blaðið - 14.04.2007, Side 10
10 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007
blaöið
*
UTAN UR HEIMI
SAMEINUDU ARABISKU FURSTADÆMIN
Pakistani grýttur til dauða
Hæstiréttur í Ajman, einu af Sameinuðu
arabísku furstadmunum, hefur staðfest dóm
sjaríadómstóls að Pakistani verði dæmdur til
dauða fyrir að hafa barnað fjórar stjúpdætur
sínar. Maðurinn verður grýttur til dauða.
Borgarstjóri vill bjarga Kristjaníu
Ritt Bjerregaard, borgarstjóri Kaupmannahafnar, hefur
sagt að Kaupmannahafnarborg sé tilbúin að taka að
sér stjórn Kristjaníu til að koma fríríkinu til bjargar.
Thor Pedersen, fjármálaráðherra Danmerkur, hefur þó
hafnað öllum tillögum í þessa veru.
Maradona aftur á sjúkrahús
Diego Armando Maradona, einn dáðasti knattsþyrnumaður
allra tíma, var fluttur á sjúkrahús í skyndi í gær vegna verks í
kvið. Læknar segja að líf hans sé þó ekki í hættu. Maradona var
útskrifaður af sjúkrahúsi fyrr í vikunni eftir tveggja vikna dvöl
vegna lifrarbólgu af völdum mikillar áfengisneyslu.
Sjúkraflug frá Akureyri:
Slökkviliðið greiðir
laun fyrir öll útköll
■ Sumstaðar í fullu starfi ■ Vandamál á Vesturlandi
Sjúkraflug Slökkviliðið á Akureyri hefur
byggt upp sjúkraflug síðustu tíu ár.
Danmörk:
Semja ekki
um Kristjaníu
Thor Pedersen, fjármálaráð-
herra Danmerkur, segir að ekki
verði samið frekar við íbúa
Kristjaníu í Kaupmannahöfn
og að fríríkið verði aftur hluti
af Kaupmannahöfn. Viðræð-
ur milli íbúanna og fulltrúa
danska ríkisins strönduðu
fyrir páska effir að íbúarnir
höfnuðu kröfum stjórnvalda.
Pedersen segist harma
afstöðu Kristjaníubúa þar sem
tilboð stjórnvalda hafi verið
mjög hagstætt fyrir íbúana.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Grein um sjúkraflutninga í dreifbýli
sem birtist í Læknablaðinu á dög-
unum og fjallað hefur verið um í Blað-
inu hefur vakið töluverð viðbrögð. Þor-
björn Haraldsson, slökkviliðsstjóri
á Akureyri, er ekki sáttur við fullyrð-
ingu greinarhöfunda um að erfiðlega
hafi gengið að fá greiðslur fyrir vaktir
sjúkraflutningamanna á Akureyri.
„Sjúkraflutningamenn hafa fengið
greitt fyrir öll sín útköll. Þeir eru allir
í fullu starfi, en við höfum hins vegar
stundum hringt í menn þegar þeir
eru á frívakt og boðið þeim að fara í
sjúkraflug." Þá segist Þorbjörn hafa
skipulagt bakvaktir nýverið vegna
mikilla anna, og að menn hafi fengið
greitt fyrir þær. Hins vegar hafi
slökkviliðinu oft gengið erfiðlega að
fá greitt fyrir útköll vegna erlendra að-
ila. Þeir séu sumir illa tryggðir og erf-
iðlega hefur gengið að fá upplýsingar
um tryggingamál annarra, þannig að
oft hafi þurft að fella niður reikninga
vegna slasaðra ferðamanna.
Þorbjörn segir það einnig rangt
sem haft er eftir Davíð Á. Gunnars-
syni, ráðuneytisstjóra Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis, í Blað-
inu í gær að samkvæmt samningi
sé slökkviliðinu skylt að tryggja að
sjúkraflutningamaður fylgi með í
hvert sjúkraflug. „Slíkur samningur
hefur aldrei verið til. Þetta er bara
hlutur sem við lögðum af stað með er
við hófum að sinna sjúkraflugi fyrir
tíu árum, og höfum byggt þetta upp
af mikilli fórnfýsi síðan.“
En þótt sjúkraflutningamenn á Ak-
ureyri séu í fullu starfi gildir ekki hið
sama á landinu öllu. Sjúkraflutninga-
maður á Vesturlandi sem hafði sam-
band við Blaðið sagði að á svæðinu frá
Borgarnesi og norður yfir Vestfirði
væri bara einn sjúkraflutningamaður
á bakvakt í hverjum bæ. Samkvæmt
lögum eigi hins vegar tveir sjúkraflutn-
ingamenn að vera í hverjum flutningi,
og því þurfi sá sem er að vakt að fá
einhvern til að hlaupast úr vinnu til
að koma með sér. „Sem betur fer sýna
flestir atvinnurekendur þessu skiln-
ing og leyfa mönnum að fara í sjúkra-
flutninga á launum. En það gildir þó
ekki um alla.“
HELGINA!
Brauðristar.........990
Kaffivélar........990
Hraðsuðukönnur... 990
Töftasprotar........990
Eldhúsvogir.......990
Handþeyterar........990
Gufustraujám........990
Hárttósarar.......990
Nuddtæki...........1.490 Olíuf. rafrn.oínar.. 2.990
Raftn.tannburst....1.490 Djúpstpottar......2.990
Krulluburstasett....1.490 Mínútugrill.......3.990
Höfuðnuddtæki....1.790 ísvélar...........3.990
Vöfflujám...........2.990 Fótanuddtæki......3.990
Radettegrill.......2.990 Ryksugur...........3.990
Blandarar..........2.990 Rakatæki...........4.990
Súkkulaðipottur....2.990 Safapressur.......4.990
Naglasnyrtitæki...990
Baðvogir..........990
Sléttujám.........990
Samlokugrill.....1.490
Eggjasjóðarar..... 1.490
Borðviftur.......1.490
Dósaopnarar.....1.490
Hitablásarar....1490
Þvottavélar.......47.900
Þurrkarar....... 29.900
U ppþvottavélar.. .44.900
Kæliskápar.......19.900
Frystiskápar.....24.900
Ofriar............17.900
Keram. hellub.....34.900
Eldavélar........29.900
Opið virka daga 9-18
Laugardag 10-18
Sunnudag 13-17
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík
Sími 5880500
www.rafha.is
Falleg brauðrist í burstuðu stáli
með beyglustillingu, afþíðingu,
mylsnybakka og ristunarstilli.
Verð áður kr. 3.990