinu nokkrum dögum fyrr. Karl gekk til Stefáns og spurði hvort það væri rétt að hann hefði brotið rúðuna. Stefán brást ókvæða við og sagðist enga rúðu hafa brotið. Or varð að þeir gengu út saman og í átt að lögreglustöðinni. Þeir ræddu um rúðubrotið á göngunni. Stefán neit- aði ákveðið að hafa brotið rúðuna og rann í skap vegna þessara ásak- ana. Vegna þess hversu mikið Stef- án hafði drukkið var hann farinn að finna nokkuð á sér. Karl ók Stef- áni á Laugaveg 28 þar sem hann bjó. Stefán var orðinn rólegri þeg- ar þeir skildu. Stefán gekk að húsinu, tók í hurðarhúninn en þar sem hurðin var nokkuð stíf taldi hann að hún væri læst. Hann var ekki með lykil og reyndi ekki frekar að opna held- ur gekk á burt og niður í Banka- stræti og þaðan aftur upp Lauga- veg og að húsi númer 55 þar sem hann hugðist heimsækja móður sína. Þar var allt læst. Kveikti í Hann gekk í hægðum sínum aftur áleiðis niður Laugaveg og þegar hann kom að húsinu númer 52 sá hann að kjallaradyr hússins voru opnar og bjart í kjallaranum. Hann gekk inn i kjallarann, tók upp sígarettu og kveikti í henni. Hann lét það ekki nægja, heldur kveikti hann einnig i fötum sem héngu til þerris í kjallaranum. Þegar tekið var að loga í fötunum gekk hann út. Hann hélt áfram göngu sinni niður Laugaveg og beygði upp Frakkastíg. Þar sá hann að kjallaradyr hússins núm- er 44 við Laugaveg voru einnig opnar. Hann gekk að kjallaran- um en dimmt var þar inni. Hann lýsti sér leið og sá þar körfu sem í voru tuskur og fleira þess hátt- ar. Hann bar eld að því sem í körfunni var. Brátt tók að loga í innihaldi körfunnar. Að þessu loknu gekk hann heim til sín og nú komst hann inn. Vegfarendur urðu í báðum tilfellum varir við eldinn. Senni- lega er það því að þakka hversu fljótt fólk varð vart við eldana sem tókst að slökkva þá áður en verulegt tjón og mannskaði hlut- ust af. Sjúkleg alkóhólverkun Grunur féll fljótlega á Stefán og hann var handtekinn. I ljós kom Karl gekk til Stefáns og spurði hvort það væri rétt að hann hefði brotið rúðuna. Stefán brást ókvæða við og sagðist enga rúðu hafa brotið. að hann hafði brotið fleira af sér. Rúmu ári fyrr hafði hann farið inn í húsið númer 12 við Frakkastíg seint um kvöld. Hann var á gangi á efri hæð hússins þegar húsráðandi kom þar ásamt fleira fólki og hitti þar Stefán sem var talsvert drukk- inn. Hann gat ekki gert grein fyrir veru sinni í húsinu. Húsráðandinn skipaði honum að fara út og fylgdi honum út fyrir dyrnar. Eftir að húsráðandi hafði lokað á eftir sér gekk Stefán að kjallara- dyrum hússins og komst þar inn. Hann gekk að þvottahúsinu þar sem hann sá tuskur og hann fór ekki út fyrr en talsverður logi hafði hlotist af. Eldurinn var síðar slökkt- ur áður en verulegt tjón hlaust af. Stefán neitaði að hafa brotið rúðu í Hótel íslandi. Hann viður- kenndi hins vegar að hafa kveikt í þau þrjú skipti sem áður voru rakin. Talið var að öll þrjú húsin hefðu brunnið upp ef eldarnir hefðu ekki verið slökktir eins fljótt og raun bar vitni. Jafnframt var talið líklegt að mannslíf hefðu verið í hættu þar sem í öllum til- fellum var um að ræða stór timb- urhús þar sem bjó fjöldi manns. Stefán gat ekki skýrt hvað fyr- ir honum vakti en fyrir liggur að hann var ölvaður þegar hann kveikti eld í húsunum þremur. Álit geðlæknis var að Stefán væri hvorki fábjáni né geðveikur. Hann hefði hins vegar tilhneigingu til sjúklegrar alkóhólverkunar. Dómarinn í aukaréttinum komst að því að Stefáni hefði ekki verið ljós sú hætta sem hann stofn- aði til með íkveikjunum en eigi að síður væri hann sakhæfur. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi í aukarétti en Hæstiréttur taldi að sökum alkóhólsverkunar Stefáns væri ekki hægt að sakfella hann á sama hátt og heilbrigðan mann. Hæstiréttur dæmdi Stefán til tveggja ára fangelsisvistar. Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 1380 Álfabakka 12 • Sími 557 2400 www.bjorg.is EFNALAUG ÞVOTTAHÚS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.