blaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007
blaAiA
UTAN ÚR HEIMI
Utgjöld vegna Ólympíuleika þrefaldast
Tessa Jowell, menningarmálaráðherra Breta, hefur
sagt að fjárhagsáætlun vegna Ólympíuleikanna í
Lundúnum árið 2012 hafi þrefaldast og hljóðar nú upp
á rúma níu milljarða breskra punda. [haldsmenn segja
Jowell hafa misst öll tök á kostnaðinum.
Smyglhringur upprættur
Lögregla í Rússlandi, Úsbekistan, (talíu og
Finnlandi hefur upprætt glæpahring sem hefur
smyglað fólki frá suöausturhluta Asíu til Evrópu
um Rússland. Glæpahringurinn hafði starfs-
stöðvar í átta borgum í Rússlandi.
Móðir Natöschu sökuð um aðild
Martin Wabl, fyrrverandi dómari og forsetaframbjóðandi, hefur
sakað Brigitte Sirny, móður austurrísku stúlkunnar Natöschu
Kampusch, um að hafa átt aðild að hvarfi hennar. Kampusch
slapp úr haldi mannræningja síðasta haust eftir átta ára fanga-
vist. Málið var tekið fyrir dóm í höfuðborginni Vín í gær.
Vaxandi áhyggjur lögreglu af rasistahópum í Bandaríkjunum:
Uppgangur
Public Enemy
No. 1 vekur ugg
Dauöalisti meö lögreglumönnum og saksóknara
Samstarf Public Enemy No. 1 og Aryan Brotherhood
Yfirvöld á vesturströnd Banda-
ríkjanna óttast nú uppgang glæpa-
hópsins Public Enemy No. 1 (PENI),
sem berst fyrir yfirráðum hvitra
manna, eftir að samkomulag um
samstarf náðist milli þeirra og
hins alræmda rasistahóps Aryan
Brotherhood.
„Lögreglumennhafamjögmiklar
áhyggjur af þessum mönnum,"
segir Nate Booth, rannsóknar-
lögreglumaður í Orange-sýslu í
Kaliforniu i Bandaríkjunum, sem
hefur rannsakað hópinn dg sams
konar hreyfingar í ríkinu undan-
farin ár. Booth telur að uppgang-
inn megi fyrst og fremst rekja til
valdaskipta innan hópanna innan
veggja fangelsa í ríkinu.
Lögregla hefur mestar áhyggjur
af sérstökum dauðalista sem hreyf-
ingin hefur sett saman. Á honum
eru nöfn fimm lögreglumanna í
Buena Park, Costa Mesa og Ana-
heim i Kaliforníu, auk saksóknara
sem hefur sótt mál gegn nokkrum
liðsmönnum hreyfingarinnar.
I lok síðasta árs réðust þrjú
hundruð lögreglumenn til atlögu
gegn grunuðum liðsmönnum
hreyfingarinnar á 75 stöðum eftir
rúmlega tíu mánaða rannsókn.
Tæplega 67 menn voru handteknir
i þessum samhæfðu aðgerðum
lögreglunnar. Hinir handteknu
hafa allir verið ákærðir fyrir ólög-
lega vopnaeign, eiturlyfjasölu og
önnur afbrot, auk þess að hafa
lagt á ráðin um morð.
Víðtæk glæpastarfsemi
Hópurinn PENI var upphaf-
lega samsettur af nokkrum aðdá-
endum pönktónlistarstefnunnar
á Long Beach í suðurhluta Kali-
forníu á níunda áratugnum. Tón-
listin sameinaði fjölda ungmenna
sem komu saman til að hlusta
á tónlist, drekka, ræða saman,
mynda tengslanet og stofna gengi.
Talsverður fjöldi hópa hvítra
manna myndaðist í þessu um-
hverfi, svo sem PENI, Los Angeles
Death Squad, Normalk Skins og
OC Skins.
Þegar leið á tíunda áratuginn
fluttist kjarni PENI-hreyfingar-
innar til Orange County og hefur
starfsemin vaxið æ síðan. Hreyf-
Atli Isleifsson
Skrííar um upp-
gang rasistahópa
í Kalifomiu.
Fréttaljós atliiá'bladid.n
ingin stendur nú fyrir ólöglegri
sölu og dreifingu á vopnum og
eiturlyfjum. Liðsmenn PENI hafa
einnig stundað víðtækan einkenn-
isþjófnað, þar sem persónulegum
viðskipta- og bankaupplýsingum
einstaklinga er stolið úr póst-
kössum og ruslatunnum fólks.
