blaðið - 16.03.2007, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2007
blaöiö
OFMETIÐ
Klám í tískumyndum
Nennum ekki að útskýra það nánar
út af allri umræðunni sem á undan er
gengin en það eru þarfari mál á dag-
skrá en að finna ímyndað þarnaklám í
ódýrum auglýsingaþæklingum
Fermingargreiðsla
Það er ekkert eins draugalegt og stí-
flakkaðir slöngulokkar og þlómvöndur
í unglingshári. Það er miklu fallegra að
vera bara með eðlilegt hár á ferming-
ardaginn. Það er yfirleitt hárgreiðslan
sem veldur því að fermingarmyndin
endar ofan í skúffu. Sumir geta aldrei
horfst í augu viö túþeruðu lokkana sem
þeir létu plata sig í að þera á ferming-
ardaginn.
Flugfreyjustarfið
Hvað er málið með
þriggja manna dómnefnd
og greindarpróf sem jafn-
ast á við það sem notað
er til að velja fólk í starf
hjá Nasa? Þetta er að
sjálfsögðu ábyrgöarfullt
starf og flugfreyjur
og þjónar (slenskra
flugfélaga eru landinu
til mikils sóma en það
getur ekki verið svona
ógeðslega merkilegt.
VANMETIÐ
Krónur
Sumir meira að segja henda
þeim. Það er samt þannig
að ef maður sparar þær og
passar upp á krónurnar
sínar verða þær senn að
hundrað krónum og jafnvel
þúsund krónum.
Að vera vinalegur og kurteis
og brosa
Það má alveg vera vinalegur við ókunn-
uga og bjóða góðan daginn
og brosa og þess háttar. A A
Við íslendingar erum allt .. W W
of feimnir við að vera .
vinalegir hver við annan.
Slöþpum aðeins af í því að
þykjast vera kúl og bjóðum næst góðan
daginn þegar við förum í Bónus.
Að spara páskaeggin
Nú er svo komið að nammi-
édeildir búðanna eru fullar af
páskaeggjum og lítil páskaegg
númer 1 eru markaðs-
sett eins og hvert
annað nammi sem
sjálfsagt er að japla á
vikurnar fram að páskum. Orðlaus
finnst þetta ekki góð hugmynd og
segir að páskaegg eigi bara að borða á
páskadagsmorgun. Þau verða þá miklu
betri og meira spes.
Skoðanaskiptin
í Skoðanaskiptunum mætast að þessu sinni þau Heiðar
er kannski betur þekkt sem Mr. Silla. Draumastaður Sillu
vera ofurhughreystir mætti hann velja sér ofurhæfileika.
Austmann útvarpsmaður og Sigurlaug Gísladóttir sem
er Múmíndalurinn í Finnlandi en Heiðar myndi helst vilja
fAST FOOb
FOR
- m
Wmmmi
Nafn: Heiðar Austmann
Aldur: 30 ára á morgun
Hjúskaparstaða: I
sambandi
Starf/menntun:Dagskrár-
gerðarmaður á Fm 95.7 og
tónlistarstjóri á PoppTv
Bók: Ætli það sé ekki bara Skyndibiti fyrir sálina. Þetta er bók sem er góð þegar maður
stendur á krossgötum í lífinu.
Kvikmynd: Þær eru svo margar í uppáhaldi og Braveheart er til dæmis ein þeirra.
Skemmtistaður: Ég er óttalegur flakkari en þar sem ég er að vinna á Sólon segi ég
bara Sólon.
Staður í veröldinni:Mig langar ótrúlega mikið að fara til Jamaika eða Kúbu eða jafnvel
í Karíbahafið en svo finnst mér alltaf jafngaman að fara til Köben.
Fyrirmyndir: Foreldrar og systkini, gott og heiðvirt fólk sem er mjög gott að eiga sem
fyrirmyndir.
Draumurinn: Þegar ég var yngri langaði mig alltaf að vinna sem hótelstjóri í einhverju
sólarlandi. Nú hefur það breyst og draumurinn er að eiga falleg og heilbrigð börn, góða
konu og fjölskyldu.
Hamingjan felst í: Að vera sáttur viö sjálfan sig og það sem þú átt. Ekki alltaf að horfa
á hlutina eins og grasið sé grænna hinum megin.
fsland er: Besta heimili sem þú getur eignast. Maður finnur það þegar maður hefur
verið erlendis að það er hvergi betra að vera en hér.
Ofurhæfileiki: Að geta alltaf sagt rétta hluti til aö láta fólki líða betur. Vera ofurhug-
hreystir.
Uppáhaldstími dagsins: Milli 2 og 6 á virkum dögum því að þá er þátturinn minn i
loftinu á Fm 95.7.
Hundur eða köttur: Ég er hundamaður og er núna að bíða eftir að flytja í stærri íbúö til
að geta fengið mér hund.
Bjór eða vín: Bjór held ég bara.
Inni eða úti: Bæði inni og úti, fer eftir veðri.
Hægt eða hratt: Ég vil hafa mikiö að gera í kringum mig og helst aldrei dauðan tíma.
Cameron Diaz eða Penelope Gruz: Cameron Diaz. Örugglega gaman að vera með
henni, hún er hress og sæt með hlýlegt bros.
Hvernig gamalmenni ætlarðu að verða?
Ég ætla að vera hressi afinn og börnum mínum stoð og stytta. Vera ástfanginn af konu
minni og vonandi verð ég ógeðslega ríkur af því að ég er búinn að borga svo lengi í
viðbótarlífeyrissparnað.
