blaðið - 16.03.2007, Side 26

blaðið - 16.03.2007, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007 blaðið Með allt á hreinu Þeir Snorri og Erlendur vita hvers virði það er að búa sig rétt. BlaDiD/Frikki Rétt viðbrögð s iklu máli i Subaru Legacy til reynslu i tvo daga: Kynnast bílnum betur Ingvar Helgason, umboðsaðili Subaru á Islandi, býður nú viðskipta- vinum sínum upp á tveggja daga reynsluakstur á Subaru Legacy. Að sögn Rúnars H. Bridde, sölu- og markaðsstjóra hjá Ingvari Helga- syni, er hér um algjöra nýjung að ræða á íslandi, enda er hefðbund- inn reynsluakstur hjá bílaumboð- um aðeins stuttur bíltúr. „Þetta er I fyrsta skipti sem er boð- ið upp á tveggja daga reynsluakstur á Islandi og þetta framtak hefur vak- ið mikla kátínu,“ segir Rúnar. „Við teljum afar mikilvægt að fólk fái að upplifa Subaru í lengri tíma en geng- ur og gerist. Við ákváðum að gera eitthvað nýtt og þetta er aðeins ein leið af mörgum við að koma okkar bílum á framfæri, fólk fær tækifæri til að nota bílinn við raunverulegar aðstæður þess sjálfs." Rúnar segir ekki ljóst hvort boðið verður upp á tveggja daga reynslu- akstur á fleiri bílum í framtíðinni. „Við ákváðum að prófa þetta og sjá hvernig það kemur út. í sjálfu sér er ekkert sem kemur i veg fyrir að prófa þetta með fleiri bíla ef reynsl- an verður góð.“ Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 bilar@bladid.net UR BILSKURNUM Ahugaverð heimasíða Heimasíðan youparklikeanasshole.com er nú til sölu á eBay. Á síð- unni er hægt að prenta út orðsendingar til þeirra sem kunna ekki að leggja í stæði og birta myndir af þeim hundakúnstum sem viðgang- ast á bílastæðum um alla veröld. Uppboðinu lýkur á sunnudag. Saab-bílar 60 ára Árið 1947 kom sænski flugvélaframleiðandinn Saab öllum á óvart með því að kynna til sögunnar fyrsta hugmyndabílinn Saab 92, sem þótti í þá daga framúrstefnulegri en alit annað. Meðfylgjandi mynd er af 1952 árgerð bílsins. Dýrasti lúxusbíll sögunnar Ef þig vantar bíl fyrir 135 milljónir króna (fyrir utan tolla og aðflutningsgjöld að sjálfsögðu) þarftu bara að bíða til seinni hluta næsta árs. Natalia SLS 2 verður með V16 vél, 60 tölvu- heilum og „ókeypis" handtösku að verðmæti 800.000 krónur fyrir dömurnar. _______________ • Vélin er frá Volcano og framleiðir 1.200 hestöfl • Málning sem skiptir um lit eftir hitastigi er aukabúnaður • Skoðaðu: www.dimoramotorcar.com Fimm stjörnu Yaris og Corolla Toyota Yaris fékk nýlega 35 stig fyrir verndun uillorðinna í árekstrarprófunum Eurp NCAP. Alls fékk bíllinn 5 stjörnu einkunn í prófinu, rétt eins og Toyota ...JfwfZSmL Corolla fékk nýlega, með 34 stig fyrir verndun fullorðinna. ** — , Alls hafa sex Toyotur fengið 5 stjörnur • Reiknað er með að þeir verði 70% af öllum seldum Toyota-bflum • Corolla var fyrsti sedan-bíllinn (c-flokki til að fá þessa einkunn • Mazda tekur þátt i pátt i umhverfisverkefni Vetnisútgáfa RX-8 tekur nú þátt í umhverfisverkefni í Japan sem snýst um prófanir á frammistöðu vetnisbíla í köldu veðri. • Vetnisbílar með hverfihreyflum eru tiltölulega ódýrir I framleiðslu og geta einnig notað venjulegt bensín • Bensínútgáfa R-8 er seldur hérlend- is með svokallaðri Wankel-vél. Lego Chrysler? Og enn af sorgarsögu Chrysler. DaimlerChrysler hefur tilkynnt að samsteypan