blaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 14.04.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 blaðið Ég get skotið þig Sigurður Ólafsson, átján ára sjó- maður á Akureyri, og félagi hans Jóel Ragnarsson voru í bíó föstudags- kvöldið 2. apríl 1976. Án nokkurs tilefnis segir Sigurður við Jóel að sig langi til að drepa einhvern. Jóel veitti þessum orðum enga sérstaka athygli enda hafði hann áður heyrt Sigurð segja þetta, en Jóel tók orð hans aldrei alvarlega. Rúmri viku fyrr höfðu þeir setið inni á veitingastaðnum Bautanum og þó svo bannað væri að vera með áfenga drykki þar inni blönduðu þeir úr flösku sem þeir voru með saman við gosdrykki sem þeir höfðu keypt. Afgreiðslustúlka kom til þeirra og vísaði þeim út. Þegar þeir voru komnir út sagði Sigurður við Jóel að best væri að drepa stúlk- una. Næstu daga á eftir endurtók Sig- urður þetta nokkrum sinnum, að best væri að drepa stúlkuna. Þegar þeir voru í bíóinu nefndi Sigurður hins vegar ekki að hann vildi drepa stúlkuna, heldur bara einhvern. Skildi við félaga sína Kvöldið eftir, laugardagskvöldið 3. apríl, fór Sigurður heiman frá sér og ætlaði í bíó með Jóel. Þeir hittumst við Nýja bíó en hættu við að fara í bíó, ákváðu heldur að safna pening- um og kaupa sér flösku. Sigurður var blankur, hafði fengið hjá móður sinni tómar flöskur til að selja. Þeir strákar hittu sameiginlegan kunn- ingja, Magnús. Saman tókst þeim að öngla saman nægum peningum til að geta keypt eina og hálfa flösku af brennivíni. Með vínið fóru þeir heim til Jóels og drukku úr flöskun- um. Þegar komið var á þriðja tím- ann um nóttina fóru þeir í bæinn en skömmu eftir að þeir komu þangað skildi leiðir með þeim. Stal riffli Þegar Sigurður var orðinn einn gekk hann að leigubílastöð BSO og þaðan að versluninni Höfn og að bak- dyrum á verslun Brynjólfs Sveinsson- ar, en þá var um hálf klukkustund liðin frá því Sigurður kvaddi félaga sína. Bærinn var mannlaus. Hann gekk að glugga á versluninni, tók upp stein og braut rúðuna. Hann notaði trefil sem hann var með til að tína glerbrot úr glugganum. Honum tókst að opna gluggann og fór inn í verslunina. Hann skoðaði sig um stutta stund, tók síðan tvær haglabyssur og riffil og fór með skotvopnin inn á klósett. Hann fór aftur fram og náði sér í nokkra pakka af haglaskot- um, fór aftur inn á klósett og hlóð aðra haglabyssuna, tvihleypu, bæði hlaupin, og skaut úr henni í vegginn. Hann hafði ákveðið að hafa þessa byssu með sér en líkaði hún ekki, fannst hún of hávaðasöm. Hann henti haglaskotunum í klósettið, fór aftur inn í búðina og sótti sex eða sjö pakka af riffilskotum og tösku sem hann ætlaði að setja skotin í, en hætti við það þar sem honum þótti taskan fullstór. Hann hlóð riffilinn og skaut skoti og hlóð hann aftur. Næst tróð hann skotunum í úlpu- vasa og buxnavasa. Að þessu loknu fór hann að afgreiðslukassa verslun- arinnar og tók úr honum um átta þúsund krónur. Að þessu Ioknu gekk hann að bak- dyrum verslunarinnar. Hann var með peningana, riffilinn og skotin. Miðaði byssu Sigurður gekk upp Brekkuna, að verslun KEA við Byggðaveg og síðan áfram upp Vanabyggð og Einilund og áfram í átt að Heiðarlundi. Það sem hann eftir götunni sá hann mann koma á móti sér. Sigurður lagðist niður og miðaði byssunni að manninum. Hann hætti við að hleypa af, stóð upp og gekk á móti manninum, miðaði byssunni á hann og skipaði honum að stoppa. Maðurinn lét ekki segja sér það tvisv- ar. Sigurður spurði manninn að nafni, hvar hann ætti heima og hvert hann væri að fara. Maðurinn sagðS heita Ásbjörn, hvar hann byggi og sagðist hafa ætlað að útvega sér vín. Meðan þeir ræddu miðaði Sigurður byssunni stöðugt að Ásbirni. Ásbjörn spurði hvort hann ætl- aði að skjóta sig. Sigurður svaraði að það gæti vel komið til greina og miðaði byssunni að andliti Ásbjörns og sagðist vel geta skotið hann. Sig- urður setti byssuna niður og spurði Ásbjörn hvað hann myndi gera ef hann leyfði honum að fara, hvort hann myndi fara á lögreglustöðina og segja til sin. Ásbjörn sagðist ekki myndugera það. Hélt í Ásbjörn Sigurður tók aftur upp byssuna og miðaði aftur, nú á milli augnanna á Ásbirni. Hann hafði sagt geta skotið og lét ekki sitja við orðin tóm heldur hleypti af. Ásbjörn féll aftur fyrir sig fjóra til fimm metra. Sigurður gekk að honum, þar sem hann lá og hélt um andlitið og sá blóð vella um nas- ir og munn. Sigurður beið þess að Ásbjörn létist en þar sem það dróst barði hann Ásbjörn í bakið með byssuskeftinu. Við það hékk hann alveg niður en tókst að reisa sig upp og sparka rifflinum úr höndum Sig- urðar og greip í buxur hans. Sigurð- ur beygði sig niður og barði Ásbjörn ítrekað í andlitið, Sigurður féll við og Ásbjörn reyndi að teygja sig eftir riffl- inum. Sigurður reyndi að losa um tak Ásbjörns á buxunum en tókst það ekki fyrr en hann barði hann aftur í andlitið. Honum tókst að ná rifflinum og skaut aftur á Ásbjörn. Skotið hafnaði í hnakkanum. Sigurð- ur skaut aftur á sama stað. Við það féll Ásbjörn og lá eftir hreyfingalaus. Sigurður er ekki viss um hvort hann skaut fleiri skotum en þegar hér var komið fór hann að safna saman patrónunum og gekk að skúr sem þarna var. Hann gróf riffilinn í snjó, en patrónurnar setti hann i moldar- haug og stappaði á þeim. Síðan fór hann heim. Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga HjartaHeill simi 552 5744 Giró- og kreditkortþjónusta heilsa -hafðu þaö gott Verslun ORMSSON að Lágmúla 8 hefur verið endurnýjuð frá grunni AEG SAMSUNG TEFAt OPIÐ ELDHÚS I SÝNINGARSAL ALLA HELGINA Fjöldi girnilegra opnunartílboða! OPIÐ HÚS ALLÁ\ HELGINA Opið laugardag frá kl. 11-16 og sunnudag frá kl. 13-17. LÁGMÚLA 8 • 3ÍMI 530 2800 • www.ormsson.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.