blaðið - 13.02.2007, Qupperneq 26
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRUAR 2007
42000 06200
Strikamerki hins illa
Einhverjir samsæriskenningasmiðir halda því fram að strikamerki á vörum
séu sett á í þeim tilgangi að stjórna fólki og að úr þeim megi lesa töluna 666
sem er sögð vera tala hins illa. Þetta kemur meðal annars fram í bókinni The
New Money System 666 eftir Mary Stewart Relfe fyrir þá sem hafa áhuga.
blaöið
Matarboð
með Kastljósinu
„Helgin var frekar róleg,“ segir
Ragnhildur Steinunn sjónvarps-
kona. „Fyrir utan það að ég fór
í matarboð á laugardaginn þar
sem við hittumst allt Kastljósið
með mökum okkar. Pað var frá-
bært.“ Hún segir vinnuandann í
Kastljósinu mjög notalegan.
„Við fáum ekki nóg hvert af öðru
að hanga saman alla vikuna
heldur verðum við líka að hittast
um helgina með mökum okkar
til að fullnægja þörfinni," segir
Ragnhildur og hlær. „Svo er nátt-
úrlega stóra Eurovisionkvöldið
um næstu helgi þannig að maður
notar helgarnar í að undirbúa
það.“
Helgi ársins
„Þetta var helgi ársins hingað
til,“ segir Magnús Öder tónlistar-
maður. Magnús eyddi helginni
í Noregi þar sem hann spilaði
undir hjá tónlistarkonunni Lay
Low á tónlistarhátíðinni By:Larm,
sem er svipuð Airwaves-hátíðinni
íslensku.
„Helgin var í heildina alveg geð-
veik, en það var samt mjög kalt,
örugglega -20 gráður og 90 pró-
sent raki,“ heldur Magnús áfram.
Hann segir Norsarana hafa tekið
mjög vel í tónlist Lay Low. „Það
gekk mjög vel að spila og allir
voru sáttir. Norsurunum finnst
Lay Low æðisleg vegna þess að
hún er algjört æði.“
»Vegvísir að heimili mínu ,
Staðhættir Frá miðbænum labbar þú framhjá
Ingólfstorgi, upp Grjótaþorpið þangað til að þú kemur að
stóru, fallegu gráu steinhúsi. Þar finnur þú litlu höllina.
Hvenær er hentugast að ferðast Hvenær
sem er nema það er lokað á sunnudögum.
tnniltrnb
Matur og menning Túnfisks-brokkolí-speltp-
asta, grænmetispíta, sushi, ýmsir kjúklingaréttir og
stundum er pöntuð pitsa frá Eldsmiðjunni.
Siðir og venjur Vaknað er klukkan 8 eða hálfníu,
borðaður morgunmatur og hlustað á Rás 1, farið í vinnu
eða ýmisleg verkefni. Síðan er kannski farið í sund og
verslað í Pétursbúð á leiðinni heim. Um helgar koma
stundum gestir í heimsókn og gera Ijóð á ísskápinn.
Heilsa Það er ekkert að óttast því að nóg er til af
flensulyfjum og heilsu-maga-fjölvítamínsmixtúrum
Dýralíf Hér búa nokkur dýr; pappakötturinn og
batterís-svínið en einnig fundum við bambino-frosk inni
í baðherbergisveggnum þegar við fluttum inn. Svo kíkir
hún Diljá nágrannaköttur stundum í heimsókn.
Vert að sjá Iþróttaskósafnið í geymslunni og bláa eldhúsið.
Samfélag og menning Hér í kring er mikið
fjölmenningarsamfélag; bahá’íar, Rússar, Kanadamenn,
kaþólikkar, Kínverjar og auglýsingastofufólk. Heimilið
býður einnig upp á fjölbreytta menningu, þá helst i sam-
bandi við tónlist og heimsmálin.
Hættur Það getur verið mjög hættulegt að festast í
sófanum því að hann er ómótstæðilegur.
Plotusnúöurinn Gísli galdur býður lesendum Blaðsins heim
að þessu sinni en Gísli spilar meðal annars með Trabant
og Ghostigital og er á leiðinni I stúdíó með þeim fyrrnefndu
sem ætti að gleðja aðdáendur sveitarinnar. Eins hefur Gisli
verið að vinna með Sigtryggi Baldurssyni trommara en þeir
munu spila á opnunarkvöldi Vetrarhátiðar ásamt Frakka
með eldorgel sem hljómar mjög spennandi.
Ævintýri undraúlfsins Ammy
Okami fjallar um ævintýri úlfs-
ins Amaterasu sem er í raun og veru
ekki úlfur heldur guð sem hefur
nú endurholdgast eftir að hafa ver-
ið dauður í íoo ár. Amaterasu, eða
Ammy eins og hann er kallaður,
hleypur um töfralandið Nippon þar
sem hann berst með kjafti, klóm
og vopnum við djöfulinn Orochi
og skrímslin hans. Ammy hefur
líka einn undarlegan hæfileika en
það er að geta málað með skottinu
sínu. Með skottinu getur hann með-
al annars barist við skrímsli, búið
til sprengjur, lífgað við tré og gróð-
ursett blóm. Sem sagt, algjör undra-
úlfur.
Að segja að Okami sé furðulegur
leikur er vægt til orða tekið. Ammy
notar hæfileika sína til að lífga við
Nippon, hvort sem það felst í því
Okami
Playstation 2
Gullfalleg grafík
Áhugaveröur
leikur
Langdregin
,cut-scene”
að láta tré laufgast, útrýma illsku
eða gefa kanínum að borða. Ok-
ami skartar einni þeirri fallegustu
grafík sem sést hefur í tölvuleik
því leikurinn er byggður upp eins
og blanda af japönsku málverki og
teiknimyndabók. Myndirnar flæða
áherslulaust um skjáinn og það eru
bara hörðustu naglar sem láta ekki
heillast af útliti leiksins.
Einstakt er að spila leikinn og
eins furðulegt og það hljómar þá
er furðugaman að mála með skott-
inu hans Ammy. Söguþráðurinn í
leiknum er áhugaverður en eins og
Japönum einum er lagið geta mynd-
brotin á milli borða verið langdreg-
in og engin leið til að sleppa þeim.
Okami mun heilla marga leikja-
aðdáendur upp úr skónum með
sinni fallegu grafík og einstökum
og áhugaverðum leik. Leikurinn
er kannski ekki sá karlmannleg-
asti á markaðnum en þeim sem
finnst að karlmennsku sinni vegið
geta þá bara farið eftir leikinn og
gert karlmannlega hluti eins og að
skipta um olíu á bílnum eða bora
gat í vegg.