blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007
bla6iö
INNLENT
Hafna ásökunum Bandaríkjamanna
frönsk stjórnvöld hafna ásökunum bandarískra
embættismanna um aö íranar sjái uppreisn-
armönnum sjítamúslíma í írak fyrir vopnum.
Mahmoud Ahmadinejad (ransforseti fordæmdi
ásakanirnar.
Þúsundir hafa veikst í kjölfar flóða
Nærri 200 þúsund manns þjást nú af niðurgangi, beinþrunasótt
og ýmsum öndunarfærasjúkdómum í kjölfar mikilla flóða sem
riðu yfir Jakarta, höfuðborg Indónesíu, fyrr í mánuðinum. Borgar-
starfsmenn vinna nú hörðum höndum að því að hreinsa borgina,
en mörg heimili eru enn án hreins vatns og rafmagns.
Varaforseti Saddams verður hengdur
Hæstiréttur (raks úrskurðaði í gær að Taha Yassin Ramadan,
fyrrum varaforseti Saddams Husseins, verði tekinn af lífi með
hengingu. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna og ýmissa mannrétt-
indasamtaka höfðu biðlað til dómaranna að þyrma lífi Rama-
dans sem var fundinn sekur um glæpi gegn mannkyni.
Bretland:
Camilla í leg-
námsaðgerð
Camilla, eiginkona Karls
Bretaprins, mun gangast undir
legnámsaðgerð í upphafi næsta
mánaðar. Camilla er sextug að
aldri og mun taka sér sex vikna
hvíld frá opinberum störfum
eftir aðgerðina til að jafna sig.
f yfirlýsingu frá bresku kon-
ungsfjölskyldunni er sérstaklega
tekið fram að Camilla sé ekki
með krabbamein, en algengt er
að konur á þessum aldri gangist
undir aðgerð sem þessa.
Vantar þig leið til þess að koma
jafnvægi á líkamsstarfssemina?
Zhena's Gypsy Tea
gæti hjálpao
Prófaðu Fireside Chai
Kofffnlausa kraftaverkið
TILBOÐ
20% afsláttur
hjá næsta söluaðila
Englatár - www.englatar.is - 551 8686
w-:í
Falleg - sterk - náttúruleg
Suöurlandsbraut 10
Síml 533 5800
www.simnet.is/strond
^<STRÖND
' EHJT.
Baugsmálið fyrir dóm á ný:
Maraþonvitnaleiðslur
yfir hundrað manns
■ Umfangsmesta dómsmál sögunnar ■ Hátt í 100 vitni leidd fyrir dóm
leiða Jón Ásgeir aftur fram til vitnis
sökum þess hve seint gögnin voru
lögð fram sem og umfangs
þeirra. Við skýrslutök-
m w una hélt Jón Ásgeir
BC/JmH I fram sakleysi sinu í
öllum ákæruatriðum.
Útskýrði hann fyrir
IvJLl'&JIJAJPF dómi að meintar lán-
veitingar Baugs hefðu
verið hluti af viðskiptum.
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Aðalmeðferð síðari hluta Baugsmáls-
ins hófst í gær en fyrir dómi í þetta
skiptið eru þeir Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Tryggvi Jónsson og Jón Gerald
Sullenberger. Ekki er Búist við að
málflutningi ljúki fyrr en í lok mars
en allt að 100 manns koma til með
að bera vitni fyrir dómi. Þó gæti sú
tala lækkað eitthvað þegar á líður
en ljóst er að nú fara í hönd ein um-
fangsmestu réttarhöld sögunnar.
Ákærurnar sem fjallað er um nú
eru þær sem gefnar voru út þann 31.
mars í fyrra og voru þær 19 talsins
en Héraðsdómur vísaði fyrsta og
veigamesta lið þeirra frá dómi í júlí í
fyrra og staðfesti Hæstiréttur þann
dóm í janúar síðastliðnum.
Jón Ásgeir ríður á vaðið
Það ríkti nokkur eftir-
vænting í gær þegar Jón
Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, mætti í Hér-
aðsdóm Reykjavíkur til að
beravitni. SigurðurTómas
Magnússon, sem fer með málið fyrir
hönd ákæruvaldsins, spurði Jón Ás-
geir út í ákæruliði 2-9, en þeir liðir
snúast um brot á hlutafélagalögum,
þá einkum að því er varðar lánveit-
ingar Jóns Ásgeirs og Baugs.
Enn fleiri gögn voru lögð fyrir
dóminn áður en vitnaleiðslur hófust
og áskildi saksóknari sér rétt til að
Deilt um draugasögur
Verjandi Jóns Ásgeirs, Gestur Jóns-
son, gerði athugasemdir við spurn-
ingar saksóknara í tengslum við yfir-
ráð í Fjárfari ehf., en Sigurður Tómas
vildi meina að Jón Ásgeir hefði í raun
verið ráðandi í ákvörðunartöku hjá
félaginu og því samið við sjálfan sig
í viðskiptum þess og Baugs. Sagði
Gestur að með þessu væri verið að
draga inn í málið þætti sem þegar
væri búið að vísa frá dómi og þar
með breiða út sögur sem ættu ekki
við rök að styðjast. Sagði saksóknari
það alrangt. Jón Ásgeir svaraði því til
að Fjárfar hefði verið skel utan um
fjárfestingar Baugs og að hugmyndin
hafi verið sú að gera félagið að fjárfest-
ingararmi Baugs og að alrangt væri
að hann væri eigandi Fjárfars, slíkt
væru draugasögur saksóknara.
Rétti var slitið um fjögurleytið í
gær og hefst aftur í dag þar sem Jón
Asgeir mun áfram bera vitni og er
búist við að skýrslutöku af honum
ljúki á miðvikudag.
