blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 28

blaðið - 11.11.2006, Blaðsíða 28
blaöiö Matthíasarstefna Málþing um Matthías Jochumsson hefst klukkan 11 í dag í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af út- gáfu ævisögu hans eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Fyrirlesarar verða auk Þórunnar: Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur, Gunnlaugur A. Jónsson prófessor, Helga Kress prófessor, Krist- ján Árnason, bókmenntafræðingur og þýðandi, og Sveinn Yngvi Egilsson dósent. Listamannaspjall Georg Guðni Hauksson og Jón Óskar leiða gesti um sýninguna Málverkið eftir 1980 í Listasafni (slands á morgun klukkan 14. Aö- gangur er ókeypis og allir velkomnir. 11. NÓVEMBER 2006 9 Damien Rice Frábær í skammdeginu /r Eg hef aldrei verið aðdáandi Damien Rice, hann hefur einhvern veginn aldrei náð til mín. Með sinni nýjustu plötu, sem kallast einfaldlega 9, tekst honum í fyrsta skipti að grípa mig almennilega. 9 er Ijúfsár plata, uppfull af dramatískum útsetn- ingum þar sem Rice notast við strengjahljóðfæri á sérstaklega smekklegan hátt. Hann er alls ekki að fara nýjar leiðir í tónlist- arsköpun en fjandinn hafi það, kappinn er einlægur. Rice ferðast um troðnar slóðir popptónlistar- innar og gerir það vel, hvort sem það er í hinu Ijúfa Accidental Ba- bies eða hinu léttpoppaða Dogs. Með þessari plötu mun Damien Rice án efa halda í sína gömlu aðdáendur ásamt því að næla sér í nýja. 9 er vel heppnuð popp- plata til að hlusta á í hinu dimma íslenska skammdegi sem er að gera út af við okkur öll. atli@bladid.net heimili alla miðvikudaga blaöi jtir börn á öllum aldri Að bjóða upp á það besta etta er brot af því besta, sýnishorn úr verkum sem við höfum verið að sýna á undanförn- um árum og hafa þótt aðgengileg og heppileg til sýn- inga fyrir alla fjölskylduna," segir Katrín Hall, listrænn stjórnandi fslenska dansflokksins, en í dag sýnir dansflokkurinn sýningu fyr- ir alla aldurshópa. Um er að ræða brot úr þremur verkum, Lúnu eftir Láru Stefánsdóttur, Súrt og sætt eftir Didy Veldman og Screensaver eftri Rami Beer. „Verkin eiga það sameiginlegt að vera litrík og fjör- leg og við reyndum að velja bestu brotin úr hverri og einni. Þetta er afar metnaðarfull sýning og gerir miklar faglegar kröfur til dansar- anna þannig að við erum alls ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur." Áhorfendum fjölgar Aðspurð um hvort erfiðara sé að fá Islendinga til að koma og sjá danssýningu en hefðbundið leik- húsverk segir Katrín að svo sé og að fyrir því séu ákveðnar ástæður. ,Leikhúsið er svo ríkt í okkar hefð. Við erum bókmenntaþjóð og leik- húsið á sér miklu sterkari og dýpri rætur en dansinn í okkar sögu og menningu. íslenski dansflokkur- inn var stofnaður 1973 og síðan þá höfum við verið að skapa okkar hefð og slíkt tekur tíma. Það kostar mikla vinnu að ná upp þeirri sýn í samfélaginu að dansinn sé partur af okkar menningu og menningar- arfi. Við getum þó verið mjög sátt við árangur undanfarinna ára því hópurinn sem kemur á sýningar hjá okkur fer sífellt vaxandi. Áhorf- endahópurinn hefur einnig verið að yngjast á síðustu árum.“ Islenski dansflokkurinn hefur einkum ein- beitt sér að nútímadansverkum. ,Klassísku hóparnir úti í heimi eru með tugi dansara á sínum snærum og hafa því tök á að setja upp klass- ískar sýningar með fjölda dansara en við erum aðeins 10-14 og eigum því ekki kost á því. Mín listræna sýn hins vegar og markmið eru háleitari en það að reyna að halda uppi miðlungsgóðum klassískum listdansflokki hér á íslandi. Með samtímadansinum erum við að einblína á styrkleika okkar, byggja upp gæði og höfum tækifæri til að móta okkar eigin sérstöðu. Það er að mínu mati mun eftirsóknarverð- ara og árangursríkara þegar til lengri tíma er litið, enda er Islenski dansflokkurinn að vekja talsverða eftirtekt erlendis. Eftirspurn eftir sýningum okkar er sífellt að auk- ast. Tuttugasta og fyrsta öldin er runnin upp og við erum að tala allt öðruvísi við fólk nú með dansinum en gert var á átjándu öld.“ Hugsað til framtíðar Með sýningunni í dag einbeitir dansflokkurinn sér að yngri áhorf- endum og hvetur Katrín foreldra til þess að bjóða börnunum sínum að kynna sér dansheiminn enda er aðgangur ókeypis fyrir börn yngri en tólf ára og unglingar á aldrinum þrettán til sextán ára þurfa aðeins að borga hálft gjald. „Við teljum að við eigum að bjóða börnunum okkar það besta og með þessari sýningu viljum við leggja okkar af mörkum til þess. Við erum að hugsa til framtíðar og vekja áhuga á dansinum hjá þeim yngstu sem svo vonandi munu flykkjast á sýn- ingar dansflokksins þegar þau komast á fullorðinsár. Við erum að bjóða þeim upp á skemmtilega sýn- ingu sem ég vona að áhorfendur kunni að meta hver á sinn hátt.“ Aðeins þrjár sýningar eru í boði, í dag klukkan 14 og næstu tvo laug- ardaga á sama tíma. hilma@bladid.net FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA Innritun fyrír vorönn 2007 Innritun fyrir vorönn 2007 stendur nú yfir. msóknareyöublöö fást á skrifstofu skólans sem er opin 8:0-15:0 eða á heimasíðu skólans, www.fa.is. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember. ftirtaldar námsbrautir eru í boði: Bóknámsbrautir til stúdentsprófs: Heilbrigðisskólinn: málabraut, framhaldsnám sjúkraliða félagsfræðibraut, heilsunuddarabraut, náttúrufræðibraut og hjúkrunar- og móttökuritarabraut, viðskipta- og hagfræðibraut. lyfjatæknabraut, Starfsnámsbraut; læknaritarabraut, upplýsinga- og fjölmiðlabraut -veftæknanám, sjúkraliðabraut og -viðbótarnám tii stúdentsprófs tanntæknabraut. -viðbótarnám til stúdentsprófs Aimenn námsbraut. Nánari upplýsingar um allar þessar brautir eru á heimasíðu skólans, www.fa.is. Skólinn býður einnig upp á fjarnám allt árið. Nánari upplýsingar á heimasíðu. Skóiameistari ...ÞAÐ BESTA VIÐ AÐ FARA í LEIKHÚS ER AÐ SJÁ GÓÐAN LEIK OG ÞAÐ ER MIKIÐ AF HONUM í ÞESSUM SVARTNÆTTISFARSA." MK/MBL www.borgarleikhus.is Simi miöasölu 568 8000 BORGARLEIKHÚSIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.