blaðið - 27.02.2007, Qupperneq 20
28
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRUAR 2007
blaðið
Blindir og menntun
Blindrafélagið heldur fund undir yfirskriftinni „Þurfa blindir
menntun? Aðgengi blindra og sjónskertra að námi" á Grand Hóteli í
dag kl. 17-18:30. Breski sérfræðingurinn John Harris kynnir skýrslu
um skólamál blindra og sjónskertra á íslandi og leiðir til úrbóta.
Háskólakynningar
Flestir háskólar landsins eru byrjaðir að taka við umsóknum um
skólavist veturinn 2007-2008. Þann 1. mars verða skólarnir með
kynningu á námsframboði í Menntaskólanum á (safirði og Háskóla-
setrinu en sams konar kynning fór fram í Reykjavík fyrr í mánuðinum.
Jónas og Megas
Þórður Helgason og Guðmundur
Sæmundsson flytja tvo fyrirlestra
um Jónas Hallgrímsson í Bratta,
fyrirlestrasal Kennaraháskóla
íslands, á morgun kl. 16-17. Þórður
mun fjalla um Vísur (slendinga eftir
Jónas, bragarhátt kvæðisins, upp-
runa hans og einkenni. Þar að auki
mun hann rekja sögu háttarins og
þróun fram á 20. öld.
Guðmundurfjallar um Megas og
Jónas og ber saman skáldin tvö,
málstefnu þeirra og viðhorf almenn-
ings til þeirra í gegnum tíðina.
Fyrirlestrarnir eru hluti af röð
fyrirlestra sem haldnir hafa verið
á hverjum miðvikudagi í febrúar í
tilefni af því að á þessu ári verða
200 ár liðin frá fæðingu Jónasar
Hallgrímssonar.
Fyrri fyrirlestra má sjá og heyra á
vefslóðinni http://sjonvarp.khi.is.
íslenskuverðlaun
reykvískra barna
Menntaráð Reykjavíkurborgar efnir
til íslenskuverðlauna fyrir reykvísk
skólabörn sem úthlutað verður
árlega á degi íslenskrar tungu þann
16. nóvember. Verndari verðlaun-
anna er frú Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti íslands. Mark-
mið verðlaunanna er að auka
áhuga æskufólks á íslenskri tungu
og hvetja það til framfara í tjáningu
talaðs máls og ritaðs.
Verðlaunin verða veitt nemendum
sem hafa tekið framförum eða náð
góðum árangri í íslensku hvort
heldur þeir hafa hana að móður-
máli eða læra hana sem annað
tungumál.
Hver grunnskóli í borginni getur til-
nefnt þrjá nemendur eða nemenda-
hóp til verðlaunanna og fá allir sem
tilnefningu hljóta verðlaunagrip.
Skólar geta til dæmis útnefnt þá
sem sýnt hafa færni, frumleika eða
sköþunargleði í að nota tungumálið
sem samskiptatæki í hagnýtum
eða listrænum tilgangi.
Starfsgleði
kennara
Anna Þóra Baldursdóttir, lektor við
Háskólann á Akureyri, og Valgerður
Matthíasdóttir sálfræðingur fjalla um
líðan kennara í starfi í erindi sem flutt
verður á fræðslufundi skólaþróunar-
sviðs Háskólans á Akureyri í dag.
Þær munu greina frá niðurstöðum
rannsóknar sem þær gerðu meðal
grunnskólakennara fyrir tæpum
tveimur árum. Tilgangurinn var
að leita að þeim þáttum sem eru
líklegir til að viðhalda vinnugleði hjá
kennurum og koma í veg fyrir að þeir
kulni í starfi.
Skoðaðir voru ýmsir þættir í starfi
þeirra svo sem vinnuálag, samstarf,
hvatning og vinnutími.
Erindið „Líðan kennara í starfi
- Hvað skiptir máli?“ verður flutt í
stofu 16 í Þingvallastræti 23 í dag
kl. 16:30.
Námskeið um vísindi fyrir fjölskylduna njóta vinsælda
Vísindi fyrir börn og fullorðna
ikill áhugi hefur ver-
ið á námskeiðaröð-
inni „Vísindi fyrir
fjölskyldur“ sem End-
urmenntun Háskóla
Islands, Vísindavefurinn og Orkuveit-
an hafa staðið fyrir að undanförnu.
Ragna Haraldsdóttir, verkefnastjóri
námskeiðanna, segir að viðtökurn-
ar hafi verið framar björtustu von-
um, yfir hundrað manns hafi mætt
í hvert skipti og stundum hafi þurft
að hafa aukanámskeið. Þannig var
til dæmis námskeiðið Undur stjörnu-
fræði og alheimsins haldið þrisvar
sinnum og námskeið um risaeðlur
og jarðfræði íslands haldin tvisvar
sinnum hvort.
Námskeiðin eru sniðin að börn-
um en foreldrar hafa jafnframt verið
hvattir til að sækja námskeiðið með
börnum sínum.
„Það er ekki mikið framboð af
námskeiðum sem börn og fullorðnir
geta farið saman á. Þetta er ákveðin
nýjung og við finnum það á áhugan-
um á þessum námskeiðum að þetta
er eitthvað sem hefur vantað," segir
Ragna og bætir við að auk foreldra
séu afar og ömmur einnig dugleg að
sækja námskeiðin ásamt barnabörn-
unum.
