blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007
blaöið
INNLENT
SKAGASTROND
Flugeldur ætlaður lögreglumanni
Kveikt var í flugeldi viö heimili lögreglumanns á
Skagaströnd snemma á sunnudagsmorgun. Lítils-
háttar skemmdir uröu vegna þessa. Ekki er vitað
hver sprengdi flugeldinn en Ijóst er að ekki var um
tilviljun eöa óhapp aö ræöa. Málið er í rannsókn.
ACTAVIS GROUP
Ur krónum í evrur
Á hluthafafundi Actavis Group 9. febrúar síðastliðinn var
ákveðið að veita stjórn félagsins heimild til að færa hlutafé
úr krónum í evrur. Einnig var ákveðið að hlutafé félagsins
verði hækkað um tólf hundruð milljónir króna vegna fjár-
mögnunar Actavis á hlutum í öðrum félögum.
Helmingur bifreiða á nöglum
Önnur hver bifreið er nú á nöglum í Reykjavík, sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu umhverfissviðs
Reykjavíkur. Á sama tíma árið 2005 var hlutfallið
á bilinu 54 til 58 prósent og árið 2003 á bilinu 57
til 61 prósent.
GRUNNNÁM í
PHOTOSHOP
blaðiö
Auglýsingasíminn er
510 3744
*3
Að eiga stafræna myndavél
og kunna ekki á Photoshop
er eins og að eiga bíl og
kunna ekki að keyra!
Á þessu námskeiði er lögð áhersla á hvernig
hægt er að nota þetta magnaða forrit til
eftirvinnslu og lagfæringar stafrænna mynda
úr myndavélum eða skönnum. Áhugavert og
skemmtilegt 30 stunda námskeið í þessu
frábæra forriti.
* Kvöldnámskeið
Mánudaga og miðvikudaga frá 18-22.
Byrjar 26. feb. og lýkur 12. mars.
■ Morgunnámsskeið
Mánudaga og miðvikudaga frá 8:30-12:30
Byrjar 28. feb. og lýkur 14. mars.
.................................... ntV ÍS S9SS
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Verðbólga mælist 7,4 prósent:
Launþegar kalli
eftir leiðréttingu
■ Húsnæðisverð veldur hækkun ■ Hámarkinu náð
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
„Ef svo fer fram sem horfir að verð-
bólga verði áfram svona há þá gefur
það auga leið að launafólk hlýtur að
kalla eftir leiðréttingu sinna kjara
því greiðslubyrði lána vex mjög
hratt og er farin að vera mjög íþyngj-
andi fyrir okkar fólk,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
ASÍ. Verðbólga mælist nú 7,4 prósent
og hækkaði vísitala neysluverðs um
0,41% frá því í janúarmánuði.
Verðbólgan 2,5 pró-
sent um mitt árið
Húsnæðisliður vísitölunnar hefur
mestu áhrifin á hækkun hennar
en sá liður hækkaði um 1,8 prósent
frá því í janúar. Greiningardeildir
bankanna höfðu gert ráð fyrir 0,2%
minni verðbólgu en mældist nú.
Hjördís Vilhjálmsdóttir, hagfræð-
ingur hjá Glitni, segir verðbólguna
nú vera töluvert háa en hækkunin
sé einungis tímabundin. „Við gerum
ráð fyrir því að hámarkinu sé náð
núna og að verðbólgan sé á leiðinni
niður og að hún fari hratt niður. Al-
mennt séð gerum við ráð fyrir því að
verðbólgan verði komin niður í 2,5
prósent um mitt árið en fari reyndar
aðeins upp þegar líða fer á árið.“
Ekki verið að ráðast að rót vandans
Breytingar á lögum um virðis-
aukaskatt, vörugjöld og tolla taka
gildi um næstu mánaðamót en sú
brey ting mun hafa mest áhrif á verð-
lag á mat- og drykkjarvörum. „Við
gerum ráð fyrir lítilli verðbólgu
næst og í mars gerum við ráð fyrir
töluverðri lækkun út af aðgerðum
stjórnvalda til að lækka neysluverð,“
segir Hjördís.
Gylfi lítur breytinguna hins
vegar ekki jafn björtum augum
„Við höfum áhyggjur af því að sá
ávinningur sem neytendur áttu að
njóta, meðal annars af lækkun mat-
arskatts, verði horfinn áður en til
þess kemur. Aðalatriðið í þessu er
að það er ekki verið að ráðast mikið
að rót þessa vanda. Það að breyta
mælistikunni einn tiltekinn dag og
færa niður skatta breytir ekki takti
verðbólgunnar. Verðbólguhraðinn
minnkar ekkert mikið. Við erum
orðin langþreytt á að kalla eftir ein-
hverri efnahagsstefnu sem tekst á
við þennan vanda.“
Greiðslubyrði
lána vexmjög
hratt og er
íþyngjandi
Gylfi Arnbjörnsson,
framkvæmdastjóri ASl
Verð á mat og drykkjum
breyttist lítið
Hækkun húsnæðisliðar vísitöl-
unnar má að mestum hluta rekja
til hækkunar á markaðsverði
húsnæðis, á vöxtum og viðhalds-
kostnaði. Verðlag á matar- og
drykkjarvörum breyttist lítið á
milli mánaða eða hækkaði um
0,2 prósent frá því í janúar. Vetr-
arútsölur hafa enn áhrif og lækk-
aði verð á fötum og skóm um 4,1
prósent. Þegar þessi liður er skoð-
aður sérstaklega kemur fram að
verð á búvörum, öðrum en græn-
meti, lækkaði um 1 prósent. Verð
á innfluttum matvörum lækkaði
einnig um 0,7 prósent. Grænmeti
hækkaði hins vegar um 1,2 prósent
frá því i síðasta mánuði og verð á
öðrum innlendum mat- og drykkj-
arvörum um 1,8 prósent.
ítalskar konur grýttar á Cape Verde:
Önnur grafin lifandi
Giorgia Busato og Dalia Saiani,
ungar ítalskar konur, létust eftir
að ráðist var á þær á eyjunni Cape
Verde undan stöndum Afríkurík-
isins Senegal um helgina. Agnese,
sú eina sem komst lífs af eftir
árás mannanna, segir að þær hafi
verið grýttar, dregnar inn í skóg
og skildar eftir í holu. Að sögn
lögreglu var ein kvennanna grafin
lifandi.
Konurnar voru allar brimbretta-
konur, en Saiani og Agnese voru
í vikulöngu fríi á eyjunni. Hin 28
ára Busato bjó hins vegar á eyjunni
og hafði átt í ástarsambandi við far-
Busato og Saiani Lögregla segir
að önnur þeirra hafi verið grafin
lifandi.
arstjóra en nýverið bundið enda á
sambandið. Þrátt fyrir það höfðu
konurnar samþykkt að fara út að
borða með honum og vini hans, en
á leiðinni á veitingastaðinn keyrðu
mennirnir konurnar út í skóg þar
sem þeir réðust á þær. Mennirnir
hringdu svo i vin sinn til að að-
stoða þá við að grafa konurnar.
Lögregla fann Agnese skömmu
síðar á gangi með alvarlega höfuð-
áverka og þurfti meðal annars að
sauma átján spor í höfuð hennar.
Mennirnir þrír voru handteknir
á sunnudaginn og hafa allir viður-
kennt aðild að málinu.