blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007
blaðið
INNLENT
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
72 óku of hratt
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 72
ökumenn fyrir of hraðan akstur um helgina en 55
þeirra óku á yfir 100 kílómetra hraða. Flestir sem
voru stöðvaðir voru ungir karlmenn en sá elsti var á
áttræðisaldri.
AKRANES
Eldur í bílskúr
Eldur kom upp í bílskúr á Akranesi síðastliðið laugardagskvöld.
Vel gekk að slökkva eldinn en þegar slökkvilið Akraness kom á
staðinn var skúrinn alelda. Mikinn hita lagði frá eldinum og þurfti
að dæla vatni á nærliggjandi hús. Rannsókn brunans stendur yfir
en líklegt þykir að kviknaði hafi í út frá rafmagnsofni.
ATVINNULEYSI
Rúmlega einn af hundrað án vinnu
Atvinnuleysi í janúar mældist 1,3 prósent sam-
kvæmt Vinnumálastofnun en var 1,2 prósent í
desember. Atvinnuleysi hefur farið hægt vaxandi
á undanförnum mánuðum en það er, samkvæmt
mbl, töluvert minna en á sama tíma fyrir ári.
Sprengjuárás í írak:
Tugir fórust
Að minnsta kosti áttatíu létust
og 150 særðust í þremur sprengju-
árásum í Bagdad, höfuðborg ír-
aks, í gær.
Tvær öflugar sprengjur
sprungu með stuttu millibili á
Shorja-markaðnum skömmu eftir
hádegi að staðartíma þar sem 45
létust, en skömmu áður höfðu tíu
manns látist í sprengjuárás á Bab
al-Sharqi-markaðnum.
Sprengjurnar sprungu skömmu
eftir fimmtán mínútna vinnuhlé
sem yfirvöld fyrirskipuðu til að
minnast þess að eitt ár væri liðið
frá mannskæðri sprengjuárás á
heilagt grafhýsi sjítamúslima í
Samarra.
Umdeildur úrskurður í Þyskalandi:
Mohnhaupt laus
Þýskur dómstóll hefur fyrir-
skipað að Brigitte Mohnhaupt fái
reynslulausn, en hún hefur setið
í fangelsi í 24 ár. Hún fékk fimm-
faldan lífstíðardóm árið 1983 eftir
að hafa verið fundin sek um aðild
að fjölmörgum mannránum og
morðum á áttunda áratug síðustu
aldar. Úrskurðurinn er umdeildur
í Þýskalandi, sérstaklega í ljósi þess
að Mohnhaupt hefur enn ekki lýst
neinni iðrun vegna glæpanna.
Mohnhaupt var liðsmaður
þýsku hryðjuverkasamtakanna
RAF, sem einnig gekk undir
nafninu Baader-Meinhof-gengið.
Hreyfingin er talin bera ábyrgð á
dauða að minnsta kosti 34 manna
á árunum 1972 til 1991.
Fáanleg í flestum stærðum fyrir
15,16,17 og 18" felgur
Fjallasport
*4x4 specialist •
Viöarhöföa 6 - Sími 577 4444
Nýtt „Natöschu-mál" skekur Austurríkismenn:
Metrahár mannasaur
í myrkvuðu húsinu
■ Hélt dætrum sínum föngnum í sjö ár ■ Þróuöu sitt eigið tungumál
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Upplýsingar um austurríska
móður sem hélt þremur dætrum
sínum föngnum í myrkri í sjö
ár á heimili sínu í Linz hafa nú
ratað í austurríska fjölmiðla eftir
að hafa verið haldið leyndum í
hálft annað ár. Eftir skilnað sinn
fékk konan, sem er 53 ára lögfræð-
ingur, taugaáfall en fékk þrátt fyrir
það forræði yfir dætrum sínum. I
kjölfarið tilkynnti hún skólayfir-
völdum að dæturnar væru hættar
í skóla og myndu framvegis hljóta
kennslu á heimilinu. Móðirin hélt
þremur dætrum sínum læstum
inni í myrku húsinu, þar sem þær
neyddust til að lifa við skelfilegar
aðstæður í sjö ár.
Viktoria, Katharina og Elisa-
beth voru sjö, ellefu og þrettán ára
gamlar þegar þær voru læstar inni á
heimilinu árið 1998. Lögregla fann
þær svo í október árið 2005 eftir að
nágranni hafði bent lögreglu á að
eitthvað gruggugt kynni að vera
í gangi í næsta húsi. Nágranninn
hafði áður komið með fjölmargar
ábendingar, en lögregla hrást fyrst
við eftir að hann hótaði að tilkynna
borgaryfirvöldum um aðgerðaleysi
lögreglunnar í málinu.
Eigið tungumál
I húsinu var eins metra lag af
mannasaur og rusli auk þess sem
allt var morandi í músum. Ekkert
vatn rann lengur úr krönum, búið
var að hylja fyrir gluggana með
pappa og einungis ein ljósapera virk-
aði á heimilinu. Móðirin bafði séð
til þess að dæturnar hefðu engin
samskipti við umheiminn, en í nauð-
ungarvist sinni höfðu þær þróað sitt
eigið tungumál.
