blaðið - 27.02.2007, Qupperneq 19
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 2007
menning@bladid.net
Ein sýning eftir af Isntericu
Paris Hilton og Tyra Banks kynna fyrir okkur (smericu í samnefndu
leikverki The Happy Theater. Einungis ein sýning er eftir og verður
hún næstkomandi fimmtudag, 1. mars. Mæting er í Kramhúsinu við
Bergstaðastræti klukkan 20.30 og miðasala er í síma 551-0343.
Incubus í höllinni
Bandaríska rokkhljómsveitin leikur í Laugar-
dalshöll næstkomandi laugardagskvöld, þann 3.
mars, en sveitin þykir með bestu tónleikasveit-
um Bandaríkjanna. Mínus sér um upphitun.
Rokkópera í fyrrum
félagsmiðstöð
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Leikfélag Hveragerðis fagnar urn
þessar mundir 6o ára starfsafmæli
sínu og af því tilefni frumsýndi fé-
lagið rokkóperuna Jesus Christ Sup-
erstar um helgina við mjög góðar
undirtektir sýningargesta.
„Leikfélagið var stofnað þann 28.
febrúar 1947 og hefur verið mjög öfl-
ugt allar götur síðan,“ segir María
Kristjánsdóttir, formaðurleikfélags-
ins. „Árlega eru sett upp eitt eða tvö
leikrit og að þessu sinni koma um
30 manns að sýningunni með ein-
um eða öðrum hætti.“
Leikstjórar verksins eru Jón
Ingi Hákonarson og Laufey Brá
Jónsdóttir og með aðalhlutverk
fara Hafsteinn Þór Auðunsson
sem leikur Jesú, Þorgils Óttar Vil-
berg Baldursson sem leikur Júdas
og Halldóra Rut Bjarnadóttir sem
leikur Maríu Magdalenu. „Þar
sem þetta er áhugaleikfélag eru
allir leikararnir áhugaleikarar,“
útskýrir María. „Nokkrir af ungu
leikurunum hafa verið að tala um
það síðustu árin að setja upp Jesus
Christ Superstar en við höfum allt-
af slegið þá hugmynd út af borð-
inu vegna þess að við töldum það
of íburðarmikið leikverk fyrir okk-
ur. Við eigum lítið húsnæði sem
kallast Völundur og er við Austur-
mörk 23, en þar var áður félagsmið-
stöð. Margir telja þetta húsnæði
ómögulegt fyrir uppsetningu á
rokkóperu en þótt ótrúlegt sé hef-
ur okkur tekist þetta. Til dæmis
hefur Björn, ljósamaðurinn okkar,
gert kraftaverk í lýsingum í saln-
um og svo hafa leikstjórarnir nátt-
úrlega skilað sínu hlutverki með
mikilli prýði.“
Aðspurð segist hún ekki vita ná-
kvæmlega hversu lengi verkið verði
sýnt, það fari eftir áhuga og viðtök-
um fólks. Miðað við viðtökurnar
á frumsýningunni sé hún vongóð
um áframhaldið.
Menningarlíf í Hveragerði er að
sögn Maríu afar blómlegt. „Fyrir
utan leikfélagið eru hér söngsveit
og kirkjukór svo dæmi sé tekið auk
þess sem mikið af öflugu, ungu tón-
listarfólki úr bænurn hefur vakið
mikla athygli fyrir klassískan flutn-
ing. Ég myndi líka segja að Hvera-
gerðisbær og fyrirtækin í bænum
séu til fyrirmyndar hvað varðar
stuðning við menningaruppákom-
ur á borð við þessa uppfærslu okkar
á rokkóperunni Jesus Christ Sup-
erstar. Án þeirra hjálpar hefði þessi
sýning aldrei orðið að veruleika,“
segir hún að lokum.
Örleikrit ungs
fólks
Febrúar er mánuður unga fólks-
ins hjá Borgarleikhúsinu og af því
tilefni er efnt til örleikritunarsam-
keppni fyrir ungt fólk. Skorað er
á fólk undir 25 ára aldri og náms-
menn að prófa að nota leikhúsið
sem vettvang til að tjá skoðanir,
tilfinningar og/eða hugsanir sínar.
Skiladagur verkanna er 7. mars
milli klukkan 13 og 17 og verður
höfundum boðið upp á kaffi, djús
og með því í forsal leikhússins
þar sem tekið verður á móti hug-
myndum, og hyggst dómnefnd
sitja við lestur allan daginn, þar
sem valið verður úr verkunum
samdægurs.
Verkin mega ekki vera lengri en
5000 slög og þeim skal skilað
í fjórum eintökum merktum höf-
undi, aldri, skóla, heimilisfangi
og síma.
Ellert á skálda-
spírukvöldi
Ellert B. Schram hyggst lesa upp
úr nýjustu bók sinni „Á undan
minni samtíð“ á sjötugasta og
níunda skáldaspírukvöldinu á
þriðju hæð í Pennanum við Aust-
urstræti í kvöld. Eftir að höfundur
hefur lesið upp úr bókinni gefst
gestum kostur á að spjalla við
hann um lífshlaup hans og þær
blikur sem eru á lofti í íslenskum
stjórnmálum nú um stundir.
Aðgangur er ókeypis og hægt
verður að fylgjast með lestrinum
og spjallinu og gæða sér um leið
á veitingum.
Bjarni töframaður er einn grin-
aranna sem hyggjast troða upp
á undanúrslitakvöldi keppninnar
Fyndnasti maður íslands 2007.
Sá fyndnasti snýr aftur
Keppnin Fyndnasti maður ís-
lands verður haldin aftur í ár en
hún hefur ekki verið haldin frá
árinu 2003 og hafa húmoristar því
þurft að bíða lengi eftir þessu tæki-
færi. Undanúrslitakvöldin verða
haldin næstu fjögur fimmtudags-
kvöld og munu 4 keppendur koma
fram í hvert skipti ásamt lands-
þekktum grínistum og fyndnum
trúbadorum.
Radíusbræður verða kynnar og
meðal uppistandara sem koma
fram eru Bjarni töframaður, Auð-
unn Blöndal, Úlfar Linnet, Sveinn
Waage, Eyvindur Karlsson og
Birgir Búason. Miðasala er hafin
á midi.is og er miðaverðið 1000
krónur í forsölu en 1500 krónur
við dyrnar.
Fjölmargir hafa skráð sig til
keppni um titilinn fyndnasti mað-
ur fslands 2007 og mætt í áheyrn-
arprufur. Búið er að velja 16 efni-
lega grínara sem keppa í fjórum
undanúrslitakeppnum og stefnir í
hörkuspennandi keppni.
FJORAR
STJÖRNUR
AF FIMM.
ELfSABET BREKKAN/DV
MIÐ 28.FEB OG SUN 18.MARS
borgarleikhus.is Sími miftasolu 568 8000 BO RG ARLE I KHIJSIÐ
l