blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007
blaöiö
VEÐRIÐ I DAG
Frost
Frost 0 til 10 stig, kaldast í inn-
sveitum, en hlýnar við suður- og
austurströndina.
ÁMORGUN
Hlýnar
Austlæg átt, víða 5-10 m/s og
skúrireðaél. Hiti 1 til 5 stig,
en vægt frost norðanlands.
VÍÐA UM HEIM I
Algarve 17
Amsterdam 10
Barcelona 18
Berlín 8
Chicago 0
Dublin 8
Frankfurt 8
Glasgow 7
Hamborg 6
Helsinki
kaupmannahöfn 1
London 10
Madrid u
Montreal 9
New York -1
Orlando 17
Osió -6
Palma 18
París 11
Stokkhólmur ■1
Þórshöfn 5
A FORNUM VEGI
Hvað finnst þér um
að máli olíuforstjór-
anna hafi verið vísað
frá dómi?
Aðalsteinn Gunnarsson, nemi
„Mér er eiginlega alveg sama um
það.“
Sigurður Gísli Eiríksson, nemi
„Ég er ógeðslega brjálaður."
Helgi Már Gíslason, nemi
„Mér finnst þetta fáránlegt. Af
hverju ætti ég þá ekki líka að
fá að brjóta lögin og sleppa við
dóm?“
Karítas Pálsdóttir,
skrifstofustarfsmaður
„Ég bara get ekki svarað þessu.
Ég get ekki sest í dómarasæti."
Ólafur Fannar Jónsson,
bílstjóri
„Mér finnst þetta mjög, mjög
slæmt.“
Heim f partí og koma
svo aftur Skemmti-
staðurinn Broadway.
Rauði krossinn á framhaldsskólaböllum:
Gætir nemenda
sem eru ofurölvi
■ Fluttir í „dauðaherbergi“ ■ Breyttar árshátíöarvenjur ■ Fer yfirleitt vel fram
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Sjálfboðaliðar frá Rauða krossinunw
í Reykjavík gæta ofurölvi framhalds-
skólanemenda í svokölluðu „dauða-
herbergi“ á skemmtistöðum þar
sem skólarnir halda böll sín. Rauði
krossinn hefur séð um sjúkragæslu
á slíkum böllum frá 1995.
„Drykkjan er alltaf eins. Flestir
krakkar kunna ekki með áfengi
að fara. Áfengisneysla er bönnuð
á böllunum en þetta er bara svona,“
segir Viðar Arason, verkefnisstjóri
skyndihjálparhópsins, sem vakti
athygli á dögunum eftir frækilegt
björgunarafrek í Ölfusá. Viðar
er menntaður sjúkraflutninga-
maður og segir hann marga slíka
í hópnum sem er við sjúkragæslu
á framhaldsskólaböllunum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni er sjúkragæsla ekki skilyrði
fyrir leyfi til að halda ball, heldur
hafa skólarnir sjálfir komið þessari
reglu á.
„Ef krakki er mjög ölvaður og
getur ekki gert grein fyrir sér er
hann fluttur í sérstakt sjúkraher-
bergi, sem krakkarnir kalla dauða-
herbergi, og svo er hringt í foreldra
hans. Þeir koma í öllum tilvikum
strax á vettvang og eru mjög þakk-
látir fyrir þjónustuna,“ greinir Viðar
frá. Hann segir sjálfboðaliða Rauða
krossins ekki fara út af skemmti-
staðnum fyrr en síðasti nemand-
inn er farinn úr húsi. „Við förum
heldur ekki af svæðinu ef það er
mikil ölvun fyrir utan skemmtistað-
inn að balli loknu. Við förum ekki
fyrr en allir eru farnir. Takmarkið
er að krakkarnir séu í 100 prósenta
gæslu,“ segir Viðar.
Að sögn Arnars Laufdals, fram-
kvæmdastjóra Broadway, er það orðið
sjaldgæfara en áður að framhalds-
skólanemar borði á staðnum þegar
þeir halda árshátíð. Algengast er að
Foreldrarnir þakklátir
A A Viöar Arason, sjúkraflutningamaður
nemendur snæði á veitingastöðum
eða panti mat í heimahús og komi svo
á skemmtistaðinn á sjálfa árshátíðina.
Borði þeir á staðnum hverfa þeir
í mörgum tilfellum allir af svæðinu
að borðhaldi loknu til að fara í partí
í heimahúsum. Síðan koma þeir
aftur á skemmtistaðinn á sjálfa árs-
hátíðina þótt í sumum tilfellum séu
menn um kyrrt allt kvöldið.
„Menn geta sagt sér það sjálfir
hvers vegna krakkarnir fara burt
í nokkrar klukkustundir en koma
svo aftur. En það eru bara örfáir
sem verða það ölvaðir að það leiði til
vandræða. Yfirleitt fer þetta allt vel
fram,“ leggur Arnar áherslu á.