Stelpurnar hafa allar dvalið á með-
ferðarheimili frá því að þær sluppu
úr prísundinni. Waltraud Kubelka,
sálfræðingur stelpnanna, óttast að
þær jafni sig aldrei að fullu. „Þetta
hefur verið sérstaklega erfitt hjá
þeirri elstu. Það er ekki nokkur leið
að hún jafni sig. Hún var mjög van-
nærð og í raun með anorexíu þegar
systurnar fundust. Nú stendur hún
oft löngum stundum á öðrum fæti
og starir á gólfið. Yngri stelpurnar
munu þurfa mörg ár til að jafna sig
á skelfilegum æskuárum sínum.“
Faðir stúlknanna, sem er dóm-
ari, fékk ekkert að hitta dæturnar á
þessu sjö ára tímabili, þrátt fyrir að
hafa leitað níu sinnum til dómstóla.
Hann er nú í stöðugu sambandi
við stelpurnar, en vonast er til að
bráðlega verði hægt að útskrifa þá
yngstu.
Leituðu í myrkrið
Kubelka segir að fyrstu vikurnar
eftir að þær sluppu hafi þær falið sig
undir bekk í eldhúsi meðferðarheim-
ilisins. „Þær leituðu í myrkasta stað-
inn á meðferðarheimilinu. Þær áttu
í erfiðleikum með birtuna þar sem
þær höfðu ekki kynnst sólarljósi og
fersku lofti í mörg ár.“
Móðir stelpnanna hefur verið
vistuð á réttargeðdeild allt frá því
Heimili fjölskyldunnar í Linz Eins
metra hátt lag af mannaskít og rusli
fannst innan veggja heimilisins.
að upp komst um meðferð hennar
á dætrum sínum. Réttarhöld yfir
henni hefjast á næstu vikum, en
hún hefur verið ákærð fyrir grófa
vanrækslu og að hafa pyndað
börnin. Hún gæti átt yfir höfði sér
allt að fimm ára fangelsi.
Málið hefur vakið mikla athygli
í Austurríki og reyna stjórnvöld
nú eftir fremsta megni að útskýra
hvernig svona hafi atvikast án þess
að nokkur hafi gripið í taumana fyrr.
Málið minnir um margt á mál Natö-
schu Kampusch, stúlkunnar sem var
haldið fanginni á heimili Wolfgangs
Priklopils í úthverfi Vinarborgar í
átta ár. Kampusch slapp úr haldi
Priklopils í lok síðasta sumars.
Virkjunaráform í Þjórsá:
Framkvæmdaleyfi vantar
Þjórsá Sveitarstjóri segir
meirihluta fundarmanna
aóknmi ifnlk
„Það á auðvitað eftir að veita
formlegt framkvæmdaleyfi en ætli
menn sér að standa á móti á þessu
stigi verða rökin að vera afskaplega
sterk,“ segir Örn Þórðarson, sveitar-
stjóri Rangárþings ytri.
Á fundi samtakanna Sól á Suður-
landi á sunnudagskvöld var virkj-
unaráformum í neðri hluta Þjórsár
harðlega mótmælt og var samþykkt
ályktun þar sem skorað var á þau
sveitarfélög sem að málum koma að
veita fyrirhuguðum virkjunum ekki
brautargengi.
Að sögn Arnar er tæknilega enn
mögulegt fyrir sveitarstjórnir að
hafna slíku þrátt fyrir að fram-
kvæmdirnar hafi farið í mat og
kynningu en rökin þyrftu að vega
mjög þungt. „Aukinbeldur er það
mín tilfinning að mikill meirihluti
íbúa hér sé hlynntur fyrirhuguðum
framkvæmdum, einfaldlega af því
að það er jákvætt fyrir sveitarfélagið
í heild sinni.“
{sama streng tekur Gunnar Örn
Marteinsson, oddviti Skeiða- og
Gnúpverjahrepps. „Helsti gallinn
við þennan fund var að meirihluti
fundarmanna var aðkomufólk og
niðurstaðan lýsir ekkert viðhorfum
heimamanna sem mig grunar að
séu almennt jákvæð."
Eydís Indriðadóttir, oddviti Ása-
hrepps, segir engan geta samþykkt
framkvæmdaleyfi nema sveitar-
stjórnir. „Þangað til nákvæmari til-
lögur og teikningar liggja fyrir um
umræddar virkjanir er ljóst að fram-
kvæmdaleyfi verður ekki veitt.“
Margrét Sigurðardóttir, sveitar-
stjóri Flóahrepps, segir að fjallað
verði um ályktun fundarins á
næstu fundum sveitarstjórnar.
.Virkjanamál hafa verið og verða of-
arlega hjá okkur en það er langur
vegur ennþá enda á eftir að sam-
þykkja aðalskipulag og annað er
til þarf áður en ákvarðanir verða
teknar varðandi hugsanlegar
virkjanir."