blaðið - 27.02.2007, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007
bla6iö
SÁDÍ ARABÍA
UTAN ÚR HEIMI
Þrír Frakkar skotnir til bana
Þrír franskir ríkisborgarar voru skotnir til bana í Sádi-Ar-
abíu í gær. Byssumenn réöust á hóp manna í bænum
Madain Saleh í norðvesturhluta landsins, en sádiarabísk
sjónvarpsstöð segir að margir í hópnum hafi verið píla-
grímar á leið til Mekka.
ÍRAN
Rætt um refsiaðgerðir
Fulltrúar sex ríkja funduðu í Lundúnum í Bretlandi i
gær um aðgerðir gegn írönum vegna tregðu þeirra til
að hætta auðgun úrans og þróun kjarnorku. Frestur (r-
ana til að láta af þróun kjarnorku rann út í síðustu viku
og ætlar (ransforseti ekki að breyta áætluninni.
bbH
1.400 manna liðsauki til Afganistans
Des Browne, varnarmálaráðherra Bretlands, tilkynnti
breskum þingheimi í gær að 1.400 breskir hermenn verði
sendir til Afganistans, til viðbótar við þá 6.300 sem fyrir
eru. Yfirmenn hersveita Atlantshafsbandalagsins í Afgan-
istan höfðu sagt nauðsyn að stöðva sókn talibana í landinu.
Ertu að fá kvef?
Zhena's Gypsy Tea
gæti hjálpaö
Lemon Jasmine,
grænt te með
lemon myrtle
TILBOÐ
20% afsiáttur
«'v—f> hjá næsta söluaðila
Englatár - www.englatar.is - 551 8686
Heldur liöunum
liðugum!
^0AN/0S
heilsa
haföu það gott
Gvatemala:
Morðingjar
drepnir
Fjórir gvatemalskir lögreglu-
menn, sem grunaðir eru um að
hafa myrt þrjá stjórnmálamenn
frá E1 Salvador, voru skotnir
til bana í fangelsi í Boqueron,
austur af Gvatemalaborg, í gær.
Mennirnir fjórir voru myrtir
eftir að vopnaðir menn ruddust
inn í fangelsið í leit að mönnun-
um. Lögreglumennirnir íjórir
voru handteknir í síðustu viku
eftir að lík stjórnmálamann-
anna þriggja auk bílstjóra
þeirra fundust í bíl nærri
Gvatemalaborg.
Náðu kjörþyngd
- kíktu inn á metasys.is
metasys.is
Hollustu
Ávaxtabíllinn keyrir
til heimila síðdegis
á fimmtudögum
msendingar
heimi?
www.avaxtabillinn.is
Uppsagnir fangavarða:
Ekki rætt við
fangaverðina
■ Fangaverðir leita að annarri vinnu ■ Ósannað að þeir hafi sagt upp í hópum
■ Gætu þurft að vinna út sex mánaða uppsagnarfrest
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
„Það er sama staða og fyrir nokkrum
vikum siðan. Við fangaverðir erum
bara búnir að segja upp. Við höfum
ekkert heyrt og engar viðræður hafa
farið fram,“ segir Sigurjón Birgisson,
formaður Félags fangavarða. Sam-
kvæmt Árna Stefáni, formanni SFR,
þurfa engar viðræður að fara fram
þar sem þeir sögðu upp.
Um 85 prósent starfandi fanga-
varða hafa sagt upp en margt af því af-
leysingafólki sem er á mánaðarsamn-
ingum skrifaði undir yfirlýsingu
þess efnis að ef fangaverðir gengju
út myndu þau einnig hætta. „Menn
eru bara róíegir yfir þessu,“
segir Sigurjón.
„Fólk er að leita sér að vinnu og ég
held að það gangi bara mjög vel hjá
flestum. Ég held að flestir geti fari í
eitthvað annað.“
Hægt er að framlengja uppsagnar-
frest fangavarða um þrjá mánuði tak-
ist að sanna að um hópuppsagnir hafi
verið að ræða, samkvæmt Árna Stef-
áni Jónssyni, formanni stéttarfélags-
ins SFR. Uppsagnir fangavarðanna
taka gildi 30. apríl næstkomandi.
