blaðið - 16.03.2007, Síða 22

blaðið - 16.03.2007, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 mat matur@bladid.net blaðiö Ut með skyndibitann Sleppið skyndibitanum og kaupið hollustu í staðinn. Oft er talað um að ávextir og grænmeti sé dýrt en með vikulegum innkaupaferðum og góðu skipulagi er hægt að lágmarka kostnaðinn. Allt er gott í hófi og það sama á við um súkkulaði og aðra óhollustu. Það er því í góðu lagi að fá sér eins og eitt lítið súkkulaði á dag. Til að friða samviskuna má svo fara í stutt- an göngutúr að kvöldi. H V-V. i **£«&'*&'* * i *C ' * v Vl v r tjif m Ágætis kokkur „Ég held ég sé ágætis kokk- ur þegar ég tek mig til og mér finnst ofboös- lega skemmtilegt aö elda góðan mat." Vala Matt hefur eldað frá því hún var ung stúlka enda elst sex systkina Eldamennskan BlaÖiÖ/Eyþór í blóð borin Hráfæði í daglegu lífi Rithöfundurinn Kate Wood er stödd á íslandi um þessar mundir og heldur tvo fyrirlestra um hráfæöi um næstu helgi. Á laugardeginum verður fyrirlestur um hráfæði og hvernig skal gera hráfæði að prak- tískum hluta daglegs lífs. Á sunnu- daginn mun Kate halda fyrirlestur um súkkulaði sem hún segir vera ofurfæði, enda næringarmikið og fullt af vítamínum, steinefnum, and- oxunarefnum og fleira. Kate Wood er mjög framarlega í hráfæðismat- argerð í Bretlandi og hefur gefið út bækur með heitinu Eat Smart, Eat Raw. Auk þess hefur hún rekið ,Raw-kaffihús“ í Brighton auk þess að selja ýmsar tegundir af svoköll- uðum ofurmat. Eðlilegra en hefðbundinn matur Sjálf hefur Kate Wood verið á hráfæði síðan 1993 ásamt sinni fjöl- skyldu og segja má að hráfæði sé orðið henni eðlilegra en hefðbund- inn eldaður matur. Hún á því ekki í erfðleikum með að leiða Islendinga í sannleikann um hvernig hægt er að matbúa einfaldan og hollan fjölskyldumat. Fyrirlesturinn verður í Bratta í Kennaraháskóla íslands, verð fyrir annan daginn er 3000 krónur en verð fyrir báða dagana er 5000 krónur. Nánari upplýsingar má finna á www.lifandi.net. Ljúffengt kjúklingasalat • 1 soðin kjúklingabringa, köld og niðurskorin • 2 handfylli af ferskri steinselju • 1 msk. ólífuolía • safi úr Ví sítrónu • 1 tsk. Maldon-sjávarsalt • 50 g ristaðar möndlur Blandaðu saman steinseljunni og kjúklingnum með höndunum í skál eða á stórum diski. Dreifðu olíunni yfir og hristu salatið saman með höndunum. Kreistu sítrónusafann og dreifðu saltinu yfir salatið. Settu megnið af möndlunum í salatið og hristu það til. Restin af möndlunum fer ofan á salatið. Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd. svanhvit@bladid.net Valgerður Matthíasdóttir sjón- varpskona, betur þekkt sem Vala Matt, segist hafa sérstaklega gam- an af því að elda góðan mat þeg- ar fleiri elda saman. „Ég held að ég sé ágætis kokkur þegar ég tek mig til og mér finnst ofboðslega skemmtilegt að elda góðan mat. Við systkinin komum stundum saman og gerum eitthvað sérstakt í eldhúsunum okkar og það er al- gjört ævintýri. Þá erum við eins og stór, ítölsk, hávær og mjög skemmtileg fjölskylda. Því miður gerum við þetta ekki nógu oft en þegar það gerist er það ótrúlega skemmtilegt. Við komum þá með ýmislegt sitt úr hvorri áttinni og mamma er yfirkokkurinn en hún er snillingur í eldhúsinu. Ég held að eldamennskan og brennandi áhugi á eldamennsku sé svolítið í blóðinu.“ Ekki of flóknar uppskriftir Vala segir að þrátt fyrir að hafa brennandi áhuga á eldamennsku hafi hún ekki gefið sér mikinn tíma til að elda undanfarin ár vegna anna í vinnu. „Ég er að spá í að bæta úr því en mér finnst voða- lega gott að vera ekki með of flókn- ar uppskriftir sem hefur kannski líka mótast af þessari miklu vinnu undanfarin ár. Ef það er einfalt, fljótlegt en samt rosalega gott þá finnst mér það best. Ég fylgi lítið uppskriftum en finnst gott að vita hvað á.að vera í réttinum og svo set ég minn persónulega stíl á þær,“ segir Vala sem hefur eldað frá því hún var ung stúlka. „Ég er elst af sex systkinum og var mjög fljótt farin að aðstoða mömmu í eldhús- inu. Ég var líka mjög dugleg að elda þegar ég var í námi í Danmörku en þar var ég í alls kyns tilraunastarf- semi. Það var draumur að versla í matinn þar samanborið við Island. Núna finnst mér við aftur á móti „Við systkinin komum stundupi saman og gentm eitthvað sérstakt í eldhús- unum okkar og það er . algjört ævintýri. Þá erum við eins og stór, ítölsk, há- vær og mjög skemmtileg fjölskylda." ekki geta kvartað hér heima enda hefur orðið algjör bylting í vöruúr- vali í verslunum.“ Borða bara íslenskan fisk Aðspurð hver sé uppáhaldsmatur- inn segir Vala að sér detti alltaf hum- ar og fiskisúpa fyrst í hug. „Ég veit ekki af hverju það er en það kemur alltaf fyrst upp í hugann. Humar er það besta sem ég veit og ég nærist á að fá mér regluíega fiskisúpu. Mér finnst fiskur æðislega góður. Ég er til vandræða því ég get eiginlega ekki borðað fisk nema á íslandi og mér finnst fiskur á veitingastöðum í útlöndum óspennandi. Svo elska ég ítalskan og indverskan mat og mér finnst indversk krydd æðisleg," segir Vala sem er meira en tilbúin til að deila uppáhaldsréttinum sín- um með lesendum Blaðsins. „Mér finnst æðislegt að grilla humarinn með hvítlaukssmjöri eða hvítlauk og olíu. Best er að grilla hann á úti- grilli en veturinn er orðinn svo mild- ur að það er hægt að gera það meira og minna allt árið. Með humrinum hef ég eitthvert grænt salat og sem- olina-brauð sem ég fæ hjá Jóa Fel en það er ítalskt, þétt og æðislega gott brauð. Ég set það aðeins í brauðrist- ina, léttrista það eða set það á grillið í stuttan tíma. Svo er gott að setja pínulítið af góðri olíu á það, skera hvítlauksbát og nudda sárinu á hvít- lauknum vel í olíuna á brauðinu og dreifa svo Maldon-salti yfir. Ég myl saltið yfir brauðið og þetta er algjört sælgæti.“ Er þetta ekki helgin til að dekra við sig og sína?

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.