blaðið - 14.04.2007, Síða 33

blaðið - 14.04.2007, Síða 33
blaðið LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007 33 Nýlega kærðu átta prestar þjóð- kirkjunnar Hjört Magna Jóhanns- son fríkirkjuprest til siðanefndar Prestafélagsins vegna ummæla hans um þjóðkirkj- una. Hjörtur Magni er meðal ann- ars kærður fyrir að segja að hver sú stofnun sem teldi sig hafa höndlað sannleikann yrði um leið stórhættu- leg ef ekki bara djöfulleg. Hann er einnig kærður fyrir að segja að ef kirkjan færi að láta dýrka sig í stað Guðs væri hún að brjóta fyrsta boð- orðið. Hjörtur Magni er kærður fyrir fleiri orð sem prestarnir eru ósáttir við. „Mér finnst þetta fáránlegt,“ segir Hjörtur Magni. „Reyndar er kæran ekki ljós, þar eru alls kyns atriði tínd til, svo sem afstaða mín til samkynhneigðra og að ég tali ekki nógu vinalega og elskulega til koll- ega minna. Eg hef alls ekkert verið að tjá mig um kollega mína, hvorki í predikunum, ræðum né í riti. Ég hef hins vegar gagnrýnt hina evang- elísku-lúthersku þjóðkirkju og þá stofnanaumgjörð sem er í landinu. Það á að vera skylda hvaða prests sem er, sem þjónar í lúthersku kirkj- unni, að vera gagnrýninn. Ég á mér hugsjón og drauma um framtíð og umgjörð kristinnar trúar í landinu. Ég vil að sú umgjörð mótist af nú- tíma tíðaranda og vilja og sannfær- ingu meirihluta þjóðarinnar og sé í anda lýðræðis og jafnræðis. Það er dapurlegt að við skulum búa við ríkiskirkju. Ég tel að ríkis- kirkjan hamli trúarlífi fólks enda hefur komið í ljós að meirihluti þjóðarinnar getur ekki skrifað undir grunnkenningar hennar. Meirihluti þjóðarinnar vill að- skilnað ríkis og kirkju og meiri- hluti þjóðarinnar er hlynntur því að samkynhneigðir fái að ganga í hjónaband meðan kirkjan sem stofnun er því mótfallin. Það er alls konar trúarleg gerjun í landinu sem ríkiskirkjan hefur hafnað. Mér sýn- ist að þjóðkirkjan sé sífellt að færa sig nær bókstafstrúarmönnum í af- stöðu sinni til ýmissa málefna og það er hættulegt. Ríkisprestar eru á ríkislaunum. Við sem tilheyrum þeim stóra hópi sem er utan þjóðkirkju greiðum þessum prestum laun og svo hafna sumir þeirra fólki, kæra, dæma og útskúfa til hægri og vinstri. Margir landsmenn hafa hugsað sem svo að þeir þoli að það sé til ríkiskirkja á meðan hún er víðsýn og opin og þjóni öllum og sé eins konar ör- yggisnet. En sú forsenda er brostin þegar þjóðkirkjuprestar neita að þjónusta evangelísk-lútherskt fólk vegna þess að þeim líkar ekki við kirkjusöfnuðinn sem fólkið til- heyrir og afstaða biskups til slíks er óljós. “ Nú er biskup íslands höfuð þjóðkirkjunnar. Hvert er viðhorf þitt til hans og hans starfa? „Hann virðist vera mjög reiður þessa dagana. Hann hefur skrifað bréf til hægri og vinstri þar sem reiði hans brýst út. Hann svarar ekki sumum þeim erindum sem eru send til hans. Mér finnst það dapurlegt en ég óska honum alls góðs.