Akranes:
Byssur
og pylsur
Tilkynnt var um mann
vopnaðan hlaðinni haglabyssu
í heimahúsi á Akranesi aðfara-
nótt sunnudags. Hafði hann
hvorki í hótunum né ógnaði
neinum og afhenti byssuna
skömmu eftir tilkynninguna.
Maðurinn var vistaður í
fangageymslu sökum ölvunar
en gaf litla skýringu á byssumeð-
höndluninni og þvertók fyrir
að byssan hefði verið hlaðin.
20 kiló af pylsum ásamt öllu
tilheyrandi meðlæti, tómatsósu,
sinnepi, remúlaði og steiktum
lauk, var stolið úr bifreið SS á
sunnudaginn. Elcki er vitað hver
eða hverjir voru þarna að verlci.
Svíþjóð:
Hundar átu
eigandann
Tæplega þrítugur karlmaður
fannst látinn j£ heimili sínu í Mal-
mö í Svíþjóð iim helgina og var
líkið mjög illitjfarið eftir ágang
hunda mannsins. Að sögn lögregl-
unnar virðist sem maðurinn hafi
látist af náttúrlegum orsökum.
Vinir mannsins fundu hann
látinn á sunnudaginn eftir
að hafa ekki heyrt í honum í
nokkra daga og höfðu í kjöl-
farið samband við lögreglu.
Réttarkrufningarlæknirinn
. sem rannsakaði lík mannsins
segir það vera óvenjulegt að
hundar éti kjöt látinna manna.
Hundarnir tveir eru amerískir
Staffordshire terrier-hundar.
r
Dodge Ram
2500 5,9 L Disel.
1. Janúar verða settar 90 km/klst. hraðatakmarknir.
Eigum enn til bíla á lager sem verða án hraða-
takmarkana. Nýtt útlit, Laramie búnaður, leður, allt
rafknúið, klædd skúffa, ofl. Tveggja ára ábyrgð,
þjónustaður af Ræsi.
Sýningarbíll á staðnum.
Okkar verð: 4.400 þús.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17
Sími: 577 3344
V
j
Blaðamannaverðlaun ársins 2006:
Þrír á Blaðinu tilnefndir
Þrír starfsmenn Blaðsins eru til-
nefndir til Blaðamannaverðlauna
Blaðamannafélags Islands. Enginn
fjölmiðill státar af fleiri tilnefndum
íár.
Bæði Halldór Baldursson, sem
teiknar fyrir Blaðið og Viðskipta-
blaðið, og Kolbrún Bergþórsdóttir
eru tilnefnd til Blaðamannaverð-
launa ársins 2006. Hann fyrir skop-
og ádeiluteikningar sínar og túlkun
á fréttnæmum íslenskum þjóðfélags-
viðburðum. Hún fyrir fjölbreytileg
og áhugaverð mannlífsviðtöl og
menningarskrif sem dreifast yfir
allt árið 2006.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
er tilnefnd í flokki rannsóknar-
blaðamennsku ársins 2006 fyrir
uppljóstrandi fréttaröð í Fréttablað-
Tilnefnd til blaðamannaverðlauna
Halldór og Kolbrún eru tilefnd til
Blaðamannaverðlauna ársins 2006.
GunnhildurArna er tilnefnd fyrirrann-
sóknarblaöamennsku ársins 2006.
inu um margfaldan verðmun á sam-
heitalyfjum á íslandi annars vegar
og Danmörku hins vegar.
„Það hefur mikla þýðingu fyrir
jafn ungt dagblað og Blaðið að þrír
blaðamenn skuli vera tilnefndir til
þessara verðlauna,“ segir Trausti Haf-
liðason, ritstjóri Blaðsins. „Tilnefn-
ingarnar sýna að hér starfar bæði
hæfileikaríkt og fjölhæft fólk sem á
hverjum degi leggur mikið á sig til
þess að koma út góðu dagblaði.”
Auk Gunnhildar eru Henry Birgir
Gunnarsson á Fréttablaðinu og Jó-
hannes Kr. Kristjánsson, Kompási,
tilnefndir fyrir rannsóknarblaða-
mennsku. Davíð Logi Sigurðsson,
Morgunblaðinu, er auk Kolbrúnar
og Halldórs tilnefndur til Blaða-
mannaverðlauna ársins 2006.
Þrír eru tilnefndir fyrir bestu um-
fjöllun ársins 2006. Auðunn Arn-
órsson, Fréttablaðinu, Jóhanna Vil-
hjálmsdóttir, Kastljósi, og Sigríður
Víðis Jónsdóttir, Morgunblaðinu.