Ef þú fengir að skapa þér fullkominn heim til að búa í, hvernig væri hann þá?
Ég myndi byrja á því að losa mig við George Bush úr forsetastóli og þá væri ég kominn
langleiðina í að skapa betri heim. Svo myndi ég herða dóma í kynferðisbrotamálum á
(slandi.
Þrír hlutir sem þig langar að gera áður en þú deyrð?
Ætli það sé ekki bara að tryggja framtíð barnanna minna, fara í fallhlífarstökk af því að
ég er ógeðslega lofthræddur og svo myndi ég vilja fara til Ástralíu.
Nafn: Sigurlaug Gísladóttir
Aldur: 22 ára
Hjúskaparstaða: Single og fab.
Starf/menntun: Myndlistar-
nemi í Listaháskóla Islands og
tónlistarkona
Bók: Þær eru svo margar en ég held ég verði að segja Meistarinn og Margaríta eftir
Búlgakov.
Kvikmynd: Ég verð eiginlega að nefna frekar leikstjóra og þá eru það aðallega tveir,
Miasaki og Michelle Gondri.
Skemmtistaður: Ég fer oftast á Sirkus, Boston og Angelos.
Staður í veröldinni: Ef ég ætti aö velja einhvern stað til að heimsækja þá myndi ég
helst vilja heimsækja Múmíndalinn í Finnlandi.
Fyrirmyndir: Þær eru nokkrar en það eru kannski helst vinirnir og fjölskyldan.
Draumurinn: Hvar ertu lífið sem ég þrái... oh oh eilífðin.
Hamingjan felst í: Trausti.
fsland er: Land þitt, því aldrei skalt gleyma.
Ofurhæfileiki: Ég vildi helst geta flogið. Mér finnst of mikil ábyrgð felast í því að
ferðast um tímann eða gera eitthvað slíkt. Því fylgir lika of mikil ábyrgð að geta lesið
hugsanir.
Uppáhaldstími dagsins: Ég er mikill nátthrafn, finnst til dæmis gott að vinna á næt-
urnar.
Tónlist er: Tónlist er nú eiginlega bara lífið fyrir mér.
Hundur eða köttur: Köttur, ég á samt ekki kött en ég á í einum.
Bjór eða vín: Bjór.
Inni eða úti: Jafnt, en kannski aðeins meira inni.
Hægt eða hratt: Mér finnst gott að þetta komi í skömmtum.
Johnny Depp eða Brad Pitt: Hvorugur þeirra, ég segi frekar Kieran Culkin.
Hvernig gamalmenni ætlarðu að verða?
Ég ætla að taka mér ömmur mínar til fyrirmyndar og aldrei að verða of gömul til þess
að læra eitthvað nýtt. Svo ætla ég að reyna að gera mitt besta til þess að vera gleði-
gjafi fyrir ástvini.
Ef þú fengir að skapa þér fullkominn heim til að búa i, hvernig væri hann þá?
Hinn fullkomni heimur væri fuliur ísskápur af túnfisksamlokum og appelsíni og það
væru fleiri klukkustundir í deginum.
Þrír hlutir sem þig langar að gera áður en þú deyrö?
Það þrennt sem mig myndi langa til þess að gera áður en ég dey er að læra að fara í
handahlaup, svo myndi ég vilja fara í fallhlífarstökk og jafnvel eyða eins og einum degi
með kóalabirni.
Snyrtibuddan
Það er Halla Ólafsdóttir
dansari sem að þessu
sinni segir frá innihaldi
snyrtibuddunnar sinnar.
Snyrtivörur eru Höllu
kannski ekki efst í huga og
hún er yfirleitt glöð þegar
hún á gott make og góðan
maskara. Halla er hins
vegar með hugann allan
við dansinn þessa dagana
og með mörg verkefni
í gangi. Hún vinnur að
undirbúningi fyrir Reykja-
vík Dance Festival sem
haidið verður í september
og síðan er hún að undir-
búa verkefni með dansleik-
húshópnum Flutningafé-
laginu sem unnið verður á
Vopnafirði í sumar.
Hvaða snyrtivöru verðurðu alltaf að eiga?
Helenu Rubinstein make, maskara og augnskugga í ýmsum
jarðlitum, aðallega til að halda mér niðri á jörðinni
en þó með smá glimmeri til að gera
skemmtilegt.
Hvað ertu alltaf með á þér í
snyrtibuddunni?
Ég gleymi henni mjög oft heima
og þaðtruflar mig ekki neitt.
Hvað notarðu þegar þú ferð út
á lífið?
Þá dekki ég augun aðeins meira og
við sérstöktækifæri set ég á mig varalit,
auðvitað rauðan.
Hvað langar þig i?
Sknyrtivörur eru ekki partur af draumum minum og ég
er glöð þegar ég á undirstöðuna, make og maskara.
Það nýjasta í snyrtibuddunni?
Ég man það ekki og þarf
kannski að fara að fylla á.
Ilmvatnið þitt?
Euphoria frá Calvin Klein. Ég
átti mjög erfitt með að finna
mér ilmvatnið mitt og það var
kona í frihöfninni sem sagði
að þetta væri fullkomin lykt fyrir
mig. Ég trúði henni og er mjög sátt
við þetta ilmvatn.
Fegrunarráð?
Þvo andlitið á hverju kvöldi, fyrst með heitu
vatni og síðan með isköldu, þá verður húðin
ferskari.