muni skipta um nafn eigi síðar en 31. mars 2008, enda lítt spennandi að minna stöðugt á tengingu við ófarsælt fyrirtæki sem verður selt fljótlega út úr samsteypunni. Nýjasti mögulegi kaupandinn er Blackstone Group-fjárfesting- arfélagið sem á til dæmis Madame Tussaud’s-vaxmyndasöfn- in, Sea Life-vatnagarðana og ráðandi hlut í Lego og Legolandi. VJ. ^ Lada loksins komin á 21. öldina Fæstir hafa líklega trúað því að þeim entist ævin til að sjá Lödu sem líkist, tja, bíl. Eftir að hafa stoltir sýnt Lödu 1200 og Lödu Sport á bílasýningum fram til þessa mættu Rússarnir öllum að óvörum með splunkunýjan Lada C til Genfar sem er bara hreint ekki svo óálitlegur. • „C“ stendur fyrir Coupé og Concept (einn stafur fyrir tvö orð - Rússarnir kunna þetta) • Til stendur að framleiða fleiri nýjar Lödur á sömu grunnplötu • Hönnunarfyrlrtækið Magna Interna- tional á stóran þátt i hönnun „C“ • Vélar i boði verða 2,0 og 1,6 litra benslnvélar Landsins mesta úrual af hjöruliðum og drifskaftsuörum Jafnuægisstillingar FlJALLABÍLÁR 110 Reykjavík Stál og stansar ehf. Sími: 517 5000 [FcD/A\® ÍS D [S111111 Eftir Einar Elí Magnússon einareli@bladid.net Vetrarferðir um hálendið eru vinsæl- ar bæði hjá jeppa- og vélsleðafólki og sífellt bætist í þann hóp sem sækir til fjallaumhelgar. Blaðið fékk tvo reynda björgun- arsveitarmenn til að skýra frá nauð- synlegum búnaði og varúðarráð- stöfunum fyrir lesendur, þá Erlend Höskuldsson, formann bílahóps í Björgunarsveitinni Ársæli, og Snorra Halldórsson úr sleðaflokki Hjálpar- sveitar skáta í Kópavogi. Aukafatnaður og nesti „Til að jeppar séu tilbúnir í vetrarferð- ir þurfa dekk auðvitað að vera í lagi og svo er fjarskiptabúnaður algjört lyk- ilatriði. Það er lágmark að vera með NMT-síma og VHF-talstöð. Svo ætti staðalbúnaður í slíkum bílum að inni- halda dráttartaug, skóflur og álkarl, jafnvel dráttarspil og snjóakkeri líka,“ segir Erlendur og bætir við að auka- nesti og klæðnaður fyrir farþegana sé ekki siður mikilvægur. „Ég miða alltaf við það í helgarferð að vera með nesti fyrir einn sólar- hring til viðbótar og hafa mikið af hlýj- um og góðum aukafatnaði.“ Snorri tekur í sama streng og segir tíðkast hjá sinni sveit að vera til dæmis með auka ullarnærföt í vatnsheldum umbúðum í bakpokanum í sleðaferð- um. „Þar erum við líka með aukamat, sokka, húfu, vettlinga, aukatalstöð og GPS-handtæki þvi bæði talstöðvar og GPS-tæki á sleðum geta bilað. Við erum líka með „bívak“ poka eða álpoka sem hlífa manni fyrir veðri og svo eru snjóflóðaýlar algjört skylduverkfæri á hverjum manni eins og nýleg tilfelli sanna. Þrátt fyrir að vera með skóflu á vélsleðanum erum við með aðra í bakpokanum til vara og í töskum á sleðunum eru þær olíur sem þeir þurfa og dráttarlínur.“ Ekki halda áfram fótgangandi Þeir félagar eru sammála um að það sé lykilatriði að skilja ekki við tæk- in ef eitthvað kemur upp á. „Ef þú ert ekki öruggur um hvar þú ert eða færi og veður er vont, þá er um að gera að stoppa og bíða veðrið af sér í bílnum. Númer eitt, tvö og þrjú er að halda til í bílnum,“ segir Erlendur. „Það er eins með sleðana," segir Snorri. „Það er auðveldara að rekja för eftir sleða en mann og auðveldara að finna þá. í fyrra lentum við í útkalli þar sem sleðarnir fundust en það tók þrjá tíma til