(júlí 2005 er gefin út ákæra á hendur sex einstaklingum
tengdum Baugi, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Jóhann-
esi Jónssyni, Kristínu Jóhannesdóttur, Trygava Jónssyni,
Stefáni Hilmarssyni og Önnu Þórðardóttur. Akæran var í 40
liðum og var þeim öllum vísað frá dómi þann 20. septemb-
er það sama ár vegna galla á ákærum.
Málinu var vísað til Hæstaréttar sem staöfesti frávísun
32 ákæruliðanna en vísar 8 liðum aftur heim í hérað.
Sigurður Tómas Magnússon tekur viö Baugsmálinu
í heild sinni af Jóni H.B. Snorrasyni þann 17. nóvember
2005, en áður hafði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
skipað Sigurð Tómas settan rikissaksóknara í málinu.
Um miðjan mars eru ákærðu i Baugsmálinu sýknaðir í
héraðsdómi af þeim átta liðum sem eftir standa og í janúar
sl. staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð og lauk þar með fyrri
hluta Baugsmálsins.
I lok mars 2006 hefst síðari hluti Baugsmálsins þegar
settur ríkissaksóknari gefur út nýja ákæru í 19 liðum í
stað þeirra 32 sem áður var vísað frá dómi. Jón Ásgeir,
Tryggvi og Jón Gerald eru ákærðir í þetta skiptið.
í júní 2006 vísar héraðsdómur fyrsta og veiga-
mesta ákæruliðnum frá dómi. Hæstiréttur
staðfestir þann úrskurð tæpum mánuði
seinna. Eftir standa þeir 18 ákæruliðir sem
nú eru fyrirdómi.
Sama hver úrskurður héraðsdóms verður
í málinu er Ijóst að honum verður nær örugg-
lega áfrýjaö til Hæstaréttar og mun þá síðari
hluta Baugsmálsins Ijúka.
Rannsókn stendurnú yfir á meintum
skattalagabrotum einstaklinga sem
tengjast Baugi Group en ekki hefur verið
ákveðið hvort ákæra verður gefin út i
því máli. Fari svo hefst enn einn kaflinn
í Baugsmálinu sem nú hefur staðið yfir í
hátt á fimmta ár.
Bónusmál í dómi Verjendur og
sakborningar fyrir dómi i gær.
r
1 T3S&.
Þvottavélar, þurrkarar
og uppþvottavélar
á !
AEG LAVAMAT 76820
ÞVOTTAVÉL með íslensku stjórnborði
• Taumagn: 7 kg • Vinduhraði 1600/1200/1000/600 s/mín.
• 24 þvottakerfi ásamt sérstöku sparnaðariœrfi
• Sérstakt vindingarkerfi fyrir viðkvæman þvott og ull
AEG LAVATHERM 57820
ÞURRKARI barkalaus með íslensku stjórnborði
• Taumagn: 6 kg • Mjög hijóðiátur
Rakaskynjari: 9 mismunandi þurrkstig
.
TILBOÐ:
Kr. 79.900
(Ádur: Kr. 96.667)
Kr. 89
(Áöur: Kr. 107.419)
SAMSUNG Q1457
SAMSUNG þvottavél
1400snúninga, 7,5 kg.
Óvenju stór tromla - 57,51.
Vatnsnotkun 601 pr. 7,5 kg.
Mjög hljóðlát - aðeins 50. db
-
-
(1400snúrt)
(16Ö0sni9l)-
SAMSUNG þvottavél
1200snúninga, 6kg.
Mjög hláölát -
Tölvustýrð
Hraðþvottur á aðeins 30 mín.
jJ. (1200snún.)
(1400snún.)
AEG þvottavél
1200 snúninga, 6 kg.
Fjöldi prógramma
(slenskt stjómborð
AEG uppþvottavél
5 kerfi, islenskt stjórnborð,
Mjög hljóðlát - aðeins 41 db
GERÐU
EINLEGA
ÓÐ KAUP!
ORMSSON
SIMI 530 2900
ORMSSON
KADIONAUST
SÍMI461 5000
ORMSSON
SIMI421 1535
AKRANESI
SlMI 431 3333
ÁRVIRKINN
SELF0SSI
SÍMI 4801160
SIMI456 4751
VÍK
NESKAUPS7AO
SÍMI 4771900
VÍK
REYÐARFIRÐI
SfMI 474 1477
VÍK
EGILSSTÖÐUM
SÍMI471 2038
8ÓKABÚÐIN
HÚSAVÍK
SÍMI4641515
Kólumbía:
Týndur í þrjú ár
Leonardo Nur, 35 ára kólumb-
ískur hermaður, fannst hlekkj-
aður við tré í frumskógi 250 kíló-
metra vestur af höfuðborginni
Bogota á fimmtudaginn. Hann
týndist fyrir þremur árum og
hafði Kólumhíuher fyrir löngu
talið hann af.
Nur hafði verið i haldi
vinstrisinnaðs uppreisnarhóps
í landinu, en honum var rænt í
maímánuði árið 2003 í Bogota.
Herinn gerði árás á búðir upp-
reisnarmannanna eftir að hafa
fengið upplýsingar um að þeir
hefðu gísl í haldi. Hermennirnir
vissu þó ekki um hvern væri
að ræða fyrr en þeir rákust á
gamlan félaga sinn hlekkjaðan
við tréð.
Guevarista-uppreisnarherinn
hélt Nur föngnum, en mannrán
eru algeng aðferð kólumbískra
uppreisnarhópa til að vekja
athygli á málstað sínum. Aldrei
var farið fram á lausnargjald
á Nur svo gert var ráð fyrir að
hann væri látinn.