Árni Stefán segir að í lögum um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna frá 1986 sé ákvæði þess efnis
að hægt sé að lengja uppsagnarfrest
ef um hópuppsagnir er að ræða.
„Fangaverðir sögðu upp
einstaklingar og þeir halda því
fram að ekki hafi verið um
hópuppsagnir að ræða
heldur hafi þeir einfald-
lega verið að gefast
sem
segirÁrni Stefán. „Svo að éghefengar
aðrar forsendur en þær að þetta hafi
ekki verið hópuppsagnir. Hins vegar
hefur það verið dregið í efa.“
Samkvæmt Árna Stefáni er það
í höndum stjórnvalda að sýna það
og sanna að um hópuppsagnir sé að
ræða. „Ef ríkið segir að svo sé þá er
það þannig. Þá þarf stéttarfélagið
eða viðkomandi hópur að afsanna
það og hann getur væntanlega farið
í mál út af því til að fá úr því skorið
hvort þetta sé á rökum reist.“
Samkvæmt Valtý Sigurðssyni,
forstjóra Fangelsismálastofnunar
ríkisins, þarf að vera búið að taka
ákvörðun um hvort nýta eigi sér
ákvæðið fyrir miðjan mars næst-
komandi. „Þaðhefurekkertverið
íjallað um þetta innan stofnun-
arinnar eða á milli ráðuneytis
og stofnunar. Við verðum bara
að skoða málin náttúrlega og
velta því fyrir okkur. Ég býst
við því að ráðuney tið sé að gera
það líka.“
IIIIIII
Um 85 prosent starfandi
fangavarða hafa sagt
upp Fangaveröir gætu "
þurft að vinna þremur
mánuðum lengur.
Dýr viðgerð Heildarkostnaður
vegna viðgerðar á fyrsta forseta-
bíl lýöveldisins er kominn langt
fram úráætlun. Mynd/ÁrniSæberg \
Viðgerð á forsetabílnum:
Kostar 26
„Við munumstanda við okkar orð
og bíllinn verður settur á uppboð í
lok vikunnar. Ég er ekki sáttur við
móttilboðið sem borist hefur enda
var ég búinn að slaka heilmikið
til. Reikningurinn frá mér stendur
og mér finnst að þeir eigi að klára
málið,“ segir Sævar Pétursson
bifvélavirki.
Fyrsti forsetabíll lýðveldisins
stendur enn inni á gólfi hjá Bílrétt-
inga- og sprautuverkstæði Sævars
sem sá um að koma bílnum í upp-
runalegt form. Reikningur Sævars
er upp á sextán milljónir en mót-
tilboðið hljóðar upp á tæpar tólf
milljónir.
Baldvin Hafsteinsson, lög-
milljónir
maður Bílgreinasambandsins,
segir verkið komið langt fram úr
heimildum þar sem heildarkostn-
aðurinn sé orðinn tuttugu og sex
milljónir. „Ég er búinn að bjóða
allt sem ég hef á milli handanna.
Að mínu mati ættu hinir tveir að-
ilarnir að teygja sig aðeins lengra
og það sama á við um Sævar,“ segir
Baldvin.
„Lagt var af stað með að kostn-
aðurinn yrði ekki meiri en tíu
milljónir og Sævar var með það
á hreinu. Miðað við hversu hár
kostnaðurinn er orðinn þá er eðli-
legt að menn takist á um þetta en
við vonumst til þess að ekki þurfi
að koma til uppboðs.“
Vogaperri:
Rannsókn
enn í gangi
Karlmaður á þrítugsaldri situr
í gæsluvarðhaldi til 26. mars
grunaður um kynferðislega
áreitni gegn ungum stúlkum
í Vogahverfi. Sjö stúlkur hafa
komið fram og er maðurinn
grunaður um að hafa gengið
lengst fram gegn tveimur fimm
ára stúlkum. Beðið er eftir niður-
stöðum úr rannsókn á DNA-
sýnum sem tekin voru og það er
svo ríkissaksóknara að ákveða
næstu skref.
„Viðkomandi er grunaður
um að hafa snert stúlkurnar á
óviðeigandi hátt. Rannsóknin
er enn í fullum gangi og málið
verður svo sent til ríkissaksókn-
ara,“ segir Björgvin Björgvins-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn
höfuðborgarlögreglunnar.