blaðið - 13.02.2007, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007
blaöið
UTAN UR HEIMI
Framkvæmdir við helgistað stöðvaðar
Borgarstjóri Jerúsalemborgar hefur látið stöðva
framkvæmdir við göngubrú nálægt al-Aqsa moskunni,
en staðurinn er þriðji helgasti staðurinn í múslímatrú.
Hann segir ákvörðunina vera tekna svo að almenningur
geti lýst skoðunum sínum og kynnt sér málin í þaula.
Tveimur Þjóðverjum rænt
Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýska-
lands, sagði frá því í gær að óttast væri að tveimur
þýskum ríkisborgurum hefði verið rænt í Irak. Þeirra
hefur verið saknað í viku. Þremur Þjóðverjum hefur
áður verið rænt í (rak, en var öllum slegpt.
Howard gagnrýnir Obama
John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur gagnrýnt banda-
ríska forsetaframbjóðandann Barack Obama fyrir að segja að
Bandaríkjaher ætti að yfirgefa Irak á næsta ári. Howard segir að
liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda ættu að biðja sem
oftast fyrir því að Obama verði næsti forseti Bandaríkjanna.
Bandaríkin:
Setti prósak í súpuna
William Allen Cunninghan
hefur verið ákærður fyrir of-
beldi gegn börnum eftir að hafa
látið börn sín borða súpu sem
hann hafði bætt ýmsum efnum
út í til að reyna að hafa peninga
af Campbell-súpufyrirtækinu.
Þriggja ára sonur og átján mán-
aða dóttir Cunninghams voru
tvívegis lögð inn á sjúkrahús í
Jonesboro í Georgíuríki eftir að
Cunningham hafði bætt sterku
kryddi, kveikjaravökva og lyfj-
unum prósaki og amitriptylíni
út í súpu barnanna. Cunning-
ham hringdi í höfuðstöðvar
súpuframleiðandans og hótaði
málaferlum. Upp komst um
lygar mannsins skömmu síðar,
en hann gæti átt yfir höfði sér
fimm ára fangelsi.
Jeppadekk
Gylfafiöt 3*112 Reykjavík • Simi 567 4468
dekk@gummisteypa.is • www.gummisteypa.is
EENERAL TIRE m
Líflegt og fjölbreytt nám fyrir þá sem vilja
tileinka sér sérþekkingu á sölu- og markaðs-
málum. Námið er ætlað þeim sem hafa áhuga
á vinnu við sölustörf og einnig fyrir starfandi
sölumenn sem vilja styrkja sig í starfi.
■ Sölutækni og aðferðir -18 stundir
* Samskipti við viðskiptavini - 6 stundir
■ Markaðsfræði - 30 stundir
* Sölu- og viðskiptakerfi - 24 stundir
• Tímastjórnun - 6 stundir
■ Framkoma og framsögn - 6 stundir
• Markaðsrannsóknir - 6 stundir
Næsta námsskeið:
Morgunnámskeið - 96 stundir - 79.000
Mán., mið. og fös. frá kl. 8:30 -12:30
Byrjar 21. febrúar og lýkur 28. mars.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 0G Á NTV.IS
Óánægja með spítala Skiptar
skoðanir eru sagðar innan
læknastéttarinnar um bygg-
ingu nýs spítala við Hringbraut.
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Læknar eru klofnir í afstöðu sinni
gagnvart nýju hátæknisjúkrahúsi
og yfirstjórnin lætur líta út eins og
allir séu sammála um málið. Það
er bara ekki þannig og stór hópur
fólks hefur áhyggjur,“ segir Stefán E.
Matthíasson skurðlæknir. Áætlað er
að nýr spítali við Hringbraut verði
tekinn í notkun árið 2014 en fram-
kvæmdir hefjast árið 2009.
Aðalsteinn Pálsson, sviðsstjóri
byggingasviðs Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss, segir að í upphafi hafi
verið deilt um fyrirkomulagið en
hann telur samstöðu hafa náðst.
„Ég hef skynjað það þannig að sam-
staða sé að nást. Framan af var deilt
um þetta en umræðan í dag er ekki
hávær. Þessi leið er einfaldlega sú
hagstæðasta sem í boði var enda
var lagt upp með það á sínum tíma,“
segir Aðalsteinn.
