blaðið - 14.04.2007, Síða 20

blaðið - 14.04.2007, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 blaðiö Pro-Gastro 8, eru GÓÐAR FRÉTTIR fyrir meltinguna og þarmaflóruna! 7 hylki 2svar á dag fyrir máltíð og minnst eitt glas af vatni er gott ráð til losna við flest meltingaróþægindi. Fjölbreytt úrval af sundbolum og bikini frá ANITA Stærðir 38-50. Ö UníqueBodyWear Laugaveg 80 Sími 5611330 Fáanlegt I flestum apótekum, heilsu- búðum, Hagkaup og Fjarðarkaup. lííTata HUSGAGNfiVERSLUN Reykjauíkuruegi 66 Hafnarfirði sími 5654100 Listgyðjan spjölluð? Það var frumsýning í Lista- safni Reykjavíkur í gær. Nú, já? Og hvað var verið að sýna? Var að byrja ný sýning á verkum Georgs Guðna? Eða var þetta leiksýning? Kannski gjörningur? Ónei - ekki var það gjörningur í neinum hefðbundnum skilningi. Og heldur ekki leiksýning og ekki myndlistarsýning eða neitt list- rænt yfirleitt. Þótt atburðurinn héti „frumsýning“ og færi fram í listasafni. Það var bara verið að kynna vörumerki. Að þvo af sér svarta fortíð Olíufyrirtækið sem hingað til hefur kennt sig við Esso var að skipta um nafn. Vildi ekki lengur láta bendla sig við olíusamráðið al- ræmda. Vonast til að fólk gleymi tengslum fyrirtækisins við þá sorgarsögu þegar komið er nýtt vörumerki. Þessu lýstu forráða- menn fyrirtækisins hreinskilnis- lega yfir. Það virtist nokkuð blyðg- unarlaus tilraun til að þvo af sér svarta fortíð en forráðamennirnir hafa sér til afsökunar að þeir eru nýir. Því félagið hefur skipt um eigendur síðan Öskjuhlíðarfund- irnir voru og hétu. Þess vegna má fyrirgefa þeim nýju að vilja byrja með hreint borð og nýtt nafn. Ekki síst af því þeir leggja þunga áherslu á að fyrirtækið sé nú alls ekki lengur fyrst og fremst í olíuviðskiptum. Allt má þetta annars einu gilda. Ég skal trúa forráðamönnum Esso (eða hvað fyrirtækið heitir núna) fyrir þvi að þótt ég hafi nú keyrt bíl í rétt 20 ár og farið á bensínstöðvar oftar en tölu verður á komið, þá hef ég aldrei gert nokkurn einasta greinar- mun á því hvaða olíufyrirtæki rekur hvaða bensínstöð. Þótt það ætti að drepa mig, þá gæti ég ekki rifjað upp hvaða fyrirtækið rekur bensínstöðina á Skúlagötu - þó ég hafi milljón sinnum tekið þar bensín. Bensínstöðvar eru bara bensín- stöðvar og það hefur ekki breyst þótt sumar þeirra séu farnar að selja sérbökuð vínarbrauð. Hvað á að líða kaup- skaparfyrirtækjum? Nú ber ég fulla virðingu fyrir því að auðvitað skiptir fyrirtæki miklu hvernig þau kynna sig, og þótt mér hafi gengið illa að greina milli bensínstöðva gegnum tíð- ina, þá hef ég ekkert nema gott um það að segja að Esso verði leyst af hólmi af nýju vörumerki. Gangi þeim bara allt í haginn! En að kalla þetta „frumsýn- ingu“ og láta hana fara fram í Listasafni Reykjavíkur? Var ekki eitthvað vægast sagt tilgerðarlegt við það? Nú er ég kannski bara gamaldags - en á að líða kaupskap- arfyrirtækjum það að setja sitt PR fram eins og um listviðburð sé að ræða? Jafnvel þótt skil milli lista og menningar annars vegar og bissn- iss hins vegar hafi kannski orðið ógreinilegri upp á síðkastið. Er verið að sýna Skugga-Svein? Og það er ekki bara stórkapítal- isminn sem farinn er að kássast upp á listir og menningu. Pól- itíkin líka. Eða hvað á að kalla bakgrunninn á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins annað en leik- mynd, komin beina leið ofan af leiksviði? Leikmyndin virkar reyndar pínulítið gamaldags - hún er svo- lítið eins og það sé verið að sýna Skugga-Svein í félagsheimili úti á landi um miðja 20. öld. Tilgangur leikmyndarinnar er augljós - reyndar svo augljós að það er eiginlega óskammfeilið. Sjálfstæðisflokkurinn, þessi blást- olti stóriðjuflokkur - hann er allt í einu orðinn grænn! Híhí, snerum á ykkur - við erum líkagræn!! Þótt ég fari um dimman dai En kannski er leikmynd Sjálf- stæðisflokksins enn útspekúler- Csso "Tilgangui leikmyndar- innar er augíjós - reynd- ar svo augljósnð það er eiginlega óskammfeiliö. Sjálfstœöisflokkurinn, þessi blástolti stóriðju- flokkur - hann er allt í einu oröinn grœnn!" aðri en svo. Það eru nefnilega einkennilega dimmir skuggar á þessu Skugga-Sveins landslagi. Er það bara tilviljun? Eða á þetta jafnframt því að telja manni trú um að Sjálfstæðisflokkurinn sé grænn um leið að vekja manni svolítinn ugg? Framtíðin þrátt fyrir allt svolítið óviss? Og best að taka enga sénsa? Á maður sem sagt að hugsa þegar maður horfir á skuggana í landslaginu: „ Jafnvel þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt, þvi þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.“ Þetta er úr Davíðssálmum. Davíð er náttúrlega farinn. En þarna stendur Geir Haarde guðs- blessunarlega á sviðinu. Og hann mun passa okkur! Pólitík? Eða Iistviðburður? Og er þá ekki soldið farið að spjalla blessaða listgyðjuna?

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.