blaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 16.03.2007, Blaðsíða 8
www.europcar.is 8 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 blaöiö UTAN ÚR HEIMI Stórveldin ná bráðabirgðasamkomulagi Erindrekar frá Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Kína, Rússlandi og Þýska- landi hafa náð bráðabirgðasamkomulagi varðandi þær refsiaðgerðir sem beita skuli írana vegna kjarnorkuáætlana landsins. Samkomulagið felst meðal annars í banni á útflutningi vopna til írans og að eignir ákveðinna íranskra embættismanna verði frystar. Þá eru ríki heims hvött til að hætta að veita írönum styrki og lán. Pantaðu bílinn hjá Europcar áður en þú leggur af stað Við erum 1170 löndum. Upplýsingar og bókanir í síma: 565 3800 europcar@europcar.is Europcar ÞU LEIGIR MEIRA EN BARA BÍL. Arbak og Albak ehf Hrannargötu 6 - 230 keflavík S: 4215755 - arbak@simnet.is Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Pakistaninn Khalid Sheikh Moham- med hefur játað að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin þann n. september 2001. I tilkynn- ingu frá bandaríska varnarmála- ráðuneytinu Pentagon segir að Mo- hammed hafi jafnframt viðurkennt að hafa komið að skipulagningu þrjátiu annarra hryðjuverka viðs vegar í heiminum. Yfirheyrslurnar fóru fram í Guantanamo-fangabúð- unum á Kúbu um helgina og segist hann meðal annars hafa verið með hryðjuverkaárásir á Big Ben og Heathrow-flugvöll í Lundúnum í undirbúningi. „Ég bar ábyrgð á árásunum 11. september frá A til Ö,“ á Mohammed að hafa sagt sam- kvæmt yfirlýsingu frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Mohammed var einn fjórtán fanga sem höfðu verið í haldi í leyni- fangelsum bandarísku leyniþjónust- unnar CIA, en voru fluttir til Gu- antanamo-fangabúðanna á Kúbu í september síðastliðnum að fyrir- skipan George Bush Bandaríkjafor- seta. Mohammed er rúmlega fer- tugur Pakistani og var handtekinn í Pakistan í ársbyrjun 2003. Við handtöku var hann sagður þriðji valdamesti maðurinn innan hryðju- verkasamtakanna al-Qaeda. Meðferð Bandaríkjahers á Mo- hammed hefur sætt gagnrýni, bæði af lögfræðingum og fulltrúum mannréttindasamtaka. Kenneth Roth, fulltrúi Human Rights Watch, segir ekki nokkra leið að vita hvort Bandaríkjamenn hafi náð játningu Mohammed fram með pyntingum. Yfirheyrslurnar fóru fram fyrir luktum dyrum og var engum utan- aðkomandi leyft að fylgjast með. Þá var Mohammed einungis úthlut- aður bandarískur verjandi, og segja margir að ekki sé nokkur leið fyrir hann að hljóta sanngjarna máls- meðferð við óbreyttar aðstæður. Játningar Mohammed þýða að nú verður hægt að rétta yfir honum fyrir herdómstóli. JÁTNINGAR KHALID SHEIKH MOHAMMED Mohammed viðurkenndi í yfirheyrslum helgarinnar að hafa átt aðild að eftirfarandi hryðjuverkaárásum og hryðjuverkaáætlun- um. 1. Árás á World Trade Center í New York árið 1993. Sex létust og rúmlega þúsund manns særðust. 2. Árásirnar á Tvíburaturnana í New York og Pentagon 11. september 2001. Flugvél- um var rænt og flogið á byggingarnar með þeim afleiðingum að nærri þrjú þúsund létust og mikill fjöldi særðist. 3. Tilraun Richards Reid til að sprengja far- þegaflugvél í loft upp yfir Atlantshafi með sprengiefni földu í skó sinum árið 2001. 4. Sprengjuárás í Kúveit í október 2002. Tveir bandarískir hermenn fórust. 5. Árás á skemmtistaö á Balí 2002. 202 fórust. 