Of mikil miðstýring
Lýður Árnason læknir hefur
einnig orðið var við töluverða
óánægju meðal lækna. Hann segir
alltof mikla miðstýringu í heilbrigð-
ismálum hér á landi. „Frá upphafi
fannst mér þetta vanhugsuð hug-
mynd. Hún kom mjög fljótt upp og
lítur út sem geðþóttaákvörðun sem
Frá upphafi
fannstmér
þetta vanhugsuð
hugmynd
LýðurÁrnason,
læknir
var hrundið af stað eins og snjóflóði.
Hlutirnir voru ekkert ræddir, líkt
og þarf að gera með svona stórt mál,“
segir Lýður. „Það eru mjög skiptar
skoðanir meðal lækna. Ég held
raunar að meirihluti stéttarinnar
hafi ýmislegt út á nýja spítalann
að setja. Aðferðafræðin í ferlinu er
með eindæmum og við hana er ég
ekki sáttur.“
Brugðist við athugasemdum
Ingólfur Þórisson, framkvæmda-
stjóri tækni og eigna Landspítal-
ans, telur að tillit hafi verið tekið
til flestra athugasemda sem fram
hafa komið. Hann segir ánægju
með fyrirkomulagið vera ríkjandi.
„Það kemur mér á óvart ef óánægju-
raddir heyrast enn og ég hef ekki
orðið var við annað en ánægju-
raddir. Á stórum vinnustað er sjálf-
sagt hægt að finna einhverja sem
eru óánægðir en brugðist hefur
verið við þeim athugasemdum sem
fram komu, bæði innan og utan spít-
alans,“ segir Ingólfur.
Ég hef ekkl orðið
var við annað en
ánægjuraddir
Ingólfur Þórisson,
framkvæmdastjóri tækni
og eigna Landspitalans
„Innan spítalans voru menn að-
allega ósáttir við vegalengdir milli
eininga og að bráðamóttaka yrði
stækkuð nærkvenna- ogbarnadeild.
Utan spítalans voru íbúar í nágrenni
með athugasemdir og við höfum
gert breytingar vegna þeirra."
Takmörkuð samstaða
Aðspurður segir Stefán að ákvarð-
anir séu teknar í þröngum hópi
stjórnenda og um þær sé takmörkuð
samstaða innan læknastéttarinnar.
„Þetta er orðið mjög áhugavert að
fylgjast með framvindunni með nýja
hátæknisjúkrahúsið og algjörlega fyr-
irséð hvernig ferlið yrði. Hér er um
að ræða hagsmunaákvarðanir fárra
aðila í hópi stjórnenda og mjög tak-
mörkuð samstaða meðal lækna um
þetta fyrirkomulag," segir Stefán.
„Það er hreinlega öllu troðið niður
á sama blettinn og staðsetningin
býður upp á vandræði. Það eru allir
sammála um að bæta þurfi aðstöð-
una á spítölunum en menn efast
sumir um að þetta sé rétta leiðin.“
Bresk könnun:
íslendingar ekki fordómafullir
íslendingar mældust næstfor-
dómalausastir Vesturlandabúa
samkvæmt nýrri rannsókn vísinda-
manna við Háskólann í Ulster á
Norður-írlandi. Rannsóknin bendir
til þess að Norður-frar séu fordóma-
fyllstir og séu með mesta fordóma i
garð samkynhneigðra, innflytjenda
og erlendra verkamanna.
Rannsóknin náði til 32 þúsund
manna í nítján Evrópuríkjum auk
Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu
og Nýja-Sjálands. Spurt var hvernig
fólki hugnaðist að vera með samkyn-
hneigða, múslíma, gyðinga, innflytj-
endur, erlent verkafólk eða fólk af
öðrum kynþætti sem nágranna.
Niðurstöðurnar sýndu að hlut-
fall Svía væri lægst, en einungis
þrettán prósent þeirra sögðust
ísUndingar ekki fordómafullir Ein-
ungis átján prósent vildu ekki fólk úr
hópunum sem nágranna sinn.
ekki vilja fólk úr að minnsta kosti
einum þessara hópa sem nágranna.
íslendingar mældust með næst-
lægsta hlutfallið, eða átján prósent.
Norður-írar mældust hins vegar
með hæsta hlutfallið, eða 44 pró-
sent, en Grikkir fylgdu fast á hæla
þeirra með 43 prósent.