Á síðari árum hefur glæpastarf-
semin hins vegar orðið mun þró-
aðri og hafa liðsmenn hreyfing-
arinnar orðið uppvísir að því að
koma sínu fólki, oft kærustum
og eiginkonum, fyrir sem starfs-
mönnum í bönkum, tryggingafyr-
irtækjum og öðrum stofnunum
þar sem má finna aðgang að per-
sónulegum upplýsingum fólks.
Upplýsingarnar eru svo nýttar til
að að hafa fjármuni af fólki sem
svo eru nýttir til að fjármagna
eiturlyfjaviðskipti PENI-meðlima.
Þannig hafa einstaklingar sem
hvorki tengjast heimi eiturlyfja né
öðrum klíkum orðið fórnarlömb
hreyfingarinnar.
Fjölgun liðsmanna
Lögregla áætlar að á síðustu
þremur árum hafi liðsmönnum
PENI fjölgað tvöfalt og eru þeir
svo vitað sé nú orðnir rúmlega
fjögur hundruð talsins. Yfirvöld
óttast hins vegar að fleiri hundruð
manna til viðbótar kunni að starfa
innan hreyfingarinnar án vitundar
yfirvalda. Félagar í hreyfingunni
hafa fyrst og fremst verið hvít ung-
menni úr efri millistétt suðurhluta
Kaliforníu. Framámenn innan
PENI leita nú nýrra liðsmanna í
Kaliforníu og Arizona, en lögregla
hefur einnig fundið liðsmenn hóps-
ins bæði í Nevada og Idaho.
Ólíkt öðrum sambærilegum
gengjum hafa Iiðsmenn PENI
ekki hikað við að beita ofbeldi
gegn lögreglumönnum og fjöl-
skyldum þeirra. Samkvæmt heim-
ildum CNN óttast lögreglumenn
1
Barnasandalar - litir: rautt og blátt
‘Vaímifá
Skóverslun
Kringlunni 8-12
Sími 553 2888
Verð 995.-
alls staðar í Kaliforníu nú að aðrir
liðsmenn hreyfingarinnar leiti
upplýsinga um heimilisföng lög-
reglumannanna. Margir þeirra
lögreglumanna sem hafa borið
vitni gegn liðsmönnum PENI hafa
þannig látið fjarlægja nöfn sin
úr lögregluskýrslum af ótta við
hefndaraðgerðir.
Leiðtoginn„Popeye" Mazza
Hingað til hefur Aryan Brot-
herhood verið útbreiddasti og
fjölmennasti hópurinn innan
bandarískra fangelsa sem berst
fyrir yfirráðum hvítra. Aryan
Brotherhood naut áður liðsinnis
mennrar glæpastarfsemi. Brody
Davis, einn stofnenda hreyfingar-
innar, hvatti liðsmenn til að hafna
glæpum og neyslu eiturlyfja og ein-
beita sér þess í stað að því að berj-
ast fyrir yfirráðum hvítra manna.
Upphaflega einkenndi það einmitt
starfsemi hópsins, þar sem þeir
dreifðu pésum með skilaboðum
til almennings.
„Popeye“ Mazza fór hins vegar
að beita áhrifastöðu sinni innan
hreyfingarinnar til að stýra henni
inn á aðra braut. Eftir að áhrif Da-
vis fóru minnkandi, leiddust fjöl-
margir liðsmenn PENI út í heim
fíkniefna. Undir lok níunda ára-
annars hóps, Nazi Low Riders,
sem störfuðu sem fótgönguliðar
og önnuðust eiturlyfja- og vopna-
sölu utan veggja fangelsanna fyrir
hönd Aryan Brotherhood. Árið
2000 endurskilgreindu yfirvöld
í Kaliforníu hins vegar Nazi Low
Riders og voru liðsmenn þeirra
þar með settir í einangrun um
leið og þeir voru fluttir í fangelsi.
Eftir það átti Aryan Brotherhood
í meiri vandræðum með að vera
í samskiptum við liðsmenn Nazi
Low Riders utan veggja fangels-
anna og tóku því upp nánara sam-
starf við PENI, sem efldust gríðar-
lega. Samstarf hreyfinganna varð
opinbert árið 2005, þegar Donald
Reed „Popeye" Mazza, leiðtogi Pu-
blic Enemy no. 1, var vígður inn í
Aryan Brotherhood.