“ Að slá eign sinni á Guð Það hvarflar að manni að það sé ekki bara þessi ákveðnu um- mæli í sjónvarpþœtti sem hafi kallað á kœruna, það sé kannski eitthvað meira sem kraumiþarna undir. Hvað er það? „Fríkirkjan er dæmigerð íslensk grasrótarhreyfing. Hún hefur átt erfið tímabil en undanfarin ár hefur hún vaxið og dafnað og er orðin einn stærsti söfnuður landsins. Við teljum núna um 7500 manns og erum stærri en Dómkirkjusöfn- uðurinn, mun stærri en Hallgríms- kirkjusöfnuðurinn, reyndar stærri en flestir söfnuðir í kringum okkur. Það ætti að vera fagnaðarefni fyrir hvern kristinn mann að frjáls gras- „Hættan sem steðjar að kristinni kirkju erflóttinn inn í bókstafshyggjuna. Menn vilja kasta eign sinni á Guð al- máttugan, setja hann í brjóstvasann, jafnvel rassvasann, og setjast ofan á hann." rótarkristni vaxi og dafni í upplýstu samfélagi. Svo virðist hins vegar sem þjóðkirkjuprestar og forsvars- menn þjóðkirkjunnar líti á þennan vöxt sem ógurlega ógn, eitthvað sem verði að berjast gegn, kæra og bæla. Það er dapurlegt.“ Einn prestanna sem kœrir þig hefur sagt að þú sért að upphefja sjálfan þig. Getur verið að þín persóna fari í taugarnar á ein- hverjum þeirra presta sem kærðu Þ'gJ „Ég forðast að segja „ég“ í predik- unum en hjá því verður ekki alltaf komist. Sumir prestar virðast nota það orð oftar en nafn Guðs. Ég er breyskur maður, örugglega mein- gallaður en ég er ekki að upphefja sjálfan mig. Ég hef gagnrýnt stofn- anakirkjuna og ég held að það sé það sem fari í taugarnar á þeim sem ákváðu að kæra mig. Ég bjó í Jerúsalem á sínum tíma, var þar hátt á þriðja ár við nám í háskóla og við sænska guð- fræðistofnun. í Jerúsalem er gríð- arleg trúarleg fjölmenning. Þetta er átakasvæði og þar er barist og trúarbrögðin eiga sinn þátt í því. Þetta er líka mjög heillandi svæði, sérstaklega gamla borgin sem er rík af gjörólíkum trúarhefðum en þó skyldum. Dvölin þarna víkkaði sjóndeildarhring minn og dýpkaði trú mína. Ég sá alla þá sem voru komnir til borgarinnar til að pred- ika um hinn eina sanna Guð sem þeir þekktu og segja öðrum frá þeim Guði sem þeir höfðu fundið og jafnvel búið til. En allir hinir voru líka með sinn eigin albesta Guð. Úr slíku verður aldrei samfé- lag þar sem eiga sér stað samræður. Þetta voru bara einræður hvers og eins úti í sínu horni. En um leið og mér var þetta ljóst gat ég ekki annað en fyllst auðmýkt gagnvart þeirri fjölbreytilegu mannlífsflóru sem þarna var að finna og öðlaðist visst umburðarlyndi og víðsýni gagnvart hefð og siðum annarra. Veistu hvar Guð er að finna í Jerúsalem?" Nei. „Guð er ekki að finna í einni trúar- hefð. Guð er yfir trúarbrögð hafin. Ég er sammála því sem Desmond Tutu biskup sagði eitt sinn: „Guð er ekki kristinn“. Guð getur ekki verið kristinn því gyðingar eru líka hans fólk og múslimar eru sömuleiðis hans fólk og búddistar og hindúar eru einnig börn Guðs. Kannski eru það kenningar eins og þessar, sem ég aðhyllist og boða, sem mönnum mislíkar svo mjög. Ég trúi því hiklaust að Guð, hvaða nafni sem menn vilja kalla hann, opinberist innan margra trú- arhefða. Alls staðar þar sem unnið er í nafni fölskvalauss kærleika - þar er Guð að finna. Og alls staðar þar sem unnið er í neikvæðni og niðurrifi og ótta, sama undir hvaða Láttu drauminn raetast frábœr fermingartilboö á rúmum & svefnsófum Karolin tungusvefnsófi Karolin 3ja sæta svefnsófi Doris 1 20 x 200cm verð. 39.900,-áður 61.600,- Suprima 90x200cm v/33.280,- áður 41.000,- 1 20x200cm v/ 42.400,- áður 53.000.1 1 40x200cm V/ 49.360,- áður b i 700. E lecta 120x200 V/ 59.980 áður 67.300 5 svæða pokagormadýna og botn Opið virka daga 10 til 18 laugadaga 11 til 16 HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090 HÚSGÖGNIN FÁSTEINNIG I HUSGAGNAVAl, HÖFN S: 478 2535

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.