blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 16
blaðið ÞEIR SÖGÐU R 20. DESEMBER 2006 EKKI BEND’ Á MIG ,,Ég kannast ekkert við JJ þessa skýrslu EINAR MÁR SIGURDARSON, ÞINGMADUR SAMFVLKINGARINNAR, UM fjArmAlaóreiðu HJA BYRGINU. SMJÖRKLÍPUAÐFERÐIN? „Mér finnstþetta jaðra við ómerkilegt skítkast hjá JjMerði að vera að velta sér upp úrþessu." HJÁLMAR ÁRNASON, ÞINGFLOKKSFORMAÐUR FRAMSÓKNAR, UM MÖRÐ ÁRNASON, ÞINGMANN SAMFYLKINGAR, SEM FÉKK UPPGEFIÐ AÐ VAFI LEIKUR Á HVORT HEIMILT HAFI VERIÐ AÐ HALDA HALLDÓRIÁSGRÍMSSYNI KVEÐJUHÓF f RÁÐHERRABUSTAONUM. Flutningaskip strandar á háflóði í grennd við Sandgerði: Risastórt skipið situr fast í fjörunni ■ 400 tonn af svartolíu um borð ■ Danskur skipverji lést við björgunaraðgerðir ■ Efasemdir um að hægt sé að losa skipið Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Skipstjórinn hefur gefið þá skýringu að sjálfstýring skipsins hafi bilað með þessum afleiðingum. Hann komst hvorki lönd né strönd í kjöl- farið. Tjónið er töluvert enda allur botninn úr því og allt brotið í kring. Ástandið er ekki glæsilegt og erfitt að sjá að skipið fari nokkuð lengra en þetta,“ segir Guðmundur Ásgeirs- son, stjórnarformaður Nesskipa. 3.600 tonna flutningaskipið Wil- son Muuga, sem lengi hefur verið i eigu Nesskipa, strandaði milli Hvals- ness og Stafness, rétt utan við Sand- gerði. Skipið var búið að losa farm sinn við Grundartanga og leiðin lá til Murmansk þegar það strandaði. Afar slæmt veður var á strandstað sem hamlaði björgunaraðgerðum til muna. Danskur skipverji lést Danska varðskipið Triton var nærri slysstað og var ákveðið að senda átta skipverja í björgunarbát yfir til flutningaskipsins. Dönsku skipverjarnir lentu í hrakningum, klukkan rúmlega sjö um morgun- inn, bátnum hvolfdi og allir skipverj- arnir lentu í briminu. Einn þeirra, hinn 25 ára gamli Jan Nordskov Lar- sen, lést eftir að björgunarvesti hans rifnaði og félagar hans náðu ekki að halda honum á floti. Hinum sjö var bjargað af þyrlum Landhelgisgæsl- unnar og var einn þeirra fluttur til aðhlynningar þar sem hann ofkæld- ist. Tugir björgunarsveitarmanna gengu fjörur í leit að hinum látna og um hádegi fann þyrla Landhelg- isgæslunnar líkið. Áhöfninni bjargað Skipstjóri flutningaskipsins þráaðist lengi við að lýsa yfir neyð- arástandi. Rafmagn var á skipinu þannig að vistin var bærileg fyrir tólf manna áhöfn þess. Fulltrúar Gæslunnar og lögreglunnar voru fluttir um borð í skipið rétt fyrir há- degi og í kjölfarið átti að flytja fjóra skipverja í land. Þeir neituðu hins vegar að fara með og kváðust ekki vera búnir að pakka niður. Björgun- arsveitir skutu öryggislínu um borð og lengi vel var útlit fyrir að áhöfn- inni yrði bjargað í björgunarstólum. Það var svo rétt fyrir klukkan tvö eftir hádegi sem TF Sif, þyrla Land- helgisgæslunnar, flutti stóran hluta áhafnarinnar í land. Farið var með þá í höfuðstöðvar Björgunarsveitar Sandgerðis þar sem lögreglan yfir- heyrði mennina vegna slyssins og síðan voru þeir fluttir á hótel. Svartsýnir á framvinduna Reynir Sveinsson, slökkviliðs- stjóri Sandgerðis, segir það gífurlegt umhverfisslys ef svartolía fari í sjó- inn þar sem fuglalif og ströndin sé mjög dýrmæt á þessu svæði. Hann telur ólíklegt að hægt verði