blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 22
blaðið
Hið gleymda land
Laos er eitt fátækasta ríki Suðaustur-Asíu og á landamæri
að Víetnam, Kambódíu, Taílandi, Kína og Mjanmar. Það er
stundum kallað „hið gleymda land“ þar sem það hefur ekki
náð sömu vinsældum hjá ferðamönnum og nágrannalöndin
ferdir@bladid.net
Hættulegasta lífveran
^AIImargir ferðalangar hræðast svörtu ekkjuna og eitraða
i meira en allt annað. Færri vita þó að mannskæðustu
r heimsins eru moskítóflugur, en þær eru taldar smita
um 300 milljónir manna af malaríu á ári hverju.
^ 30 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007
,I
A hjólum kringum hnöttinn Bræðurnir Sverrir,
lengst til vinstri og Einar, lengst til hægri ásamt
föður sínum, Þorsteini Hjaltasyni. Myndin er tek
in úr mótorhjólaferð feðganna um Gæsavatna-
leið norðan Vatnajökuls síðastliðið sumar.
-v Gönguferð
í Noregi
(slendingum gefst nú tækifæri til að
kynnast einum stærsta þjóðgarði
Noregs, Jötunheimum, í skipu-
lagðri gönguferð með Úrval Útsýn.
Norðmenn eru einstaklega stoltir
af þessu fallega svæði í grennd við
vötnin Bygdin og Gjende og norskir
gönguhrólfar þykja ekki standa
undir nafni ef þeir hafa ekki gengið
Besseggen-fjallshrygginn í Jötun-
heimum. Ferðin tekur eina viku og
gist er í fjallaskálum á nóttunni.
Bræður ferðast um fjöll og flrnindi
Geggjuð heimsreisa
á mótorhjólum
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Bræðurnir Sverrir og
Einar Þorsteinssynir
vita fátt meira spenn-
andi en ferðalög um
fjöll og firnindi á
mótorhjólum. Þeir
hafa brunað vítt og
breitt um hálendi
íslands auk þess sem þeir hafa ferð-
ast á hjólunum um Bandaríkin og
Evrópu. í vor ætla þessir stórhuga
bræður að fá enn meiri útrás fyrir
ævintýraþrá sína og fara „hringinn“
á mótorhjólum. Ekki þó hringinn í
kringum landið heldur í kringum
allan hnöttinn.
„Þetta er gamall draumur hjá
okkur bræðrunum enda erum við
búnir að vera með mótorhjólapróf
í áratugi og mótorhjóladellan hefur
aukist jafnt og þétt með aldrinum,"
segir Sverrir. Þeir Einar hyggjast
leggja af stað þann 8. maí næstkom-
andi og áætlað er að ferðalagið taki
rúmlega þrjá mánuði.
„Við ætlum að byrja á að fara til
Seyðisfjarðar, taka Norrænu til
Færeyja og fara þaðan til Noregs og
keyra norður Noreg og til Svíþjóðar,
Finnlands og Eystrasaltsríkjanna.
Síðan förum við yfir Hvíta-Rússland
til Rússlands og svo Mongólíu og
svo aftur til austurhluta Rússlands.
Þaðan tökum við ferju til Japans og
síðan austur til Alaska og þaðan í
gegnum Kanada og svo Bandarík-
in. Að endingu fljúgum við frá New
York til Keflavíkur og keyrum það-
an heim til Reykjavíkur," útskýrir
Sverrir.
Hann segir að þeir bræður hygg-
ist einungis fljúga þegar leið þeirra
liggur yfir sjó. Að öðru leyti ætla
þeir eingöngu að ferðast um á mótor-
hjólum. „Það þarf auðvitað sérhann-
að ferðahjól fyrir svona langferð og
við verðum á Yamaha XT 66oR en
„Þetta er gamall draumur
hjá okkur bræðrunum
enda erum við búnir að
vera með mótorhjólapróf
í áratugi og mótorhjólad-
ellan hefur aukist jafnt og
þétt með aldrinum."
þau hjól eru einmitt ætluð miklum
akstri yfir fjöll og firnindi,“ segir
hann og bætir því við að þeir hafi
sjálfir mikla reynslu af mótorhjóla-
ferðalögum.
„Síðasta sumar hjóluðum við til
dæmis yfir 8.000 kílómetra vítt og
breitt um hálendi Islands auk þess
sem við höfum áður hjólað töluvert í
Evrópu og í Bandaríkjunum. Að því
leytinu til erum við mjög vel undir-
búnir fyrir heimsreisuna. Formleg-
ur undirbúningur fyrir hana hófst
þó síðasta haust. Mesti tíminn fer í
alls konar pappírsmál þar sem við
þurfum að verða okkur úti um nauð-
synlegar tryggingar, vegabréfsárit-
anir og fleira í þeim dúr. Það hefur
reynst nokkuð tímafrekt."
Spurður um farangurinn segir
hann að vitaskuld sé plássið af skorn-
um skammti. „Við höfum töskur
á hjólunum og við förum með þær
nauðsynjar sem komast í þær, ann-
að ekki. Enda er aukið pláss fyrir far-
angur í raun ekki valkostur," bendir
hann á.
Bræðurnir Sverrir og Einar hafa
ekki staðið einir í undirbúningi fyr-
ir ferðalagið mikla. „Við erum báðir
svo lánsamir að vera vel giftir. Eig-
inkonur okkar hafa auðvitað sínar
áhyggjur en styðja engu að síður við
bakið á okkur og hjálpa okkur við
allan undirbúning. Svo eigum við
fjögur börn hvor þannig að fjölskyld-
urnar eru stórar og allir leggja sitt af
mörkum,“ segir Sverrir glaðbeittur
að Iokum.
Besti veitinga-
staðurinn
Veitingastaðurinn The Fat Duck
í Berkshire í Bretlandi var valinn
besti veitingastaður heims árin
2005 og 2006. Meðal fjölmargra
gómsætra rétta á matseðlinum þar
eru sniglagrautur, lakkríssoðinn
lax, egg- og beikonís með tehlaupi
og krabbakex svo dæmi séu tekin.
Ekki er óalgengt að matarunnendur
hvaðanæva úr heiminum leggi
leið sína til Berkshire í þeim eina
tilgangi að snæða á The Fat Duck.
grgpi
blaði
Auglýsingasíminn er
510 3744
á laugardögum
Gæfir Rómarkettir
Ferðalangar sem leggja leið sína
til Rómar verða oft hissa á að sjá
mikinn fjölda vel haldinna villtra
katta víða í borginni. En helsta
ástæða þess að ófáir villtir kettir í
Róm eru feitir og gæfir er sú að þar
í borg er allstór hópur kvenna sem
taka að sér umönnun allra þeirra
katta sem þær finna, bæði villtra
katta og heimiliskatta sem eigend-
ur hafa skilið eftir í sumarfrium.
Kattakonurnar, sem á ítölsku kall-
ast gattare, gefa köttunum að éta
og fara með þá til dýralæknis þar
sem þeir eru geltir og bólusettir.
Þessar konur vinna hörðum hönd-
um við að afla fjár fyrir kattamat og
lyf auk þess sem nokkur fjöldi sjálf-
boðaliða hjálpar þeim við að annast
kettina.
Til viðbótar við umönnun gatt- þeirra vegum njóta kettir Rómar sem klappa þeim á kollinn og gefa
are-kvenna og sjálfboðaliðanna á velvildar fjölmargra ferðamanna þeim að éta.