viðbótar að finna menn- ina því þeir höfðu haldið áfram fót- gangandi. Svo er hægt að nota sleðana sem skjól í vondu veðri, með þvi að setja þá á hliðina." Fjallareglurnar 9 Farðu ekki í langferð án þjálfunar. Láttu vita hvenær og hvaðan þið haldið af stað og hvenær þið áætlið að koma til baka. Taktu mið af veðri og veðurútliti. Hlustaðu á reynt fjallafólk. Vertu viðbúin(n) slæmu veðri og óhöþpum, jafnvel í stuttum ferðum. Hafðu alltaf kort og áttavita og jafn- vel hæðarmæli með í ferðum. Feröastu ekki ein(n) þíns liðs. Snúðu við í tæka tíð - það er engin skömm að fara til baka. Sparaðu kraftana og leitaðu skjóls (tæka tíð. „Fólk ætti alltaf að skilja eftir leiðar- lýsingar þegar það fer á fjöll og reyna að halda sig við þær,“ segir Erlendur. „Ef ferðaáætlunin breytist þarf að hafa samband til byggða og tilkynna um breytinguna. Þetta getur skipt mjög miklu máli.“ Mikilvægt að treysta félögunum „Maður ætti aldrei að ferðast eintækja, hvorki á sleða né jeppa,“ segir Snorri. „Ef eitthvað er að veðri reyna menn að ferðast í þéttum hópi og verða ekki viðskila hver við annan. Þá þarftu að treysta félögum þínum til að halda hópinn. I lengri vélsleðaferð- um erum við oft með einn fremstan sem ákveður svolítið leiðina, og svo er einn aftastur sem fylgist með ferðum allra hinna og hinkrar eftir þeim sem taka útúrdúra. Þannig er alltaf vitað um alla og enginn hverfur úr hópn- um án þess að það uppgötvist strax.“ „Áður en lagt er af stað verður fólk svo að fylgjast með veðurspám og alls ekki vefengja þær. Auðvitað geta þær brugðist til beggja átta en maður gengur aldrei út frá því. Ef spáin er vond fyrir föstudag hinkra ég bara til laugardags og met stöðuna þá. Fólk verður að fara varlega og passa upp á öryggið," segir Erlendur og Snorri tek- ur undir orð hans en bætir við: „Ég vil samt ekki vera að kenna veðrinu um ef eitthvað kemur upp á. Það er ekki hægt að fara fram á að fólk fari ekki af stað bara þótt það sé eitthvað aðeins að veðri. Það gengur bara ekki. Því er enn mikilvægara að vera vel búinn, það getur líka brostið á vont veður hve- nær sem er.“ Teljum ekki kostnaðinn eftir okkur Éftir stóra leit verður oft mikil umræða 1 fjölmiðlum um kostnað björgunarsveita. í leit um síðustu helgi varð til dæmis nokkurt tjón á tækjum en Snorri segir fáránlegt að setja það í samhengi við leitina. „Við gefum okkur út fyrir að stökkva frá vinnu hvenær sem er og þó að tæki skemmist hjá okkur þá getur það líka gerst hjá öllum öðrum. Við gerum ráð fyrir þessu og skrifum það ekkert á einhverja sérstaka leit. Fólk á engan veginn að spá í hvað þetta kostar og það er algjörlega fá- ránlegt að fólk sé eitthvað að reyna að verðleggja leitirnar, því við gerum það ekki. Þessi umræða verður til þess að fólk hikar við að leita þeirrar hjálpar sem það á möguleika á vegna þess að það heldur að það þurfi að borga fyrir hana. Það gerist hinsvegar aldrei.“ „Fólk á ekki að hika við að kalla á aðstoð ef það þarf aðstoð, hvort sem það er til kunningja eða björgunar- sveita. Alveg sama hvort þú ert á bíl, sleða eða öðru. Umræða um kostnað eða réttmæti útkalla á ekki að eiga sér stað,“ bætir Erlendur við að lokum. Vefsíöur: www.vedur.is www.vegagerdin.is www.belgingur.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.