blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 1
30. tölublaó 3. árgangur
þriðjudagur
13. febrúar 2007
■ FOLK
Silvía Nótt er aftur komin á stjá og
gefur út plötu. „Petta verður engin
Lay Low-tónlist eða svoleiðis
ullarsokkarokk* 1'
SÍÐA14
■ ORÐLAUS
Plötusnúðurinn Gísli galdur býður
lesendum Blaðsins heim að þessu
sinni. íþróttaskósafnið og eldhúsið
það markverðasta | síða34
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ^PIS!
Samgönguáætlun áranna 2007 til 2010
105 milljarðar í vegi
■ 2+2 vegur til Selfoss ■ Sundabraut einkaframkvæmd ■ Rosalega há upphæð
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Framlög til vegamála verða um 105 milljarðar
árin 2007 til 2010 samkvæmt samgönguáætlun
sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
kynnti í gær. „Mín fyrstu viðbrögð eru þau að
þetta virki rosalega há upphæð og að í aðdrag-
anda kosninga sé allt hægt. Þetta virkar hins
vegar ekki mjög sannfærandi í því viðfangsefni
að ná böndum á þenslu í efnahagsmálum," segir
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðu-
sambands íslands.
I samgönguáætluninni fyrir árin 2007 til 2018
er gert ráð fyrir að heildartekjur og framlög til
samgönguáætlunar verði rúmir 380 milljarðar
króna. Þar af renni um 324 milljarðar króna til
vegamála.
Hringvegurinn á kaflanum frá Reykjavík til
Selfoss verður svokallaður 2+2 vegur samkvæmt
samgönguáætluninni. Mestur hluti kaflans til
Borgarness verður einnig 2+2 vegur.
Gert er ráð fyrir að afla með sérstakri fjár-
öflun 6,7 milljarða króna á árunum 2007 til 2010
í breikkun hringvegarins milli Reykjavíkur og
Selfoss og 6,8 milljarða á árunum 2011 til 2014.
. „Við ætlum að undirbúa þetta sem einkafram-
kvæmd. Við munum bjóða þetta út í forvali
þar sem gert er ráð fyrir að fjárfestar og fram-
kvæmdaaðilar keppi um hönnun, framkvæmd
og jafnvel rekstur og fjármögnun," segir sam-
gönguráðherra, Sturla Böðvarsson. „Við viljum
fara í forval til að láta á það reyna hvað fjár-
festar eru tilbúnir að leggja á sig til að koma inn
í þetta.
Niðurstaðan gæti hins vegar orðið sú að ríkið
taki þetta að sér verði það talið hagkvæmast."
Að sögn Sturlu er gert ráð fyrir að lagning
Sundabrautar verði einkaframkvæmd. Framlög
á árunum 2007 til 2010 verða 8 milljarðar af sölu-
andvirði Símans auk þess sem gert er ráð fyrir
12 milljörðum úr sérstakri fjáröflun á tímabil-
inu 2011 til 2014. „Þar með er Sundabrautin upp
á Kjalarnes vonandi fullfjármögnuð. Við gerum
ráð fyrir að þegar líður að hausti liggi umhverf-
ismat fyrir, þar sem borin er saman innri leið og
jarðgöng, og þá verður hægt að taka afstöðu og
ákvörðun."
í nýju samgönguáætluninni er lagt til að hægt
verði að vinna við gerð tvennra jarðganga sam-
tímis. „Það er hugsanlega hægt að bjóða Óshlíð-
argöngin út í ár,“ greinir Sturla frá.
FRÉTTIR » síða 10
Baugsmálið
fyrir dóm á ný
Aðalmeðferð Baugsmálsins hófst í gær
en fyrir dómi í þetta skiptiö eru þeir
Jón Ásgeir Jóhannesson, Tryggvi Jóns-
son og Jón Gerald Sullenberger. Ekki
er búist við að málflutningi Ijúki fyrr
en í lok mars en allt að 120 manns
koma til með að bera vitni fyrir dómi.
Þó gæti sú tala lækkað eitthvað þegar
á líður en Ijóst er að nú fara í hönd ein
umfangsmestu réttarhöld sögunnar.
Verjandi Jóns Ásgeirs, Gestur
Jónsson, gerði athugasemdir við
spurningar saksóknara í tengslum
við yfirráð í Fjárfari ehf., en Sigurður
Tómas vildi meina að Jón Ásgeir hefði
í raun veriö ráðandi í ákvörðunartöku
hjá félaginu og því samið við sjálfan
sig í viðskiptum þess og Baugs. Sagði
Gestur að með þessu væri verið að
draga inn í málið þætti sem þegar
væri búið að vísa frá dómi og þar með
breiða út sögur sem ættu ekki við
rök að styðjast. Sagði saksóknari það
alrangt.
Baugsmálið fyrir dómi Sama hver úrskurður héraðsdóms verður í málinu eftir um fimm vikur þykir Ijóst að honum verði áfrýjað til
Hæstaréttar. Fleiri þættir gætu einnig farið fyrir dóm því nú stendur yfir rannsókn á meintum skattalagabrotum einstaklinga sem tengjast
Baugi Group.
» síða 34
ísókn
Það er hver að verða
síðastur að komast í golf-
klúbb á höfuðborgar-
svæðinu fyrir sumarið.
Þúsund manns á
biðlista.
SÉRBLAÐ
VEÐUR
» síða 2
Frost
Norðaustan 10-15 á
Suðausturlandi, annars
hægari vindur. Slydda eða
snjókoma austantil og
síðar einnig sunnanlands.
Frost 0 til 10 stig.
Sérblað um
heilsu fylgir
Blaðinu í dag
Ur mínus
í plús!
■ Þú átt nóa af d<
Þú átt nóg af peningum, ^
Ingólfur kennir þér aö finna þó.
sparaásj
Næstu námskeið
Skráning og upplýsingar:
Sími587 2580
og á www.spara.is
Verð: 9.000-
RENAULT SCENIC II
Nýskn 07/2005, 2000cc
5 dyra, SJálfsklptur, LJos-
grár, Eklnn 17.000 þ.
Vorð: 2.520.000
bllalond.fe
* * * * *
RENAULT LAGUNA li
Nýskr: 01/2006, 2000cc
5 dyra, Sjálfsklptur, Ijós-
grár, Ekinn 7.000 þ.
Vorð: 2.790.000
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 10/2003,1600cc
4 dyra, Sjálfskiptur, Rauður,
Ekinn 91.000 þ.
Verð: 1.450.000
Renault
öruggari notaðir bílar
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 04/2003, 2000cc
5 dyra, SJálfskiptur, Blár,
Eklnn 56.000 þ.
Verð: 1.790.000
Tllboðsverð 1.590.0001>.
i