Sakaskrá „Popeye" Mazza er
löng , en hann afplánar hann nú
fimmtán ára dóm fyrir tilraun til
manndráps í Pelican Bay-fangels-
inu í Kaliforníu, þar sem harðsvír-
uðustu glæpamenn rikisins eru
vistaðir. Að sögn saksóknara réðst
Mazza á háttsettann liðsmann
annarrar klíku og stakk með hnífi
aðeins tíu klukkustundum eftir
að hann hafði verið látinn laus úr
fangelsi í aprílmánuði 1999.
Glæpahreyfing
PENI skiptist upphaflega í raun
í tvo hópa. Annar hópurinn vildi
að hreyfinginn beitti sér í þágu
yfirráða hvítra manna, en hinn
hópurinn vildi í auknum mæli
færa hreyfinguna inn á braut al-
tugarins líktist starfsemi hreyfing-
arinnar starfsemi annarra glæpa-
gengja. Eiturlyfjafíkn Mazza og
annarra liðsmanna hreyfingar-
innar varð til þess að þeir fóru að
taka virkan þátt í eiturlyfjasmygli
og -viðskiptum til þess að geta
fjármagnað eigin neyslu. Allt til
Logreglumenn 1 Kaliforniu
Public Enemy No. 1 hefur
sett saman sérstakan dauda
lista með nöfnum fimm lög-
reglumanna og saksóknara.
þessa dags eru liðsmenn F
margir hverjir djúpt sokknir í
eiturlyfjaneyslu.
Óljós stefna
Stefna Public Enemy No. 1 er að
miklu leyti mjög óljós, enda er um-
gjörð hreyfingarinnar mjög laus
f reipum. Ekki hafa verið gefin
út nein lög eða reglur, ólikt því
sem finna má hjá sambærilegum
hópaum. Þannig lýsti einn fyrrum
liðsmaður PENI því að reglurnar
gætu breyst dag frá degi, allt eftir
hentugleika og skapi leiðtogans
„Popeye“ Mazza.
Liðsmenn hreyfingarinnar hafa
flestir húðflúrað nöfn og tákn sem
tengjast hópnum, svo sem PENI,
Peni, Public Enemy Death Squad
og PDS. Þó að liðsmönnum hreyf-
ingarinnar sé heimilt að umgang-
ast fólk af spænskum eða asískum
uppruna, geta einungis hvítir
menn orðið meðlimir. Margir með-
limanna eru með spænsk eftirnöfn,
þó að þeir segist líta á sig sem hvíta.
Þá eru kærustur sumra liðsmanna
ekki hvítar, þó að hópurinn líti al-
mennt slík sambönd hornauga.
Ótti lögreglumahna ríkisins er
ekki ástæðulaus, enda hefur um-
fang hreyfingarinnar vaxið mikið
á undanförnum árum. Liðsmenn
PENI hafa þannig stundað leit að
nýliðum í fangelsum og með þeim
hætti hefur hreyingin náð að vaxa,
bæði innan veggja fangelsanna
sem utan.
Aryan Brotherhood:
Stofnað í San Quentin 1964
Aryan Brotherhood er hreyfing
sem berst fyrir yfirráðum hvítra
manna og samanstendur af um
fimmtán þúsund manns, innan
sem utan veggja fangelsa Banda-
ríkjanna. Fram á sjöunda áratug
síðustu aldar var svörtum og
hvítum föngum haldið aðskildum
í fangelsum Bandaríkjanna og
voru Aryan Brotherhood stofnuð
árið 1964 í San Quentin-fangelsinu
í Kaliforníu í kjölfar þess að fang-
elsið varð blandað.
Upp úr 1980 skiptist Aryan Brot-
herhood í tvo hópa, annars vegar
þá sem afplána dóma í alríkis-
fangelsum og hins vegar þá sem afplána dóma í fangelsum á vegum
einstakra ríkja. Á áttunda áratugnum tók mexíkóska mafían upp
náið samstarf við Aryan Brotherhood á sviði smygls og dreifingar á
eiturlyfjum og hefur það samband staðið allt til þessa dags.
Til að verða gjaldgengur í hreyfingunni þarf fangi að ráðast á og
drepa einhvern samfanga sinn. Menn verða meðlimir fyrir lífstíð
og þeir sem segjast vilja hætta þátttöku í hreyfingunni eiga á hættu
að verða drepnir. Bandaríska alríkislögreglan FBI áætlar að Aryan
Brotherhood standi á bak við tuttugu prósent allra manndrápa
innan veggja fangelsa í Bandarikjunum.
bbJ b ’ Heimild: Wikipedia