Ekki þurr fyrirlestur
Áhersla er lögð á að námskeiðin séu
lifandi og skemmtileg en efnið má
heldur ekki vera of barnalegt að sögn
Rögnu.
„Það á ekki að vera svo einfalt að
börnunum leiðist. Þarf að vera ein-
hver smááskorun í þessu en það má
heldur ekki vera of flókið. Þau þurfa
að ná þessu en það fer eftir því
hvað þau hafa mikinn áhuga
og reynslu af efninu hvað þau
skilja mikið,“ segir hún.
„Fyrirlesararnir nota mikið
myndir og reyna að gera þetta
líflegt þannig að þetta sé ekki
bara þurr fyrirlestur,“ segir
hún.
Læra af
reynslunni
Þetta er í annað
sinn sem Endur-
menntun Háskól-
ans stendur fyrir
námskeiðaröð sem þessari og hefur
þegar verið ákveðið að halda aðra
slika að ári í ljósi vinsældanna. Ekki
er heldur útilokað að boðið verði upp
á einhver námskeið í millitíðinni þó
að ekkert hafi verið ákveðið í þeim
efnum. Fram að þessu hefur Endur-
menntun Háskóla íslands lagt megin-
áherslu á sí- og endurmenntunarnám-
skeið á háskólastigi og námskeið fyrir
almenning þannig að segja má að hún
sé að feta inn á nýjar slóðir með þess-
um námskeiðum. Ragna segir
að þetta hafi verið mjög
skemmtilegt og að menn
séu að læra af reynslunni.
Á þessum námskeið-
um létum við ganga
matsblöð þar sem fólk
gat komið með athuga-
semdir um námskeiðið
og hugmyndir að nýj-
um námskeiðum
þannig að við
erum að reyna
að hlera hvar
áhuginn ligg-
ur og hvað
við ættum
að bjóða upp á sniðugt næst. Það er
náttúrlega tilgangurinn með þessu
að bjóða upp á eitthvað sem höfðar
til krakkanna þannig að þeir fái nú
sem mest út úr þessu,“ segir Ragna.
Eðlisfræði íþrótta
Að þessu sinni var boðið upp á
fimm námskeið í röðinni „Vísindi
fyrir fjölskyldur" og er fjórum
þegar lokið. Síðasta námskeiðið
ber yfirskriftina Eðlisfræði íþrótt-
anna og verður haldið í ráðstefnu-
sal Orkuveitunnar að Bæjarhálsi
í laugardaginn 3. mars milli kl.
14 og 16. Þar mun Þorsteinn Vil-
hjálmsson, prófessor í vísindasögu
við Háskóla íslands og ritstjóri
Vísindavefsins, leita svara við ýms-
um spurningum sem tengjast eðl-
isfræði íþrótta svo sem hvernig
kúluvarpari láti kúluna fara sem
lengst, hvernig hægt sé að ná holu í
höggi og hvernig Beckham fái bolt-
ann til að beygja þegar hann tekur
aukaspyrnu. Hægt er að skrá sig og
nálgast frekari upplýsingar á vef
Endurmenntunar Háskóla Islands
endurmenntun.is.
Varðliðar umhverfisins
Umhverfisráðuneytið, Landvernd
og Náttúruskóli Reykjavíkur hafa boð-
að til verðlaunasamkeppni undir yf-
irskriftinni „Varðliðar umhverfisins"
meðal nemenda í 5. til 10. bekk. Henni
er ætlað að hvetja ungt fólk til góðra
verka í umhverfisvernd og vekja at-
hygli á sýn þess á umhverfismál.
Þátttakendum er frjálst að skila
inn verkefnum í hvaða formi sem er
svo lengi sem umfjöllunarefni þeirra
eru umhverfismál í víðum skilningi
þess orðs. Verkefnin geta verið af
ýmsum toga svo sem ritgerðir, ljós-
myndir, ljóð, veggspjöld, bæklingur,
myndband, hljóðverk og svo framveg-
is. Umfjöllunarefnið getur til dæmis
verið loftslagsbreytingar, röskun eða
verndun búsvæða, jarðvegseyðing,
orkumál, vatnsvernd, verndun nátt-
úruauðlinda, förgun, endurvinnsla og
endurnýting úrgangs, sjón-, efna- eða
hávaðamengun. Verkefnin þurfa ekki
að vera unnin sérstaklega fyrir keppn-
ina heldur vonast aðstandendur henn-
ar til að hún geti gefið nemendum
og kennurum tækifæri til að koma á
framfæri verkefnum sem þegar hafa
verið unnin í skólanum. Stefnt er að
því að keppnin verði árviss viðburður.
Skilafrestur verkefna er til 20. mars
og skal þeim skilað til umhverfisráðu-
neytisins, Skuggasundi 1,150 Reykja-
vík merkt: „Varðliðar umhverfisins".
Dómnefnd velur bestu verkefnin
fyrir 5. apríl.
Mynd/ími Sæberg
Ahersla a umhverfisvernd
Verölaunaskamkeppninni „ Varð
liðar umhverfisins" er meðai
annars ætlað að hvetja ungt
fólk til dáða í umhverfisvernd.