að hreinsa upp olíuna ef hún lekur út. Yfir hundrað björgunarsveitarmenn voru á vakt yfir daginn og fljótlega upp úr hádegi fóru starfsmenn 01- íudreifingar og sérfræðingar Um- hverfisstofnunar að huga að því að tæma olíu úr skipinu. Um það bil fjögur hundruð lítra af svartolíu er að finna í tönkum skipsins. Gisli Ólafsson, landsstjórnarfull- trúi Landsbjargar, telur ólíklegt að hægt verði að koma skipinu á flot þar sem það sat kirfilega fast á háflóði. „Ég er ekkert of bjartsýnn á stöð- una. Aðalatriðið er að ná mönn- unum frá borði og huga að olíunni,“ segir Gísli. „Síðan verðum við bara að sjá til. Ein hugmynd sem komið hefur upp er að opna kaffi- og veit- ingahús um borð því að skipið fer líklega ekki langt.“ Fyrstur á „Ég er alveg ósofinn og kom beint af nætur- vakt þannig að þetta er búin að vera löng vakt hjá mér. Ég var í fyrstu sveitinni sem mætti á svæðið tæplega fimm í nótt og við sigldum frá höfninni í Sandgerði. í fyrstu var verkefni okkar óljóst og við sáum lítið á svæðinu. Eftir að við fréttum af vandræðum dönsku skipverjanna ákváðum við að fara strax í land á bátnum," segir Samúel Albert Ólafsson næturvörður. Hann er búinn að vera í rúm þrjú ár í Björgunarsveit Suðurnesja og tók þátt í leitinni meðfram ströndinni að líki danska skipverjans sem fórst. „Félagar mínir fundu hann um tíuleytið í morgun og þá flaut hann fram- hjá þeim án þess að hægt væri að aðhafast. Það var svo þyrlan sem fann hann rétt um hádegið.“ 4.35 Fyrsta útkall björgunarsveita vegna strandsins. 4.43 Björgunarskip Björgunarsveitar Sandgerðis leggur af stað. 7.05 Tilkynning berst um hrakninga dönsku skipverjanna. 9.55 Björgunarsveitarmenn koma auga á lik danska skipverjans 11.05 Fulltrúar Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar hífðir um borð. 11.10 Áhöfn flutningaskipsins neitar að vera hífö um borð í TF Líf. 12.15 Tilkynning berst um að þyrla Land- helgisgæslunnar hafi fundið líkið. 12.40 Björgunarsveitir undirbúa brottflutn- ing áhafnarinnar með öryggislínu. 13.40 TF Sif tekur meginhluta áhafnarinnar um borð og flytur þá í land. Skipstjórinn varð eftir um borð. §Dg[Tg30D® |j©[]aQ[7éS — eoa/fo4 Sígrænt eóaltré í hæsta gæðaflokki frá skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila. t* 10 ára ábyrgð £*■ Eldtraust 12 staarðir, 90 - 500 cm Þarf ekki að vökva t*- Stálfótur fylg/r ta- íslenskar leiðbeiningar Ekkert barr að ryksuga F* Traustur söluaðili ?*• Trufiar ekki stofublómin Skynsamleg fjárfesting Skátamiðstöðin Hraunbœ 123 Bandalag íslenskra skáta Lög um ákvörðun kjaradóms: Launahækkunin stendur Með því að afnema með lögum ákvörðun kjaradóms um laun æðstu embættismanna rikisins braut íslenska ríkið ákvæði stjórn- arskrár um þrískiptingu ríkis- valdsins og sjálfstæði dómstóla. Þetta úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur í gær. Guðjón S. Marteinsson hér- aðsdómari höfðaði mál gegn rík- inu í kjölfar þess að ákvörðun kjaradóms um 8 prósenta launa- hækkun embættismanna var felld úr gildi með lögum frá Alþingi. 1 lögunum var kveðið á um 2,5 pró- senta hækkun. Dómurinn var skipaður fræði- mönnum þar sem allir dómarar landsins voru vanhæfir við með- ferð málsins.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.