6. Áætlanir um aðra bylgju sprengjuárása með þvi að fljúga flugvélum á bandarískar byggingar. Meðal þelrra voru Library Tower í Los Angeles, Sears Tower í Chicago, Plaza Bank í Seattle og Empire State Build- ing í New York. 7. Áætlanir um að fáðast á bandarísk olíuskip og herskip í Hormuz-sundi, Gíbralt- ar-sundi og Singapúr. 8. Áætlanir um að sprengja Panama-skurð- inn. 9. Áætlanir um að myrða fyrrum Bandaríkja- forseta, meðal annars Jimmy Carter. 10. Áætlanir um að sprengja brýr í New York-borg. 11. Áætlanir um að eyðileggja Sears Tower I Seattle með því að sprengja olíubíla undir og í kringum turninn. 12. Áætlanir um að sprengja Heathrow-flug völl, Canary Wharf og Big Ben i Lundúnum. 13. Áætlanir um árásir á fjölda skemmti- staða í Taílandi, til að drepa breska og bandaríska ferðamenn. SETTU ÞAÐ SAMAN M! Af hverju að borga meira? FITH er leiðandi i framleiðslu innréttinga á Norðurlöndum og býður besta verð sem völ er á fyrir þá sem vilja sjálfir taka þátt í uþpsetningu á eigin eldhúsi. Gerðu verðsamanburð og þú munt komast að þvi að Settu það saman línan frá HTH kostar minna en sambærilegar innréttingar á markaðinum. Einfalt og þægilegt. Fagleg útsjónarsemi og markviss hönnun fagmanna HTH er lykillinn að þessum glæsilegu innréttingum. Settu það saman er kerfi sem auðvelt er að raða saman og fella að hvaða plássi sem er - og að þeim kröfum sem gerðar eru til geymslurýmis í eldhúsinu. HTH býður ókeyþis teikniforrit með þessu kerfi sem gerið þér auðvelt að máta hina ýmsu stærðir og útlit inn f þitt eldhús. ÁRVIRKINN, SELFOSSI • Sími 480 1160 AKUREYRI ■ Sími 461 5003 AEG 20% afsláttur veittur af lúxus eldhústækjum frá AEG þegar keyptar eru innréttingar frá HTH. Einnig á lager og til afgreiðslu strax úrval fataskápa, baðinnréttinga og rennihurða. ORMSSON SMÁRALIND • Sími 530 2907 / 530 2908 14. Áætlanir um að sprengja bandarísku kauphöllina í New York. 15. Áætlanir um aö eyðileggja byggingar í Elat í fsrael með þvi að fljúga flugvélum á þær. 16. Áætlanir um að sprengja bandarísku sendiráðin i Indónesiu, Ástralíu og Japan. 17. Áætlanir um að sprengja ísraelsku sendi- ráðin i Indlandi, Aserbaídsjan, Filippseyjum og Ástralíu. 18. Hafa umsjón með og fjármagna árás á flugvél israelska flugfélagsins EI-AI frá Bangkok í Taílandi. 19. Mohammed lét senda menn inn í (srael til að fylgjast með fyrirhuguðum skotmörk- um sprengjuárása. 20. Sjálfsmorðsárás á hóteli í Mumbasa í Keníu í nóvember 2002. Fjórtán fórust. 21. Mlsheppnuð tilraun tii að skjóta niður ísraelska flugvél frá Mumbasa sama dag og árásin 2002. 22. Áætlanir um að ráðast á bandarískar herstöðvar og skemmtistaði i Suður-Kóreu, þar sem bandarískir hermenn venja komu sínar. 23. Fjármagnsaðstoð við að ráðast á banda- rísk og bresk skotmörk i Tyrklandi. 24. Lét fylgjast með bandariskum kjarn- orkuverum með sprengjuárás í huga. 25. Áætlanir um að ráðast á höfuðstöðvar NATO í Brussel. 26. Áætlanir um að sprengja tólf bandarísk- arfarþegaflugvélar í loft upp árlð 1995. 27. Tilraun til að ráða Bill Clinton Banda- ríkjaforseta af dögum i heimsókn hans til Filippseyja árið 1995. 28. Þátttaka í áætlunum um að ráða Jóhannes Pál II páfa af dögum í heimsókn hans til Filippseyja. 29. Áætlanir um að ráða Pervez Musharraf, forseta Pakistans, af dögum. 30. Áætlanir um að ráðast á bandariskt olíufyrirtæki á Súmötru i Indónesíu. 31. Afhausun bandariska blaðamannsins Daniels Pearl í Pakistan árið 2002.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.