blaðið - 14.04.2007, Page 14

blaðið - 14.04.2007, Page 14
14 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 blaðið HVAÐ MANSTU? 1. Hver leiðir lista Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar? 2. Hvaða lið náðu sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu fyrr í vikunni? 3. Hvar fara landsfundir Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar fram um helgina? 4. Hvar skrifaði Bjargvættina í grasinu (The Catcher in the Rye)? 5. Hvaða ríki á landamæri að Egyptalandi, Súdan, Tsjad, Níger, Alsír og Túnis? Svör: GENGI GJALDMIÐLA mm Bandaríkjadalur KAUP 65,57 SALA 65,89 2fS Sterlingspund 130,25 130,89 nm Dönsk króna 11,905 11,975 » Norsk króna 10,94 11,004 ■BEffií ■ ffii Sænsk króna 9,562 9,618 sa Evra 88,77 89,27 ( verslunum Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Skíf Eg Laugardaishöll Miðasala í fullui á midi.is c _ BT Seifossi, Akureyri og MlSav.rí: stúka.fcr.7400 ■ StœOI kr.5300 • Hú ' •' ■ jyrW Hrjf t' mm <© OSQC.aaУtOQD©eQC Sverrir Einarsson Hcrmann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar auglýsir fasteignir til sölu Tilgrelndar fasteignir á starfsvasöi Þróunarfélags Keflavikurflugvallar eru hér með auglýstar tll sölu. Við mat á tilboðum veröur einkum horft til kaupverös og tilhögunar á greíöslu þess. FélagiO áskllur sér rétt til aö taka tillit tll hugmynda bjóöenda um nýtingu fastelgnanna ásamt því hvaöa áhrtf sú nýtlng hefur é eftirspurn eftir öörum fastelgnum félagsins á svæölnu. Sumar bygglnganna eru innan viðkvæmasta hluta haftasvæóls fiugvemdar sbr. reglugerö 361/2005 og nýtlng þelrra þvf háö vlóelgandl skllyróum. Ekkl eru um útboð á elgnum aó ræöa heidur sölu. Þróunarfátag Keflavlkurflugvatiar áskllur sér rétt tll aö taka þelm tilboöum sem talln eru hagstæöust, m.a. út frá ofangrelndum þáttum eða hafna öllum. Elgnlrnar veróa seldar frá og meö 24. april 2007. Frekarl upplýsingar um elgnlmar má nálgast á helmasföu eöa á skrifstofu félagsins. KADECO www.kadeco.is Auglýsingasíminn er 510 3744 Didda Jónsdóttir Ijóðskáld við störf Maður kynnist borgaranum og mannlífinu á sérstakan hátt BMið/fyþór Konum fjölgar stöðugt við sorphirðu: Ljóðskáld með tunnutrillurnar ■ Sömu laun ■ Lyktin hengd á ruslakarlana ■ Hittir krakka og ketti Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Átta konur starfa nú hjá Sorphirðu Reykjavíkur og hafa aldrei jafn- margar konur starfað við sorphirðu að vetri til. „Það hafa yfirleitt verið ein til tvær stelpur í þessu að vetr- inum og þær hafa stoppað stutt en nú hefur orðið breyting á. Það er eins og konur hafi uppgötvað að þetta sé enn eitt starfið sem er gott starf,“ segir Pétur Elínarson, rekstrarfulltrúi hjá Sorphirðu Reykjavíkur þar sem um 6o manns starfa að jafnaði. Hann telur að hluti af áhuga kvenna á starfinu sé tækifæri til úti- vistar og mikillar hreyfingar. „Þetta er kvenfólk úr öllum geirum. Auk Diddu ljóðskálds erum við með íþróttakennara, eróbikkkennara, fótaaðgerðarfræðing og fleiri við störf hér í vetur.“ Didda Jónsdóttir Ijóðskáld, sem hefur verið við sorphirðu hjá Reykja- víkurborg frá því í október, mótmælir því að einhver fari í starfið vegna hreyfingarinnar. „Það er fáránlegt að ímynda sér það. Auðvitað eru allir að reyna að ná í salt í grautinn handa sér og sínum. Þetta er fyrst og fremst verkamannavinna og til dæmis eina starfið sem ómenntuð kona getur gengið inn í og fengið sömu laun fyrir og karlinn við hliðina á henni. Það fá allir það sama fyrir puðið og kannski á borgin skilið svolítið hrós fyrir það.“ Að sögn Diddu þurfa sorphirðu- menn enn að burðast með tunnur upp og niður tröppur og finnst henni það endurspegla ákveðið viðhorf til stéttarinnar. „Við blokkir sem eru eldri en ég er enn ekki búið áð setja upp rampa fyrir öskukallana að fara með tunnurnar upp tröppurnar." Og ljóðskáldinu finnst ástæða til að benda á að lyktin sem fylgi rusl- inu komi ekki af ruslakörlunum, eins og Didda orðar það, heldur af rusli fólksins sjálfs. „En lyktin hefur verið hengd á ruslakarlana. Og svo á bara að vaða yfir mann og maður kallaður öllum illum nöfnum ef maður vill ekki taka umframrusl en það ber manni ekki að gera. Það þarf þol og mann- lega kosti til að halda þessa vinnu út.“ Það besta við starfið að mati Diddu er vinnutíminn. Hún byrjar klukkan hálf sjö á morgnana og lýkur störfum klukkan hálfþrjú síð- degis eða um leið og sonur hennar er búinn í skólanum. „Annar kostur er að hitta alla krakkana í hverfunum og hundana og kettina. Maður er alltaf veifandi börnum og það er dásamlegt." Landspítali-háskólasjúkrahús Útskriftarnemar í hjúkrunarfræði segja launin of lág Könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna: Fimmtungur ánægður Aðeins fimmtungur ríkisstarfs- manna er ánægður með laun sín en átta af hverjum tíu eru ánægðir í starfi. Færri konur eru ánægðar með laun sín en karlar. Þetta kemur fram i könnun á starfsumhverfi ríkis- starfsmanna. Könnunin sem er sam- starfsverkefni fjármálaráðuneytis- ins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla íslands og ParX viðskiptaráðgjafar IBM, var gerð í nóvember og desember síðast- liðnum. Svarendur voru tæplega to þúsund og starfa þeir hjá 144 stofn- unum ríkisins. Mikið vinnuálag og streita virð- ist áberandi og mælist það svipað og áður. Um 50 prósent svarenda höfðu einu sinni eða oftar farið í starfsmannaviðtal. Aðeins um 30 prósent þeirra sem farið höfðu í starfsmannaviðtal töldu að því væri fylgt eftir. Alls eru 44 prósent ánægð með stjórnun stofnunar sinnar en það er sama hlutfall og 1998. Ríkisstofnunum hefur fækkað og þær stækkað síðasta áratuginn. Árið 1998 voru þær tæplega 250 en eru nú rúmlega 200. Hlutfall kvenna í hópi stjórnenda hefur hækkað á sama tímabili.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.