blaðið

Ulloq

blaðið - 16.03.2007, Qupperneq 1

blaðið - 16.03.2007, Qupperneq 1
53. tölublaö 3. árgangur föstudagur 16. mars 2007 ■ FÓLK Kolbrún Bjömsdóttir fór frá Skjá einum yfir á Stöð 2, síðan á RÚV en nú liggur leiðin í morgunþátt Bylgjunnar |síðai6 FRJÁLST, ÓHÁÐ & ■ MATUR Valgerður Matthiasdóttir sjónvarps kona segist vera ágætis kokkur og hefur gaman af því að elda í góðum félagsskap | sIða22 Árni Finnsson um fimm mánaða tafir á gerð aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar: Landsvirkjun borgar ■ Alcoa ætlar að byrja á réttum tíma ■ Samningsstaða Landsvirkjunar sögð veik Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Þrátt fyrir að gerð aðrennslisganga Kárahnjúka- virkjunar sé fimm mánuðum á eftir áætlun og enn ekki útséð hvenær verkinu lýkur ætla forsvars- menn Alcoa Fjarðaáls að gangsetja fyrsta áfanga álversins á Reyðarfirði í byrjun apríl. Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, ítrekar að Landsvirkjun sé skuldbundin til að útvega rafmagn fyrir þann áfanga. Aðspurð segir Erna þó ekki hjá því komist að velta fyrir sér því fjárhagslega tjóni sem kunni að verða bregðist forsendur samningsins. Hún vill ekki gefa upp hversu háar bætur eru tilgreindar í samkomulagi milli fyrirtækjanna. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Lands- virkjunar, segir að byggðalínur ættu að geta út- vegað álverinu rafmagn en þó ekki nægilega mikið til að keyra álver Alcoa á Reyðarfirði samkvæmt áætlun. „Ef göngin tefjast lengur munum við tapa sölu á raforku og þeir sölu á áli,“ segir Þorsteinn. „Það eru miklar tekjur í húfi hjá báðum aðilum, þetta eru stórar upphæðir hjá okkur sem geta hlaupið á hundruðum milljóna á öfráum vikum.“ Ómar Ragnarsson fréttamaður segir samnings- stöðu Landsvirkjunar er lúti að skaðabótum afleita. Samningurinn sé of götóttur. Undir það tekur Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka íslands. „Impregilo getur borið því við að jarðfræði- rannsóknum hafi verið áfátt,“ segir hann. „Lands- virkjun fær reikninginn, það er bara spurning hvað hann verður hár.“ Þorsteinn útilokar að verið sé að hugsa um dag- sektir vegna tafanna enda sé ekki gert ráð fyrir slíku í samningum. Hann telur ólíklegt að nokkur málsaðili stefni á bótakröfur. Sjá einnig síðu 4 Fámennt í þingsal Senn líður að þinglokum á Alþingi og bíða tugir mála afgreiðslu. Auðlindaákvæðið setti svip sinn á þingfund í gær. Meira var skrafað á göngum Alþingis heldur en í þingsal og gáfu fáir þingmenn sér tíma til að hlýða á Rannveigu Guðmundsdóttur. Vorþingi átti samkvæmt áætlun aö Ijúka í gær en nú er Ijóst að þing mun starfa fram á helgi. » síða 30 Nýtur lífsins í íran Hanna Björk Valsdóttir er búsett í fran þar sem hún vinnur fyrir íranskan leikstjóra og nýtur lífsins á tehúsum umkringd mörkuðum, litríku mannlífi og menningu. VEÐUR » síða 2 Áfram él Vestlæg átt syðra og áfram él, einkum suð- vestantil. Hiti 0 til 5 stig, en um frostmark norðantil. VIÐTAL síður24 Fjölhæfur leikarasonur Ragnar Kjartansson, mynd- listar- og tónlistarmaður, segist hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá leikhúsi á uppvaxt- arárum sínum sem kemur fram í list hans í dag. OUarcð Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16 Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504 Egilsstaðir: sinii: 471 2954

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.